Málefni aldraðra – frá starfslokum til æviloka

Miðflokkurinn vill standa við gefin fyrirheit til eldri borgara um bætt kjör. Miðflokkurinn vill að ráðist verði þegar í stað í löngu tímabærar endurbætur á málefnum eldri borgara.

Stefna ætti að því að ellilífeyrir verði ekki lægri en lægsti taxti Starfsgreinasambands Íslands. Skerðingarreglunni verður að breyta tafarlaust og takmörkun á launatekjum þarf að hverfa.

Leggja þarf áherslu á heildstæða stefnu í málefnum aldraðra sem tekur tillit til mismunandi aldursskeiða, mismunandi aðstæðna, fjárhagslegra og heilsufarslegra. Koma þarf í veg fyrir að atvinnutekjur rýri lífeyristekjur. Fólk á að fá að vinna eins lengi og það hefur áhuga á og heilsu til. Lykilatriði í lífi allra er félagsleg virkni og hreyfing, það á einnig við um þá sem eldri eru. Vinna þarf gegn aldursmismunun í atvinnulífinu. Áhersla skal vera á að sérstök lagaumgjörð verði um málefni aldraðra. Samhæfa þarf vinnubrögð allra þeirra sem sinna öldruðum svo sem ríkisins, sveitarfélaga, félagasamtaka og einkaaðila. Þannig sé tryggt að þjónustukeðjan rofni ekki heldur fylgi þörfum hvers og eins ævina út. Eftir starfslok verði unnið með virkni, lífsleikni, félagslegar athafnir, forvarnir, heilsuvernd og nauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Fjölga þarf hjúkrunarrýmum um leið og tryggt er að önnur búseta sé í boði og tryggt sé að hjón sem þurfa á slíkum úrræðum að halda fái að dvelja saman. Landsþingið hafnar aðför núverandi ríkisstjórnar að kjörum eldri borgara ekki síst lífeyrisréttindum þeirra.

Auka þarf heimaþjónustu aldraðra og tvinna hana saman við önnur virkniúrræði. Gengið verði út frá því að þeir sem starfa vilja fram yfir sjötugt fái tækifæri til þess. Millistig milli einkaheimilis og hjúkrunarheimilis verði endurskilgreind og í boði eftir þörfum s.s. þjónustuíbúðir og blandaðir byggðakjarnar. Styðja þarf við aukna samvinnu dvalarheimila, skóla og leikskóla.

Skerðingar og afar óréttlát skattheimta verði afnumin ásamt því að aðskilja beri alveg málefni eldri borgara og öryrkja í orði og æði enda alls óskyldir hópar.