Miðflokkurinn í Hafnarfirði

Frambjóðendur í Hafnarfirði

1. sæti

Einar Geir Þorsteinsson

Lögfræðingur
2. sæti

Signý Jóna Tryggvadóttir

Mannauðssérfræðingur
3. sæti

Böðvar Ingi Guðbjartsson

Kennari og pípulagningameistari
4. sæti

Eva Rún Helgadóttir

Viðskiptafræðingur
5. sæti

Arnhildur Ásdís Kolbeins

Fjármálastjóri
6. sæti

Stefán Gunnarsson

Markaðsstjóri
7. sæti

Margrét Elín Arnarsdóttir

Flugstjóri
8. sæti

Lena Karen Andreasdóttir

Viðskiptastjóri
9. sæti

Þórður Hugo Björnsson

Nemi
10. sæti

Helga Margrét Sveinsdóttir

Eftirlaunaþegi
11. sæti

Hjörtur Þórisson

Ráðgjafi hjá Klettabæ
12. sæti

Magnús Pálsson

Málarameistari
13. sæti

Þorkell Gunnarsson

Framkvæmdastjóri
14. sæti

Kolbrún K. Róbertsdóttir

Framkvæmdarstjóri og myndlistarkona
15. sæti

Jóhann Kristinn Jóhannesson

Fasteignasali
16. sæti

Kristín Þóra Reynisdóttir

Viðskiptafræðingur
17. sæti

Vilhjálmur Steinarsson

Kennari
18. sæti

Kristmundur Skarphéðinsson

Vélstjóri
19. sæti

Kolbeinn Helgi Kristinsson

Atvinnurekandi
20. sæti

Reynir Elís Þorvaldsson

Sölustjóri
21. sæti

Indriði Kristinsson

Stýrimaður
22. sæti

Hilmar Kristensson

Bifreiðastjóri

Áherslumál

í

Hafnarfirði

Hafnarfjörður á að vera bær sem er rekinn af ábyrgð, skynsemi og skýrri forgangsröðun. Undanfarin ár hafa skuldir hækkað, grunnþjónusta verið undir þrýstingi og of margar ákvarðanir teknar án nægilegs aðhalds, gagnsæis og virðingar fyrir þörfum bæjarbúa.

Miðflokkurinn í Hafnarfirði vill snúa þessari þróun við. Við viljum sveitarfélag sem sinnir grunnþjónustu fyrst, fer vel með skattfé bæjarbúa, stendur vörð um öryggi og lífsgæði, byggir upp innviði í samræmi við vilja og þarfir íbúa og tekur ákvarðanir út frá hagsmunum Hafnfirðinga, ekki tískustraumum.

Grunnþjónusta fyrst. Ábyrg fjármál. Skynsamlegt skipulag. Samgöngur sem virka. Skýr mörk og jafnræði. Meira gagnsæi.

 

Átta loforð Miðflokksins í Hafnarfirði

1. Ábyrg fjármál. Grunnþjónusta fyrst

Við viljum lækka skuldahlutfall Hafnarfjarðarbæjar, forgangsraða grunnþjónustu og setja opinbert mælaborð þar sem sérhver Hafnfirðingur getur séð hvert skattfé hans fer. Öll valfrjáls verkefni sem ekki skila mælanlegum árangri verða endurmetin.

2. Samgöngur sem bæta líf fólks, ekki stýra hegðun þess

Við krefjumst endurskoðunar á Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, aðskilnaðar á vegaframkvæmdum og borgalínu, og þess að mislæg gatnamót á Reykjanesbraut við Kaplakrika verði hafin án frekari tafa. Frítt í strætó fyrir alla Hafnfirðinga í tvö ár sem tilraunaverkefni.

3. Skýr mörk í móttöku hælisleitenda

Hafnfirðingar hafa borið meiri byrði en flest önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu í móttöku hælisleitenda. Við krefjumst jafnræðis og fullrar ríkisfjármögnunar. Við ætlum að beita öllum heimildum sveitarfélagsins til að stöðva frekari móttöku þar til jafnræði næst, og krefjast samninga við ríkið um fulla fjármögnun.

