Sterkara atvinnulíf í heimabyggð

Tengd sveitarfélög:

Að Norðurþing beini vörukaupum, þjónustu og verktöku að heimaaðilum, þar sem því verður við komið, er lykilatriði í að styrkja atvinnulíf á svæðinu. Með því að beina viðskiptum til fyrirtækja í heimabyggð skapast fleiri störf og aukin verðmætasköpun sem nýtist samfélaginu í heild.

Stuðningur við þjónustu og verslun

Verslanir og þjónustuaðilar eru hluti af grunnstoðum samfélagsins og áhrifavaldur við val á búsetu. Ef sveitarfélagið velur að skipta við heimafyrirtæki á öllu starfssvæðinu eykur það líkur á að þessi starfsemi haldist öflug. Þannig tryggjum við að íbúar hafi áfram aðgang að fjölbreyttri og nauðsynlegri þjónustu í nærumhverfi sínu.

Stöðugt framkvæmdastig skiptir máli

Mikilvægt er að viðhalda lágmarks framkvæmdastigi hjá Norðurþingi til að styðja við tilveru og þróun fyrirtækja á sviði verktöku, iðnaðar og tengdrar þjónustu. Ef framkvæmdir sveiflast of mikið getur það grafið undan rekstrargrundvelli fyrirtækja, dregið úr fjárfestingu og leitt til þess að þekking og geta tapist úr samfélaginu.

Á síðustu árum hafa innviðir í Norðurþingi farið illa. Víða má líta illa viðhaldin hús, götur og umhverfi sem kunna að liggja undir skemmdum og munu þá valda sveitarfélaginu ómældu fjárhagstjóni.

Á sama tíma hafa endurbætur og viðhald verið í lágmarki. Margir verktakar hafa dregið verulega saman og mörg fyrirtæki í verktakaiðnaði standa nú mjög veikt vegna þessa.

Sveiflujöfnun og forgangsröðun

Sveitarfélagið gegnir lykilhlutverki í að jafna sveiflur í atvinnulífinu. Á samdráttarskeiðum ætti að auka framkvæmdir til að viðhalda atvinnu og virkni í hagkerfinu í Norðurþingi. Þegar atvinnulífið er hins vegar í vexti er skynsamlegt að Norðurþing dragi saman.
Það er skýr stefna X-M Lista Samfélagsins að fresta ekki arðbærum framkvæmdum eða nauðsynlegu viðhaldi og endurbótum innviða sem eru að láta á sjá, þó að slíkar framkvæmdir skapi ekki skyndivinsældir og vígsluathafnir með borðum og veislum.

Hendur fram úr ermum

Þessi árin erum við bæði að sjá áralanga vanrækslu í endurbótum og viðhaldi eigna Norðurþings. Mörg hús eru nú þegar alvarlega skemmd og fleiri liggja undir skemmdum. Á sama tíma eru verktakarnir okkar og iðnaðarmenn að upplifa eitt versta ár í sinni sögu í áratug. Lítil verkefni og engin framtíðarsýn hjá Norðurþingi, uppsagnir s.l. árið og hætta á að fyrirtæki leggist af.

Samvinna við atvinnulífið

Við viljum vinna með atvinnulífinu, hlusta á þarfir þess og taka ábyrgar ákvarðanir. Með markvissri sveiflujöfnun og stöðugleika í framkvæmdum og viðhaldi byggjum við upp sterkara og sjálfbærara samfélag. Skoða þarf frekari samvinnu við atvinnulífið t.d. með gagnkvæmri upplýsingamiðlun, skýrum stefnum, fyrirsjáanleika og skilvirkni við framkvæmd áætlana sem settar hafa verið.

Ábyrg stefna til framtíðar

Þessi áhersla er hluti af stefnu M-Lista Samfélagsins og endurspeglar skýra framtíðarsýn okkar í þessu efni. Með því að styðja heimaaðila; vörur, þjónustu, verktaka og viðskipti, er verið að fjárfesta í stöðugleika, sjálfbærni og sterkari innviðum sem nýtast komandi kynslóðum.

Við erum klár til verka!

Elín Guðmundsdóttir bókari, skipar 3.s æti á xm-Lista Samfélagsins.

Greinin birtist á husavik.com 26. apríl, 2026