Miðflokkurinn í Múlaþingi

Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Borgarfjörður (eystri), Djúpivogur

Frambjóðendur í Múlaþingi

1. sæti

Lárus Bjarnason

Lögfræðingur og fyrrverandi sýslumaður
2. sæti

Hannes Karl Hilmarsson

Afgreiðslustjóri
3. sæti

Stefán Bragi Birgisson

Bóndi og götumálari
4. sæti

Jóhann Halldór Harðarson

Ráðgjafi
5. sæti

Guðmunda Vala Jónasdóttir

Leikskólastjóri
6. sæti

Viðar Gunnlaugur Hauksson

Framkvæmdastjóri
7. sæti

Ingibjörg Lárusdóttir

Kennari
8. sæti

Gestur Bergmann Gestsson

Bóndi
9. sæti

Berglind Sveinsdóttir

Vaktstjóri
10. sæti

Erlingur Hjörvar Guðjónsson

Rafmagnsiðnfræðingur
11. sæti

Regína Margrét Friðfinnsdóttir

Eldri borgari
12. sæti

Ingunn Anna Þráinsdóttir

Grafískur hönnuður
13. sæti

Óli Stefánsson

Ýtustjóri
14. sæti

Guðjón Sigmundsson

Vélvirkjameistari
15. sæti

Benedikt V. Warén

Rafeindavirkjameistari
16. sæti

Sigurður Alex Sigurgeirsson

Meistari
17. sæti

Harpa Hlín Jónasdóttir

Skólaliði
18. sæti

Stefán Scheving Einarsson

Verkamaður
19. sæti

Grétar Heimir Helgason

Rafvirkjameistari
20. sæti

Sigurður Ragnarsson

Framkvæmdastjóri
21. sæti

Björn Ármann Ólafsson

Skógarbóndi
22. sæti

Gunnar Þór Sigbjörnsson

Þjónusturáðgjafi

Áherslumál

í

Múlaþingi


  • Við ætlum að ráða óháðan fagaðila til þess að vinna heildstæða úttekt á rekstri sveitarfélagsins í ljósi þess að A hluti Múlaþings var rekinn með 372 miljón króna halla árið 2025.
  • Við teljum tímabært í ljósi stöðu efnahagsmála að rýna stöðuna og greina hvar tækifæri eru til hagræðingar.
  • Kostnaður við þá úttekt næst margfalt til baka á kjörtímabilinu.
  • Við viljum fækka fulltrúum í sveitarstjórn úr 11 í 9.
  • Við göngum ekki með fyrirfram mótaðar hugmyndir um hvað hægt er að gera til að bæta reksturinn heldur viljum fá óháð stöðumat.
  • Ef til þess kemur að tekjur Múlaþings aukist af væntu frumvarpi um fasteignaskatta á orkumannvirki viljum við nýta hluta þeirra til að ýta fjárfestingum í innviðum ásamt því að greiða hraðar niður skuldir sveitarfélagins
  • Við teljum framtíðina bjarta í Múlaþingi en það dylst engum að efnahagsástandið hérlendis og á heimsvísu krefst þess að brugðist verði við versnandi ytri skilyrðum.

  • Miðflokkurinn í Múlaþingi styður áframhaldandi baráttu um Fjarðarheiðargöng
  • Framkvæmdir við flughlöð og lýsingarbúnað á Egilsstaðaflugvelli þurfa að hefjast sem fyrst.
  • Miðflokkurinn í Múlaþingi styður mikilvægi þess að vegaframkvæmdum um Öxi verði flýtt.
  • Hlutverk Múlaþings í baráttunni fyrir bættum samgöngum felst fyrst og fremst í þrýstingi og samtali við stjórnvöld landsins.
  • Einnig er nauðsynlegt að halda upplýstri umræðu um þessi stóru hagsmunamál okkar sífellt á lofti.

  • Framboð íbúðalóða verði aukið
  • Framboð atvinnulóða þarf að auka
  • Áhersla lögð á fegrun og ásýnd umhverfis okkar
  • Við teljum nauðsynlegt að ákvörðun um legu nýrrar brúar yfir lagarfljót verði unnin samhliða nýju aðskipulagi sveitarfélagins og liggi fyrir í lok kjörtímabilsins
  • Múlaþing þarf að leggja línurnar og móta stefnu sem hentar hagsmunum sveitarfélagins best.
  • Miðflokkurinn í Múlaþingi styður nýlega framkomnar hugmyndir um uppbyggingu Mennta- og íþróttamiðju Egilsstaða.
  • Tilaga að breytingum á aðalskipulagi var samþykkt á aðalfundi Hattar 2026.
  • Hér er um að ræða mál sem færir okkur sóknartækifæri í framþróun samfélagins okkar.

  • Við viljum styðja við og þróa enn frekar það öfuga og framsækna skólastarf sem er í Múlaþingi, í því samhengi leggjum við áherslu á gott náms- og starfsumhverfi í skólum þar sem fram fer gæða skólastarf í fjölbreyttu og sterku námsumhverfi
  • Efla þarf stoðþjónustu skólanna og fjölga fagstéttum sem koma að skólastarfinu og auka faglega breidd til að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem best.
  • Miðflokkurinn styður byggingu nýs Seyðisfjarðarskóla og stækkun Bjarkatúns á Djúpavogi.

  • Öflugt íþróttastarf og fjölbreytt er ein megin forsenda þess að ungt barnafólk sest að í sveitarfélaginu okkar.
  • Lýðheilsa íbúa á öllum aldri er mikilvæg og þar skiptir stuðningur sveitarfélags við íþrótta og tómstundastarf miklu máli.
  • Við viljum efla það starf enn frekar með gerð þjónustusamninga við íþróttafélög.
  • Múlaþing er íþróttasamfélag og Miðflokkurinn vill efla það enn frekar fyrir alla íbúa í sveitarfélaginu.
  • Við ætlum í samstarfi við önnur sveitarfélög á landsbyggðinni að berjast fyrir lækkun ferðakostnaðar íþróttafólks af landsbyggðinni.
  • Þátttaka í íþróttum á ekki að vera spurning um efnahag eða búsetu og börnin okkar eiga að hafa tækifæri til jafns við önnur.

  • Miðflokkurinn í Múlaþingi ætlar að auka samtal og samstarf við atvinnulífið sem er hér og frumkvöðla á svæðinu.
  • Við teljum hlutverk sveitarfélagsins vera að skapa skilyrði fyrir nýsköpun með góðu skipulagi, nægu lóðaframboði og aðgengi að nauðsynlegum innviðum.
  • Við viljum stuðla að tækifærum á nýtingu orku sem verður til hér á svæðinu til atvinnuskapandi verkefna í Múlaþingi.
  • Uppbygging á afþreyingu í ferðaþjónustu utan hánnatíma er lykilforsenda fyrir þróun millilandaflugs til Egilsstaða og við þá þróun viljum við styðja.

  • Sýnileiki Múlaþings út á við og öflug hagsmunagæsla skiptir miklu máli fyrir sveitarfélag sem er langt frá stjórnkerfi landsins.
  • Atburðir síðustu mánuða og glíman við stjórnvöld hafa sýnt okkur nauðsyn þess að láta rödd okkar heyrast hærra, oftar og víðar.
  • Við ætlum að leggja okkar af mörkum í þeirri baráttu.

TEYMIÐ

Við erum teymi fólks úr sveitarfélaginu okkar sem býður sig fram til góðra verka. Við leggjum áherslu á jákvætt hugarfar, samvinnu, aukið samtal við íbúa og atvinnulíf. Við búum yfir sterkum vilja til þess að þróa samfélagið okkar áfram. Það eru ýmis tækifæri til vaxtar í Múlaþingi og Miðflokkurinn er tilbúinn til að fylgja þeim eftir af krafti.

Tækifærið er núna!

Fréttir & tilkynningar

Kosningaskrifstofa:
Kynnt síðar
Kosningastjóri:
Jóhann Halldór Harðarson
Netfang:
mulathing@midflokkurinn.is
Símanúmer:
894-8123

Gaktu í lið með Íslandi.

Sýndu að þú sért stuðningsmaður.

Styrktu starf Miðflokksins