

„Þetta er aðlögun að Evrópusambandinu sem gengur lengra en mörg aðildarlönd sætta sig við”
Á morgun, þriðjudaginn 21. apríl, mun dómsmálaráðherra mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum (verndarsamkomulag Evrópusambandsins).
Þetta er frumvarp er hluti að aðlögun Íslands að Evrópusambandinu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hafði þetta að segja um frumvarpið.
„Með frumvarpinu fallast íslensk stjórnvöld á að afnema Dyflinarreglugerðina sem er eitt af því sem hefur gefið okkur kost á að hafa betri stjórn á landamærunum en nokkuð annað vestrænt ríki, ef við bara nýttum okkur reglurnar.”
„Eflaust verður því haldið fram að samhliða innleiðingu eigi að fylgjast betur með komum fólks. ESB hefur reynt slíkt árum saman án árangurs. Eftir mun standa að búið verður að gefa ESB sjálfdæmi um hverjir verði sendir til Íslands frá stjórnlausum landamærum sambandsins að viðlögðum sektum.
Eftir það getur ESB breytt reglunum og kvótunum að vild. Þetta er aðlögun að Evrópusambandinu sem gengur lengra en mörg aðildarlönd sætta sig við þótt ekki hafi einu sinni farið fram atkvæðagreiðsla um hvort Íslendingar vilji sækjast eftir aðild.”
Jafnframt sagði Sigmundur Davíð:
„Það er með einstökum ólíkindum að á meðan ESB lönd andmæla áformum framkvæmdastjórnarinnar í Brussel um sameiginlegan hælisleitendapakka skuli íslensk stjórnvöld leggja fram frumvarp um að við tökum þátt í pakkanum. Nýverið aftók utanríkisráðherra Lettlands, Baiba Braže, með öllu að land hennar tæki við hælisleitendum frá ESB eða greiddi sektir fyrir að gera það ekki.”
„Strax að loknum þingkosningum í Ungverjalandi lýsti Péter Magyar, sigurvegari kosninganna, því yfir að hann myndi hafna pakkanum og herða varnir á landamærunum.
Við þær aðstæður ákveður ríkisstjórn Íslands að gefa sig embættismönnum í Brussel á vald í útlendingamálum.”
Þingflokkur Miðflokksins mun verja fullveldið og ræða frumvarpið með málefnalegum hætti.