4. Ungar fjölskyldur og valfrelsi foreldra

Ný hverfi munu hafa leikskóla, verslun og bílastæði áður en fyrstu fjölskyldur flytja inn. Við munum hækka heimgreiðslur markvisst til foreldra að loknu fæðingarorlofi fram að leikskólaplássi, auk þess að fara í tilraunaverkefni með heimgreiðslur fyrir þá foreldra sem kjósa að vera lengur heima með börn sín á aldrinum 12–24 mánaða. Við sjáum þetta sem valfrelsi fyrir foreldra og hagkvæma lausn sem léttir á leikskólakerfinu. Eðlilegur fjöldi bílastæða í nýjum hverfum. Lóðir sem henta fyrstu kaupendum og fjölskyldum.

5. Skólar sem snúast um börnin

Við viljum innleiða samræmd próf, tölulegar einkunnir og sérdeildir fyrir nemendur sem þurfa annars konar stuðning. Við viljum endurskoða skóla án aðgreiningar. Við ætlum að endurheimta faglega stjórn og forgangsröðun sveitarfélagsins í skólamálum

6. Eldri borgarar í öndvegi

Við ætlum að auka heimaþjónustu, tvöfalda dagsúrræði og knýja á um að ríkið setji Hringhamar 43 í forgang. Frístundarstyrkur fyrir eldri borgara. Mánaðarleg birting biðlista. 

7. Sanngirni á milli hverfa

Íbúar á Völlum og í Skarðshlíð hafa of lengi búið við skort á innviðum. Við munum setja tímasetta áætlun um innviðauppbyggingu í þessum hverfum. Leikskólar, samgöngur, þjónusta. Við erum flokkur íbúa allra hverfa Hafnarfjarðar.

8. Snúa við þéttingarstefnu Hafnarfjarðarbæjar


Ábyrg fjármálastjórn. Grunnþjónusta en ekki gæluverkefni

Traust fjármálastjórn er forsenda góðrar þjónustu. Hafnarfjörður þarf að snúa frá skuldasöfnun og ómarkvissum útgjöldum yfir í forgangsröðun og gagnsæi.

Við ætlum að:

  • Forgangsraða lögbundinni grunnþjónustu sveitarfélagsins
  • Endurmeta öll valfrjáls verkefni sem ekki skila mælanlegum árangri fyrir bæjarbúa
  • Halda aftur af ráðningum utan grunnþjónustu og færa mannafla yfir í kjarnaverkefni
  • Tryggja að framkvæmdir og innkaup fari almennt í opið útboð
  • Setja opinbert mælaborð þar sem bæjarbúar geta séð samninga, framkvæmdir og ráðstöfun skattfjár
  • Vinna að endurfjármögnun og betri kjörum á skuldum bæjarins
  • Stefna að því að lækka skuldahlutfall bæjarins ár frá ári
  • Nýta hagræðingu til að styrkja grunnþjónustu og skapa síðar svigrúm til lægri álaga
Ábyrg fjármálastjórn. Grunnþjónusta en ekki gæluverkefni

Skynsamlegt skipulag fyrir fólk, ekki skipulagsöfgar

Hafnarfjörður þarf meira húsnæði, en ekki á kostnað lífsgæða, bílastæða og innviða. Uppbygging verður að byggjast á raunverulegum þörfum Hafnfirðinga.

Við ætlum að:

  • Þétting byggðar má aldrei verða markmið í sjálfu sér. Við munum standa gegn skipulagi sem þrengir að fjölskyldum, fækkar bílastæðum, eykur umferð og setur innviði undir óásættanlegan þrýsting.
  • Beita okkur fyrir afnámi á vaxtamörkum höfuðborgarsvæðisins
  • Tryggja aukið, stöðugt og fjölbreytt lóðaframboð
  • Endurskoða lóðagjöld þar sem svigrúm er til að auðvelda uppbyggingu
  • Tryggja lóðir sérstaklega ætlaðar fyrstu kaupendum og ungu fjölskyldufólki
  • Samræma uppbyggingu nýrra hverfa við leikskóla, skóla, samgöngur og innviði — ekki á eftir á
  • Tryggja raunhæfan fjölda bílastæða í nýjum hverfum a.m.k. eitt á hverja íbúð
  • Einfalda regluverk og endurmeta kvaðir sem hækka byggingarkostnað án skýrs ávinnings fyrir íbúa
  • Tryggja að verslunar- og þjónustulóðir í hverfum haldist í þeim tilgangi — ekki sitji auðar
  • Fylgja fast eftir því að bygging hefjist innan eðlilegs tíma eftir úthlutun lóða

Öll ný hverfi eiga að hafa leikskóla, verslun og bílastæði áður en fyrstu fjölskyldur flytja inn.

