

Ungmennafélagsandinn í útrýmingarhættu
Nú hefur frjálsum íþróttum verið úthýst úr Laugardalnum, einnig hefur fullur löglegur frjálsíþróttavöllur verið fjarlægður að Varmá í Mosfellsbæ. Með þessum ákvörðunum hefur þrengst að frjálsum Íþróttum á höfuðborgarsvæðinu. Frjálsar Íþróttir hafa verið bakbeinið í starfi Ungmennafélagshreyfingarinnar . Frábært barna og unglingastarf hefur verið aðalsmerki Unmennasaband Íslands.úr lögum UMFÍ
„Vinna að aukinni fræðslu og forvörnum gegn neyslu á skaðlegum efnum.“ Þátttaka barna og ungmenna er aðalatriðið en kepppnin sjálf er bara bónus. „Allir með.“
Gríðarlegar breytingar hafa orðið síðustu ár og boltagreinar hafa haft betur í huga bæjar og borgarstjórna, Sjáfsagt er að selja áfengi á íþróttaviðburðum, sérstök herrakvöld, kvennakvöld Þorrablót og ekki þykir óeðlilegt að neysla áfengis tengist beint íþróttamönnum í íþróttamannvirkjum strax eftir keppni. Ungmenni fá samning með einhverskonar launum eða fyrirgreiðslu og miskunarlaust er valið í aðallið og öðrum hafnað. Þarna er íþróttahreyfingin á rangri leið varðandi forvarnargildi og þátttöku barna. Ofurlaun þjálfara og leikmanna í efstu deildum er líklega ein ástæðan fyrir þessari slæmu þróunn.
Endurvekjum hinn sanna ungmennafélagsanda á höfuðborgarsvæðinu. „Íslandi allt er kjörorð UMFÍ.“
Hjalti Árnason, frambjóðandi Miðflokksins í Mosfellsbæ.
Greinin birtist á Vísir.is 8. maí, 2026



