Til móts við nýja tíma 

Stjórnmál eiga að snúast um hagsmuni þjóðarinnar, einstaklinga og atvinnulífs, á grunni skýrrar hugmyndafræði. Miðflokkurinn vill breyta stöðunni í efnahagsmálum, útlendingamálum og orkumálum en einnig í húsnæðismálum þar sem ráðist verði á rót vandans. Þá viljum við rjúfa áratuga kyrrstöðu í nauðsynlegri uppbyggingu samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu í stað þess að festa hana í sessi vítahrings óraunhæfra og kostnaðarsamra hugmynda borgarlínunnar. 

Við stöndum fyrir innihald umfram umbúðir. Við þurfum að standa vörð um fullveldi landsins, íslenska tungu og menningu. Við leggjum áherslu á lausn verkefnanna á grundvelli þess hvað sé skynsamlegt þar sem virðing er borin fyrir samhenginu milli velferðar og öflugs atvinnulífs. 

1. Heildstæð nálgun á efnahagsmál og atvinnulíf

Miðflokkurinn vill draga úr óþarfa ríkisútgjöldum og stöðva viðvarandi halla á ríkissjóði undanfarin 7 ár. Ábyrg ríkisfjármál þýða lækkun vaxta og verðbólgu sem í dag er stærsta velferðarmálið. Við viljum efla nýsköpun og styrkja sjálfstæði atvinnulífsins og hlúa að öllum fjórum útflutningsstoðum landsins. 

2. Ábyrg innflytjendastefna sem tekur mið af íslenskum veruleika

Miðflokkurinn vill heildarendurskoðun laga um hælisleitendur svo þau taki raunverulega mið af getu samfélagsins til að taka á móti hælisleitendum í stað óstjórnar síðustu ára. Afnema þarf sérreglur íslenska hælisleitendakerfisins með sama hætti og þær hafa verið afnumdar á hinum Norðurlöndunum. Kerfið á ekki virka eins og segull sem skapað hefur ástand sem dregur hingað til lands þúsundir hælisleitenda með gríðarlegu álagi á alla okkar grunninnviði og jafnvel misnotkun þeirra. 

3. Orkumál og umhverfisvernd

Miðflokkurinn styður umhverfisvernd byggða á tækni, vísindum og heilbrigðri skynsemi. Við teljum mikilvægt að nýta umhverfisvæna innlenda orku til að auka lífskjör á Íslandi. Við getum aukið orkuframleiðslu, bætt flutningskerfið og nýtt virkjanir og orkukosti betur til að bæta kjör landsmanna. Til að standa undir velferð þarf vélin að virka. 

Stjórnmálin eru á krossgötum og það eru viðbrögðin sem skipta öllu máli fyrir framhaldið. Þau geta ekki farið lengur fram í tómarúmi aðgerðaleysis og stjórnlausra ríkisútgjalda. Það þarf að virkja, byggja og sýna aðhald í ríkisrekstri. Ég býð mig fram fyrir Miðflokkinn vegna þess að ástandið kallar á mig með sama hætti og það gerði þegar ég barðist gegn því að skattgreiðendur greiddu ólögvarðar kröfur Icesave. Þá tókst að beygja skútuna í rétta átt. Við getum gert betur og höfum gert það áður. Það munar um Miðflokkinn. 

Eiríkur S. Svavarsson,

höfundur er í 3. sæti á lista Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.