Aðalfundur Miðflokksdeildar Mosfellsbæjar verður haldinn 29. apríl

Stjórn Miðflokksdeildarinnar í Mosfellsbæ boðar til aðalfundar deildarinnar þriðjudaginn 29. apríl 2025 í Helgadal, 271 Mosfellsbæ kl. 19:00. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar 2. Kosning formanns, tveggja stjórnarmanna og tveggja varamanna 3. Kosning þriggja í uppstillingarnefnd 4. Önnur mál Stjórnin

UPPFÆRT ! Aðalfundur Miðflokksfélags Suðvesturkjördæmis verður 30. apríl

Miðflokksfélag Suðvesturkjördæmis heldur aðalfund miðvikudaginn 30. apríl kl. 20.00 í húsnæði Miðflokksins, Hamraborg 1 Kópavogi. Venjuleg aðalfundarstörf. Framboðum til formanns og stjórnar skal skilað á netfangið kraginn@midflokkurinn.is tveimur vikum fyrir aðalfund, eða fyrir kl 20:00 miðvikudaginn 16. apríl 2025. Stjórnin.

Miðflokkfélag Norðausturkjördæmis – Aðalfundur 3. maí

Miðflokksfélag Norðausturkjördæmis heldur aðalfund 3. maí nk. kl. 11. 30 á Sel Hótel Mývatni. Venjuleg aðalfundarstörf. Framboðum til formanns og í stjórn skal skilað á netfangið nordaustur@midflokkurinn.is tveimur vikum fyrir aðalfund, eða fyrir kl 12:00 laugardaginn 19. apríl 2025. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður og þingmaður Miðflokksins mun ávarpa fundinn. Einnig verða á staðnum Þorgrímur Sigmundsson […]

Aðalfundur Miðflokksdeildar Árborgar verður haldinn 6. maí

Boðað er til aðalfundar Miðflokksdeildar Árborgar þriðjudaginn 6. maí kl. 20.00 í Betri Stofunni á Hótel Selfossi. Venjuleg aðalfundarstörf Gestir fundarins verða Karl Gauti Hjaltason alþingismaður og Heiðbrá Ólafsdóttir varaþingmaður Allir velkomnir Stjórnin.

Sveitarstjórnarmál í brennidepli – Ráðstefna Miðflokksins sunnudaginn 11. maí 2025

Sveitarstjórnarmál í brennidepli – Ráðstefna Miðflokksins Sunnudagur 11. maí 2025 kl. 13:00. Húsnæði Miðflokksins Hamraborg 1, Kópavogi Sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí 2026. Nú er rétti tíminn til að hvetja til umræðu, virkja þátttakendur og auka meðvitund um hlutverk sveitarfélaga og þau tækifæri sem felast í öflugri nærstjórnsýslu. Miðflokkurinn boðar til opinnar ráðstefnu þar sem […]

Aðalfundur Miðflokksdeildar Akraness varður haldinn 12. Maí.

Aðalfundur Miðflokksdeildar Akraness verður haldinn  mánudaginn 12. maí kl. 20.00 Fundurinn veður rafrænn og fer fram á Zoom. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Þeir sem áhuga hafa á að bjóða sig fram til setu í stjórn deildarinnar geta sent skilaboð á facbook síðu deildarinnar: https://www.facebook.com/midflokkurinnakranesi Hlekkur á fundinn verður birtur síðar á facebook síðu deildarinnar. Stjórnin.

Vöfflukaffi – Vöfflukaffi 18. Maí nk.

Vöfflukaffi verður sunnudaginn 18. Maí nk. Kl. 14. Í Hamraborg 1 Kópavogi. Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur og fyrrverandi sendiherra fer yfir stöðuna í alþjóða- og öryggismálum. Albert er einn okkar helsti sérfræðingur í alþjóðamálum og hokinn af reynslu svo búast má við áhugaverðum fyrirlestri og umræðum. Allir velkomnir að hlusta, spyrja og njóta góðra veitinga. Miðflokkurinn.