Lýðheilsubærinn Garðabær

Tengd sveitarfélög:

Lýðheilsa er eitt það mikilvægasta sem sveitarfélag getur stuðlað að. Hún er grunnurinn að góðu lífi og hefur áhrif á allt sem á eftir kemur, hvort sem litið er til námsárangurs, andlegrar heilsu, atvinnuþátttöku eða félagslegrar virkni. Góð lýðheilsa stuðlar að öflugu og þróttmiklu samfélagi. Þess vegna viljum við í Miðflokknum að Garðabær verði fyrirmyndarsveitarfélag þegar kemur að þessum málaflokki.

Heilbrigt líferni byggist á varanlegum venjum og jákvæðu viðhorfi til hreyfingar sem hver og einn tileinkar sér sjálfur, og það kallar á vitundarvakningu í samfélaginu öllu. Bærinn á að leggja sitt af mörkum með því að bjóða upp á reglulega fræðsluerindi um heilbrigt líferni fyrir bæjarbúa og foreldra, þar sem sérfræðingar miðla hagnýtum upplýsingum um næringu, hreyfingu, svefn og andlega líðan. Foreldrar eru fyrirmyndirnar sem mestu máli skipta í lífi barnanna, og með því að styðja þá í þessu hlutverki styðjum við um leið næstu kynslóð.

Fleiri íþróttatímar og matráðar í skólum

Auka þarf möguleika barna til hreyfingar í grunnskólum bæjarins með fjölgun íþróttatíma fyrir þá sem vilja. Þrír tímar á viku eru góð byrjun en duga ekki þeim sem þurfa meiri hreyfingu innan skóladagsins. Um leið þarf að endurskoða inntak skólaíþróttanna og færa áhersluna frá keppnisvæðingu, sem á betur heima í hefðbundnum íþróttum, yfir á almenna hreyfingu og heilbrigt líferni. Raunverulegt lýðheilsustarf hlýtur að miða að því að kenna börnum og ungmennum að njóta hreyfingar og taka sjálf ábyrgð á eigin heilsu út ævina. 

Máltíðir í skólum eru annað grundvallaratriði. Það er eitt mikilvægasta sem sveitarfélagið getur gert að tryggja að börnin okkar fái fyrsta flokks mat yfir skóladaginn, eldaðan úr hreinum hráefnum án gerviefna og óþarfra aukefna. Matráður sem eldar heilnæman og næringarríkan mat úr íslenskum hráefnum í hverjum skóla er fjárfesting sem skilar sér margfalt til baka, bæði í bættri heilsu barnanna og betri einbeitingu í námi.

Fjölgreinapassi, afrek og almennar íþróttir

Til að auðvelda börnum í 1.-4. bekk að finna sína íþróttagrein viljum við skoða að þróa fjölgreinapassa með Stjörnunni sem gefur þeim færi á að prófa sig áfram í mismunandi greinum áður en þau velja sér þá sem þeim hugnast best. Passinn myndi lækka kostnað fyrir fjölskyldur og tryggja að sem flest börn finni sig í einhverri tegund skipulagðrar hreyfingar.

Þegar markmiðið er að halda sem flestum í hreyfingu þurfum við líka að mæta ungmennunum þar sem þau eru stödd. Brottfall úr íþróttum er mikið þegar krakkar byrja í framhaldsskóla, enda eykst æfingamagn á sama tíma og kröfur í námi vaxa. Þarna þarf að styðja Stjörnuna í að bjóða upp á hópa þar sem afrekið er ekki markmiðið og færri æfingar í viku en meiri áhersla lögð á félagsskap og heilbrigt líferni í staðinn. 

Um leið eigum við að tryggja að kostnaður standi ekki í vegi fyrir þeim sem vilja ná lengst. Þau sem komast í landslið í sinni grein og keppa á stórmótum fyrir hönd lands og þjóðar eiga ekki að þurfa að greiða úr eigin vasa, og bærinn mun styrkja þau til að mæta kostnaði.

Lýðheilsa alla ævi

Lýðheilsan er verkefni alla ævina og endar ekki þegar þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi lýkur. Við viljum styðja eldri borgara í bænum með því að halda áfram að bjóða upp á fjölbreytt námskeið fyrir þennan hóp og fjölga þeim enn frekar. Hreyfing, félagsskapur og virk þátttaka í samfélaginu eru lykilþættir í farsælli elli og skipta sköpum fyrir lífsgæði þeirra sem hafa skilað sínu dagsverki.

Garðabær á að vera bær þar sem heilbrigt líferni er í fyrirrúmi og hluti af daglegu lífi, frá leikskólaaldri til efri ára. Með markvissum aðgerðum í grunnskólum, betri næringu, stuðningi við íþróttaiðkun og þjónustu fyrir alla aldurshópa getum við byggt upp samfélag þar sem bæjarbúar lifa og njóta lengur og betur.

Anton Sveinn McKee skipar 5. sæti á lista Miðflokksins