Skynsamlegt skipulag fyrir fólk, ekki skipulagsöfgar

Samgöngur sem auðvelda líf íbúa, ekki stýra hegðun þeirra

Fólk þarf að komast greiðlega til og frá vinnu, skóla, þjónustu og tómstundum. Samgöngustefna bæjarins á að byggjast á þörfum íbúa og hafa það meginmarkmið að bæta samgöngur.

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins getur verið lausn fyrir Hafnarfjörð ef farið er aftur að samningaborðinu. Vandinn er að markmiðum sáttmálans hefur verið fjölgað úr einu í sex og óhagkvæmni borgalínunnar er falin bak við hagkvæmni vegaframkvæmda.

Við ætlum að:

  • Krefjast endurskoðunar á samgöngusáttmálanum
  • Krefjast aðskilnaðar á vegaframkvæmdum og borgalínu svo hægt sé að meta hagkvæmni hvors um sig
  • Leggja til að markmiðum sáttmálans verði fækkað í eitt markmið: bæta samgöngur
  • Hafna lausnum sem skerða akreinar og flæði án skýrs ávinnings fyrir bæjarbúa
  • Hafa frían strætó í tilraunarskyni í tvö ár
  • Knýja á um nauðsynlegar framkvæmdir á Reykjanesbraut 
  • Forgangsraða viðhaldi gatna og úrbótum á flöskuhálsum
  • Bæta innanbæjarleiðir Strætó og tengja ný hverfi með raunhæfum hætti
  • Tryggja öryggi í almenningssamgöngum, m.a. með auknu eftirliti eða öryggisvörðum á álagstímum 
  • Tryggja að innviðauppbygging fylgi fólksfjölgun í öllum hverfum Hafnarfjarðarbæjar
  • Beita okkur fyrir bættu aðgengi að heilbrigðisþjónustu í bænum, m.a. með heilsugæslu í Vallarhverfi
  • Taka upp kvöld- og næturvinnu við stærri umferðarframkvæmdir þar sem það á við

  Stytta framkvæmdartíma og bæta verkstýringu til að lágmarka lokanir á götum og stígum

Samgöngur sem auðvelda líf íbúa, ekki stýra hegðun þeirra

Ábyrg móttaka, jafnræði og skýr mörk

Hafnarfjörður á ekki að bera ósanngjarnt álag vegna ákvarðana ríkisins.

Við ætlum að:

  • Taka saman og birta opinberlega heildaryfirlit um allan beinan og óbeinan kostnað Hafnarfjarðar vegna móttöku hælisleitenda
  • Setja frekari móttöku á bið þar til jafnræði hefur náðst milli sveitarfélaga
  • Krefjast þess að Vinnumálastofnun endurskoði alla leigusamninga innan bæjarmarka Hafnarfjarðar
  • Krefjast fullrar ríkisfjármögnunar til frambúðar, ekki eingöngu fyrstu tvö árin
  • Tryggja að móttaka fari ekki fram umfram getu húsnæðismarkaðar, skóla og félagsþjónustu
  • Setja hagsmuni bæjarbúa og grunnþjónustu í forgang þegar álag skapast
  • Krefjast skýrrar verkaskiptingar milli Hafnarfjarðarbæjar og ríkisins.
Ábyrg móttaka, jafnræði og skýr mörk

Öruggari bær fyrir fjölskyldur, börn og eldri borgara

Öryggi er grunnþáttur í lífsgæðum. Hafnarfjörður á að vera hreinn, vel upplýstur og öruggur bær.

Við ætlum að:

  • Setja öryggismál í hverfum ofar á dagskrá bæjarins
  • Bæta lýsingu, aðgengi og umhirðu á götum, stígum og opnum svæðum
  • Tryggja öruggari gönguleiðir barna að skólum og íþróttastarfi
  • Vinna markvisst með lögreglu, skólum, íþróttafélögum og félagsþjónustu að forvörnum
  • Bregðast hraðar við kvörtunum íbúa um ónæði og óöryggi
  • Styrkja viðbragðs- og forvarnakerfi þar sem vandi hefur fest rætur
  • Auka skilvirkni í snjómokstri og gangstéttaviðhaldi
Öruggari bær fyrir fjölskyldur, börn og eldri borgara

Leikskólar og grunnskólar eru meðal mikilvægustu verkefna sveitarfélagsins. Fræðslu- og uppeldismál eru stærsti kostnaðarliður bæjarins — 25,7 ma.kr. á ári. Heildarkostnaður á leikskólabarn er um 6,5 m.kr. Þjónustan þarf að vera í samræmi við kostnaðinn.

