Kosningavaka Miðflokksins á Sauðárkróki

Mælifelli á Aðalgötu

Kosningavaka Miðflokksins á Sauðárkróki fer fram í Mælifelli á Aðalgötu. Húsið opnar kl 21. Allir velkomnir að mæta og fagna með okkur 🎉  

Kosningavaka Miðflokksins á höfuðborgarsvæðinu

Valsheimilið, Hlíðarenda, 102 Reykjavík

Kosningavaka Miðflokksins fer fram í Valsheimilinu!  Sigmundur Davíð stígur á stokk og svo verður fylgst með velgengni flokksins í kosningasjónvarpinu. Húsið opnar kl 21. Bar á staðnum og allir velkomnir að fagna með okkur!

Kosningavaka Miðflokksins á Akureyri

Vitinn, Strandgötu 53, Akureyri

Það verður stuð og stemmari 🎉 Allir velkomnir að fagna með okkur í kosningamiðstöð okkar í Vitanum. Húsið opnar kl 21.

Vöfflukaffi Miðflokksins 9. febrúar

Hamraborg 1, Kópavogi

Vöfflukaffi sunnudaginn 9. feb. kl. 14 í Hamraborg 1, Kópavogi. Bergþór Ólason, þingflokksformaður og oddviti Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, og Snorri Másson, oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, fara yfir stöðuna við upphaf ný þings. Allir velkomnir að njóta góðra veitinga og fjörugrar umræðu.

Þorrablót Miðflokksins

Þorrablót Miðflokksins verður haldið laugardaginn 15. febrúar á Fjörukránni í Hafnarfirði. Blótið hefst kl. 19:00 og má gera ráð fyrir rammíslenskri og ljúffengri matarveislu í bland við þjóðlega lifandi íslenska tónlist og fjölbreytt skemmtiatriði. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flytur minni kvenna og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir flytur minni karla. Þorsteinn Sæmundsson stýrir veislunni og Bergþór Ólason verður […]

6900kr.

Vöfflukaffi Miðflokksins 23. feb

Vöfflukaffi í Hamraborg 1. sunnudaginn 23. febrúar nk. kl. 14.00. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi og Ingibjörg Davíðsdóttir þingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi eru frummælendur. Allir velkomnir að koma og hlýða á þingmennina, spyrja þær spurninga og gæða sér á hinum viðfrægu vöfflum.