

Hvatning til að kjósa Miðflokkinn
Kæru kjósendur í Múlaþingi.
Hvers vegna ættuð þið að kjósa Miðflokkinn í sveitarstjórnarkosningunum laugardaginn 16. maí.
Kosningar snúast á endanum ekki um slagorð. Þær snúast um traust. Traust til þess að fólk standi við orð sín, þori að taka ákvarðanir og hafi bæði vilja og getu til að vinna fyrir samfélagið sitt.
Í komandi sveitarstjórnarkosningum býður Miðflokkurinn í Múlaþingi fram öflugt teymi fólks úr ólíkum áttum samfélagsins sem sameinast um skýra framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið okkar. Við viljum sveitarfélag sem er sterkt fjárhagslega, framsækið í uppbyggingu og ákveðið í að verja hagsmuni íbúa sinna.
Fyrsti grunnurinn að öllu er ábyrg fjármálastjórn. Íbúar eiga rétt á skýrum upplýsingum um rekstur sveitarfélagsins og hvernig fjármunum er ráðstafað. Þess vegna viljum við fá óháðan aðila til að taka út rekstur sveitarfélagsins. Með því skapast betri yfirsýn, aukið traust og sterkari grunnur fyrir framtíðar ákvarðanir. Ábyrg fjármál eru ekki markmið í sjálfu sér heldur forsenda þess að hægt sé að byggja upp þjónustu, innviði og samfélag til framtíðar.
Innviðir og samgöngur skipta Austurland gríðarlegu máli. Við munum halda áfram baráttunni fyrir Fjarðarheiðargöngum og Axarvegi af fullum þunga. Slík verkefni eru ekki munaður heldur öryggis- og atvinnumál fyrir allt svæðið. Við viljum einnig að framkvæmdir við Egilsstaðaflugvöllur hefjist sem fyrst, enda skiptir flugöryggi og öflugur flugvöllur höfuðmáli fyrir þróun svæðisins. Við leggjum jafnframt áherslu á viðhald vega og heimreiða um allt sveitarfélagið.
Í skipulags- og uppbyggingarmálum þarf skýrari sýn og meiri kraft. Við viljum auka framboð lóða fyrir bæði íbúðarhúsnæði og atvinnustarfsemi svo fólk og fyrirtæki geti byggt upp í Múlaþingi. Við viljum leggja áherslu á fegrun og ásýnd umhverfisins enda skiptir það máli hvernig samfélagið okkar tekur á móti bæði íbúum og gestum. Þá viljum við klára skipulag vegna Lagarfljótsbrúar svo hægt verði að koma því mikilvæga málefni í höfn.
Uppbygging mennta- og íþróttamiðju á Egilsstöðum er einnig stórt framtíðarmál. Sú sýn sem samþykkt var á aðalfundi Hattar árið 2026 getur orðið gríðarleg lyftistöng fyrir samfélagið allt — fyrir börn, ungmenni, íþróttastarf, menningu og mannlíf. Slík uppbygging er fjárfesting í framtíð sveitarfélagsins.
Í fræðslumálum viljum við styðja við og þróa enn frekar það öfluga og framsækna skólastarf sem þegar er til staðar í Múlaþingi. Börn eru ólík og þarfir þeirra mismunandi. Þess vegna viljum við efla stoðþjónustu og tryggja fjölbreytt og sterkt námsumhverfi fyrir alla nemendur. Við styðjum nýjan skóla á Seyðisfirði og stækkun Bjarkartúns á Djúpivogi.
Íþróttir, tómstundir og lýðheilsa eru ekki jaðarmál heldur lykilþættir í góðu samfélagi. Við viljum laða að barnafólk og skapa aðstæður þar sem fjölskyldur sjá framtíð í Múlaþingi. Við leggjum áherslu á þjónustusamninga við íþróttafélögin, samstarf við önnur sveitarfélög um að ná fram lækkun ferðakostnaðar íþróttafólks og jöfn tækifæri allra barna til þátttöku — óháð búsetu eða efnahag.
Atvinnulíf og nýsköpun eru drifkraftur samfélagsins. Við viljum efla samtal og samvinnu við atvinnulíf og frumkvöðla á svæðinu og skapa skilyrði til uppbyggingar með góðu skipulagi og aðgengi að nauðsynlegum innviðum. Við sjáum mikil tækifæri í frekari nýtingu orku á svæðinu og í uppbyggingu ferðaþjónustu, sérstaklega utan háannatíma. Þar getur þróun millilandaflugs til Egilsstaða orðið lykilforsenda frekari vaxtar og verðmætasköpunar á Austurlandi og þá þróun viljum við styðja af krafti.
Að lokum leggjum við mikla áherslu á sýnileika Múlaþings út á við og öfluga hagsmunagæslu. Sveitarfélag sem er langt frá miðlægum stjórnvöldum þarf að láta rödd sína heyrast skýrt og ákveðið. Atburðir síðustu mánaða hafa sýnt okkur það betur en margt annað. Hagsmunir Austurlands mega aldrei gleymast í umræðunni á höfuðborgarsvæðinu. Við þurfum að tala oftar, hærra og á fleiri stöðum fyrir samfélagið okkar.
Framboð Miðflokksins í Múlaþingi er teymi fólks úr samfélaginu okkar sem býður sig fram til góðra verka. Við leggjum áherslu á jákvætt hugarfar, samvinnu og aukið samtal við íbúa og atvinnulíf. Við sjáum fjölmörg tækifæri til vaxtar og framfara í Múlaþingi og við erum tilbúin að fylgja þeim eftir af krafti.
Tækifærið er núna.
Setjum X við M á kjördag.
Virðingarfyllst,
Lárus Bjarnason
Oddviti Miðflokksins í Múlaþingi