Við ætlum að:

  • Setja leik- og grunnskólamál í algjöran forgang í rekstri bæjarins
  • Innleiða samræmd próf í grunnskólum (t.d. í 4., 7. og 10. bekk) með tölulegar einkunnir, ekki liti og bókstafi
  • Setja á fót sérdeildir og stuðningsúrræði utan hefðbundinnar skólastofu
  • Endurmeta hvernig skóli án aðgreiningar er framkvæmdur svo börn, foreldrar og starfsfólk njóti raunverulegs stuðnings — en ekki málamyndaframkvæmdar
  • Hlúa vel að erlendum börnum með aðgreindum móttökubekkjum þar til þau ná tökum á íslensku, áður en farið er inn í almenna kennslu
  • Hlúa vel að börnum með greiningar í aðgreindum bekkjum til að tryggja að þeirra þörfum sé mætt
  • Grípa fyrr inn í skólaforðun — kerfisbundin fjarvist nemenda er alvarlegt vandamál sem þarf að takast á við í samráði við foreldra, ekki bíða þar til vandinn er orðinn stór
  • Tryggja að hollur matur eldaður á staðnum sé í boði í leik- og grunnskólum
  • Létta á kennurum, kennarinn á að kenna, ekki sinna alhliða félagslegum skyldum sem eiga heima annars staðar í kerfinu
  • Setja skýrar reglur um aðkomu utanaðkomandi aðila að fræðslu í skólum og tryggja gagnsæi í slíku samstarfi 
  • Auka heimgreiðslur markvisst til foreldra sem kjósa að vera lengur heima — valfrelsi fyrir foreldra og hagkvæmni fyrir sveitarfélagið
  • Efla geðheilbrigðisstuðning og snemmtæka íhlutun í skólum
  • Tryggja að samstarf við utanaðkomandi aðila sé gagnsætt og í samræmi við hlutverk skólans
  • Endurskipuleggja starfsdaga leikskóla þannig að þeir falli betur að þörfum foreldra, m.a. með samræmingu og sveigjanlegri lausnum

Meginreglan er einföld: Í Hafnarfirði á barn rétt á góðum skólum, hvetjandi umhverfi og kennurum sem hafa tíma til að kenna. Við krefjumst þess að fjármunirnir sem fara í skólakerfið, yfir 25 milljarðar á ári, skili sér til barnanna.

Leikskólar og grunnskólar eru meðal mikilvægustu verkefna sveitarfélagsins. Fræðslu- og uppeldismál eru stærsti kostnaðarliður bæjarins — 25,7 ma.kr. á ári. Heildarkostnaður á leikskólabarn er um 6,5 m.kr. Þjónustan þarf að vera í samræmi við kostnaðinn.

Reisn á efri árum. Mannsæmandi þjónusta. Skýr forgangsröðun

Hafnarfjörður á að vera bær þar sem fólk getur elst með reisn og búið við öryggi. Þjónustan á að vera einföld, aðgengileg og koma þegar hennar er þörf.

Áhersla skal lögð á endurhæfingu hvers einstaklings sama hvar sem hann kýs að búa, á eigin heimili eða á dvalar- og öldrunarheimilum, forvarnir verði lykilatriði þegar tryggja á aðgengi að innihaldsríku lífi á efri árum og vill Miðflokkurinn t.a.m. skoða frístundastyrk fyrir eldri borgara sem geti nýst í líkamsrækt.

Miðflokkurinn í Hafnarfirði telur brýnt að tryggja að þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð frá bænum séu í raun búsettir í sveitarfélaginu og bæta eftirlit til að minnka misnotkun kerfisins.

 

Mikilvægt er að aðgengi fatlaðra sé tryggt í Hafnarfirði og að Hafnarfjörður veiti viðeigandi þjónustu.

