Verjumst aðför að fullveldi Íslands

Ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar leggur til á Alþingi í dag að fullveldi Íslands og vald löggjafans verði skert til framtíðar. Með frumvarpi utanríkisráðherra um bókun 35 er verið að taka lagasetningarvaldið úr höndum íslenska löggjafans og afhenda það embættismönnum í Evrópu.

Miðflokkurinn stendur vörð um fullveldi Íslands og leggur allt kapp næstu daga í að vinda ofan af enn annarri og alvarlegri feigðarför ríkisstjórnarinnar. Hagsmunir íslensku þjóðarinnar eru undir og Miðflokkurinn mun hvergi hvika í þeirri baráttu.

Það var forsenda fyrir því að Ísland lögfesti EES-samninginn á sínum tíma að þjóðin gæti hafnað innleiðingu á regluverki ef það gengi gegn hagsmunum Íslands eða ætti ekki við. Bókun 35 kippir þeirri forsendu úr sambandi.

Það skiptir sköpum fyrir Ísland að geta nýtt fullveldisrétt sinn til að takast á við oft erfiðar aðstæður sem upp koma. Sem dæmi má nefna árin eftir efnahagshrunið þar sem ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar nýtti fullveldisrétt Íslands í stríðinu við slitabú bankanna og tryggði að Ísland kom best allra þjóða út úr þeim ógöngum.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur vill veikja stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og auka þannig líkurnar á inngöngu í sambandið á síðari stigum. Miðflokkurinn vill styrkja fullveldisréttinn og framtíðarmöguleika þjóðarinnar á öllum sviðum.

Það munar um Miðflokkinn.

Hér má nálgast nefndarálit Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, um bókun 35 en það birtist á vef Alþingis 6. júní 2025.