

Tækifæri
Það er mikið talað um tækifæri í þessari kosningabaráttu. Að þau séu til staðar. Minna hefur
verið rætt um hver þessi tækifæri eru í raun og hvernig þau geta skilað betra samfélagi fyrir
okkur sem búum hér í Suðurnesjabæ.
Sterkt atvinnulíf er grunnurinn að öflugu sveitarfélagi. Það eru fyrirtækin sem skapa störf,
greiða útsvar og leggja grunn að þeirri þjónustu sem íbúar eiga rétt á að fá. Án öflugs
atvinnulífs verður erfitt að byggja upp samfélag þar sem fólk vill búa, ala upp börn sín og sjá
framtíð fyrir sér.
Það er áhyggjuefni að vöxtur atvinnulífs í Suðurnesjabæ hefur verið takmarkaður undanfarin
ár. Þrátt fyrir góða staðsetningu, nálægð við alþjóðaflugvöll og fjölmarga möguleika hefur
ekki tekist að laða hingað nægilega mörg fyrirtæki eða skapa þann kraft sem þarf til
framtíðaruppbyggingar.
Við getum ekki eingöngu treyst á tekjur sem tengjast Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Sveitarfélag
sem vill vaxa og standa undir góðri þjónustu þarf fjölbreyttara atvinnulíf og fleiri stoðir undir
rekstrinum. Það kostar mikið að reka sveitarfélag og ef við viljum halda úti góðum
leikskólum, skólum, íþróttastarfi, þjónustu við eldri borgara og öflugum innviðum þá þarf
auknar tekjur inn í samfélagið.
Þess vegna þarf atvinnuuppbygging að vera eitt stærsta forgangsmál sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn á ekki að bíða eftir að tækifærin komi af sjálfu sér. Hún þarf að sækja þau. Við
þurfum fólk með framtíðarsýn, frumkvæði og skapandi hugsun sem sér möguleikana á
svæðinu, kynnir þá af krafti og vinnur markvisst að því að laða hingað fyrirtæki og
fjárfestingu.
Miðflokkurinn vill efla atvinnulíf í Suðurnesjabæ með raunhæfum aðgerðum. Við viljum
styðja betur við þau fyrirtæki sem hér eru nú þegar starfandi og nýta þjónustu þeirra þegar
sveitarfélagið framkvæmir verkefni. Í mörgum tilfellum væri hægt að gera verðkannanir
meðal heimafyrirtækja í stað þess að fara í kostnaðarsöm útboð sem taka tíma og fjármuni úr
samfélaginu.
Þannig getum við bæði sparað fjármuni sveitarfélagsins og styrkt okkar eigin atvinnulíf á
sama tíma. Þegar sveitarfélagið verslar við fyrirtæki í heimabyggð skilar það sér aftur til samfélagsins í formi starfa, skatttekna og aukinnar veltu. Það er fjárfesting í okkar eigin
samfélagi.
Við eigum fjölmarga öfluga atvinnurekendur, iðnaðarmenn og þjónustufyrirtæki sem hafa
sýnt fram á gæði, fagmennsku og metnað. Sveitarfélagið þarf að vera virkur samstarfsaðili
þeirra, ekki fjarlæg stjórnsýsla.
Suðurnesjabær hefur alla burði til að verða öflugt og eftirsótt sveitarfélag til framtíðar. En það
gerist ekki af sjálfu sér. Það þarf skýra stefnu, kjark til að hugsa stærra og fólk sem er tilbúið
að vinna markvisst að uppbyggingu.
Við þurfum að glæða lífi í sveitarfélagið, skapa fleiri störf, fjölga tækifærum fyrir ungt fólk
og byggja samfélag sem stendur sterkt til framtíðar. Það er verkefni sem við eigum að
sameinast um.
Erla Jóhannsdóttir, skipar 3. sæti á lista Miðflokksins í Suðurnesjabæ.