 

Við ætlum að:

  • Að gera sérstaka úttekt á félagsþjónustu í Hafnarfirði
  • Efla heimaþjónustu og stytta biðtíma
  • Tvöfalda dagsúrræði til að seinka varanlegri vistun
  • Knýja á um að ríkið setji Hringhamar 43 í forgang
  • Einfalda kerfið og bæta samhæfingu þjónustu
  • Setja langtíma stefnu fyrir eldri borgara í Hafnarfirði sem tekur mið af því að einstaklingar geti búið heima eins lengi og hægt er, t.d. með aukinni hreyfingu sem og heimgreiðslum 
  • Fjölga búsetúrræðum fyrir eldri borgara
  • Kynna frístundastyrk fyrir eldri borgara
  • Styðja virkni og sjálfstæði öryrkja
  • Birta mánaðarlega yfirlit yfir rými og biðlista
  • Stytta biðtíma eftir heilsugæsluþjónustu 
  • Koma heilsugæslu í Vallarhverfi með tímasettri áætlun 
  • Þrýsta á ríkið um aukna þjónustu í bænum
Reisn á efri árum. Mannsæmandi þjónusta. Skýr forgangsröðun

Sterkara atvinnulíf, einfaldari þjónusta

Hafnarfjörður á að vera öflugur atvinnubær þar sem fyrirtæki fá skýra og skilvirka þjónustu.

Við ætlum að:

  • Auka framboð atvinnulóða og tryggja að atvinnusvæði þróist með skýrum hætti
  • Einfalda samskipti fyrirtækja við bæinn og stytta afgreiðslutíma mála
  • Bæta aðgengi, samgöngur og þjónustu við atvinnuhverfi bæjarins
  • Vinna markvisst að uppbyggingu hafnar og Suðurhafnar
  • Efla miðbæinn, Hjarta Hafnarfjarðar, með markvissum hætti
  • Styðja við bæjarhátíðir og viðburði sem styrkja verslun, mannlíf og ímynd bæjarins
Sterkara atvinnulíf, einfaldari þjónusta

Miðflokkurinn í Hafnarfirði hafnar öllu ofstæki og hræðsluáróðri í tengslum við umræðu um umhverfis- og loftslagsmál.

Við ætlum að:

  • Halda bænum hreinum og vel viðhöldnum (götur, stígar, opin svæði) 
  • Vernda græn svæði í hverfum gegn óhóflegri þéttingu 
  • Forðast kostnaðarsamar táknrænar aðgerðir sem skila litlu
Miðflokkurinn í Hafnarfirði hafnar öllu ofstæki og hræðsluáróðri í tengslum við umræðu um umhverfis- og loftslagsmál.

Hafnarfjörður á að vera íþróttabær Íslands

Hafnarfjörður hefur að geyma mörg af sterkustu íþróttafélögum í mörgum íþróttum. Íþróttastarf er samfélagsinnviður, forvörn og lýðheilsumál. 

Við ætlum að:

  • Lengja opnunartíma sundlauga í Hafnarfirði um helgar
  • Tryggja að öll börn geti tekið þátt í íþróttum óháð efnahag
  • Efla frístundastyrki, hækka aldurshámark og hækka upphæðina. 
  • Stofna Afreksíþróttasjóð Hafnarfjarðar til að styðja við afreksíþróttafólk frá Hafnarfirði
  • Eiga reglulegt samráð við íþróttafélög um forgangsröðun framkvæmda
  • Bæta aðstöðu til almennrar hreyfingar fyrir fólk á öllum aldri
  • Styðja við nauðsynlegar endurbætur á aðstöðu í samræmi við aukinn við iðkendafjölda þar sem við á.
  • Efla samstarf við öll íþróttafélög Hafnarfjarðar
Hafnarfjörður á að vera íþróttabær Íslands

Opið bókhald og meiri völd til íbúa

Traust byggist á því að bæjarbúar sjái hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig fé þeirra er varið.

Við ætlum að:

  • Innleiða raunverulegt opið bókhald þar sem útgjöld, samningar og stærri ákvarðanir eru aðgengilegar almenningi
  • Auka gagnsæi í nefndarstörfum, samningum og undirbúningi stærri mála
  • Virkja íbúasamráð fyrr í skipulags- og hverfismálum
  • Skoða stofnun hverfisráða þar sem það á við
Opið bókhald og meiri völd til íbúa

TÆKIFÆRIÐ ER NÚNA.

Grunnþjónusta fyrst.

Ábyrg fjármál.

Skynsamlegt skipulag.

Samgöngur sem virka.

Skýr mörk og jafnræði í hælisleitendamálum.

Eldri borgarar í öndvegi.

Meira gagnsæi.

Fréttir & tilkynningar

Kosningaskrifstofa:
Bæjarhraun 22, 220 Hafnarfjörður

Opið 10:00 – 18:00

Gengið inn á 2. hæð.

Kosningastjóri:
Kristín Þóra Reynisdóttir
Netfang:
Símanúmer:

Gaktu í lið með Íslandi.

Sýndu að þú sért stuðningsmaður.

Styrktu starf Miðflokksins