Grunnþjónusta fyrst, svo allt hitt

Tengd sveitarfélög:

Einar Geir Þorsteinsson: skrifar grein sem birtist í Fjarðarfréttum 05.03.2026

Hafnarfjörður er að vaxa, ný hverfi rísa og tækifærin eru mörg. Undanfarin ár hafa þó útgjöld vaxið hraðar en tekjur og skuldir aukist hratt. Slík þróun er ekki sjálfbær og hún er ósanngjörn gagnvart útsvarsgreiðendum Hafnarfjarðar, sem og komandi kynslóðum Hafnfirðinga.

Við viljum endurheimta aga í rekstri bæjarins. Það þýðir að stöðva útþenslu í ólögbundin verkefni sem hafa ekki skýran, mælanlegan ávinning fyrir íbúa. Fjármunum verður beint í kjarnastarfsemi bæjarins: leikskóla, grunnskóla, þjónustu við eldri borgara, og innviði sem styðja við daglegt líf fólks. Almannafé á að verja af ábyrgð og með fullu gagnsæi.

Í móttöku hælisleitenda þarf bæjarstjórn að taka meiri ábyrgð. Hafnarfjörður á ekki að bera þyngri byrðar en önnur sveitarfélög í þessum málaflokki. Þetta snýst ekki eingöngu um kostnað, en þessi málaflokkur hefur áhrif á þjónustu, húsnæðismál, innviði og alla aðra málaflokka í Hafnarfirði. Miðflokkurinn í Hafnarfirði mun krefjast jafnræðis og eitt af fyrstu verkum okkar eftir kosningar verður að leggja það til að frekari móttaka verði sett á bið þar til sanngjörn dreifing milli sveitarfélaga er tryggð.

Samgöngur eiga að þjóna íbúum. Forgangur í samgönguúrbótum verður að vera að laga flöskuhálsa, bæta flæði og stytta ferðatíma, en ekki að flækja daglegt líf fólks með táknrænum aðgerðum, á borð við að breyta ferðavenjum íbúa á grundvelli loftlagseða lýðheilsusjónarmiða eins og Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins kveður á um.

Við trúum líka á valfrelsi fjölskyldna. Með raunhæfum lausnum í leikskólamálum, þar á meðal markvissum heimgreiðslum, viljum við létta á kerfinu og treysta foreldrum til að velja það sem hentar þeirra börnum best.

Höfundur er oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði