• Vöfflukaffi – Vöfflukaffi 18. Maí nk.

    Vöfflukaffi verður sunnudaginn 18. Maí nk. Kl. 14. Í Hamraborg 1 Kópavogi. Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi sendiherra fer yfir stöðuna í alþjóða- og öryggismálum. Albert er einn okkar helsti sérfræðingur í alþjóðamálum og hokinn af reynslu svo búast má við áhugaverðum fyrirlestri og umræðum. Allir velkomnir að hlusta, spyrja og njóta góðra veitinga. Miðflokkurinn.

  • Samtal við Kópavogsbúa

    Miðflokksdeild Kópavogs býður í vöfflur og samtal um framtíð bæjarins okkar. Hvernig viljum við sjá þróun Kópavogs?Borgarlína? Bíllaus lífstíll? Þétting byggðar? Allt þetta og fleira rætt. Nanna Margrét og Bergþór Óla, þingmennirnir okkar í kjördæminu, taka þátt í umræðum. Hlökkum til að sjá ykkur, allir velkomnir!

  • Samtal um stjórnmál með Sigmundi Davíð

    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins fer yfir stjórnmálin þriðjudagskvöldið 10. Júní kl. 20.00- 21.30 í húsnæði Miðflokksins Hamraborg 1. Allir velkomnir. Boðið verður upp á kaffi og vöfflur. (Með þessum fundi lýkur skipulögðum fundum fyrir sumarleyfi.) Miðflokkurinn.

  • Sumargrill Miðflokksins á Grenivík!

    Samkomuhúsið á Grenivík

    Sumargrill Miðflokksins á Grenivík verður haldið laugardaginn 16. ágúst 2025 kl 18:00 í samkomuhúsinu á Grenivík. Glens og gaman eins og okkur Miðflokksfólki er einum lagið! Þeir allra hörðustu mæta á svæðið með útilegugræjur því tjaldstæðið á Grenivík er hið allra besta og fallegt þar um að litast, fínt þjónustuhús og sturtur.  En sundlaugin er […]

  • Vöfflukaffi Miðflokksins

    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður gestur í vöfflukaffi Miðflokksins sunnudaginn 21. september kl. 14:00 í Hamraborg 1, Kópavogi. Allir velkomnir!

  • Aðalfundur Ungliðahreyfingar Miðflokksins

    Aðalfundur Ungliðahreyfingar Miðflokksins verður haldinn 23. september nk. kl. 19.30 í húsnæði Miðflokksins Hamraborg 1 Kópavogi Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Hvetjum alla áhugasama til að mæta og taka þátt í starfnu Stjórnin.

  • VÖFFLUKAFFI – VÖFFLUKAFFI laugardaginn 4. október kl. 10.00

    Vöfflukaffi verður kl. 10.00 nk. Laugardag 4. október Í Hamraborg 1 Kópavogi. Umræðuefnið er: "Fjármálalæsi, fjártækni og sérkenni íslenska fjármálakerfisins" Góðir gestir koma frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) og fræða okkur. Gústaf Steingrímsson, hagfræðingur SFF, Ingvar Haraldsson, greininga- og samskiptastjóri SFF og Íris Hreinsdóttir, yfirlögfræðingur SFF. Gott tækifæri til að hlusta á sérfræðinga fræða […]

  • Landsþing Miðflokksins

    Hilton Reykjavík Nordica

    Kæru félagar. Nú styttist i Landsþingið sem fer fram 11. – 12. Október á Hótel Hilton Reykjavik Nordica í Reykjavík. Landsþingið er opið öllum flokksmönnum en fulltrúar tilnefndir af kjördæmafélögunum og þeir sem eru sjálfkjörnir skv. lögum flokksins hafa atkvæðisrétt. Þeir flokksmenn sem óska þess að vera tilnefndir snúi sér til síns kjördæmafélags. Á heimasíðu […]

  • Skráning á Landsþing og hátíðarkvöldverð

    Til þátttöku á Landsþingi og hátíðarkvöldverði verður að skrá sig í gegnum hlekkinn hér að neðan og greiða þinggjaldið og fyrir kvöldverðinn. Þinggjaldið er kr. 8900.- og fyrir hátíðarkvöldverð kr. 13.900.-  UPPSELT ER Á HÁTÍÐARKVÖLDVERÐINN Þú velur fjölda miða á hvorn viðburð fyrir sig og fylgir svo leiðbeiningum um hvernig greitt er. Ef greitt er […]