Lausnargjald ríkisstjórnarinnar – 240 milljónir?

Styrkja­mál Flokks fólks­ins (FF), sem gár­ung­arn­ir kalla nú Fé­lag fólks­ins, geta farið nærri því að fella rík­is­stjórn­ina áður en þingið, hvers hún sit­ur í skjóli, hef­ur komið sam­an til fyrsta fund­ar. Vafa­laust verður það þó ekki raun­in, staðreynd­in er …

Styrkja­mál Flokks fólks­ins (FF), sem gár­ung­arn­ir kalla nú Fé­lag fólks­ins, geta farið nærri því að fella rík­is­stjórn­ina áður en þingið, hvers hún sit­ur í skjóli, hef­ur komið sam­an til fyrsta fund­ar.

Vafa­laust verður það þó ekki raun­in, staðreynd­in er samt sú að leik­hús fá­rán­leik­ans sem blasti við blaðamönn­um sem biðu ráðherra eft­ir rík­is­stjórn­ar­fund síðastliðinn föstu­dag bend­ir til að ráðherr­arn­ir hlaupi nú um eins og haus­laus­ar hæn­ur á flótta und­an sjálf­um sér vegna máls­ins.

Í frá­sögn af fund­in­um var því lýst þannig að Inga Sæ­land hefði farið eins og ís­brjót­ur í gegn­um hjörð blaðamanna með það að mark­miði að kom­ast í skjól lyft­unn­ar áður en nokk­ur þeirra sem þangað kom til að eiga við hana orðastað gat komið frá sér spurn­ingu.

Næst­ur hljóp í gegn­um hjörðina sam­gönguráðherr­ann, gólandi að hann væri svang­ur og yrði að fá eitt­hvað að borða, uns hann komst í skjól lyft­unn­ar góðu. Væru þau fjög­urra ára í elt­inga­leik, þá væri lyft­an þeirra „safe zone“.

Það sem vakti þó mesta at­hygli var að for­sæt­is­ráðherra skyldi hafa vikið sér und­an að ræða styrkja­mál FF, enda málið aug­ljós­lega hápóli­tískt en ekki tækni­legt úr­lausn­ar­efni fagráðherra, sem í þessu til­viki er sá eini ókosni í hópn­um og eins und­ar­lega og það kann að hljóma, sá sem átti einn að svara fyr­ir málið eft­ir fund rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

En nú reyn­ir á. Verður fyrsta lausn­ar­gjaldið fyr­ir líf þess­ar­ar rík­is­stjórn­ar að ekki verði gerð end­ur­greiðslukrafa á þá fjár­muni sem FF fékk úr rík­is­sjóði án þess að vera til þess bær? Án þess að upp­fylla skil­yrði sem formaður FF var sjálf­ur flutn­ings­maður að í frum­varpi 2021 og hef­ur und­an­bragðalaust geng­ist við að FF upp­fylli ekki?

Heyk­ist fjár­málaráðherra á að gera slíka end­ur­kröfu þá er stutt í umræðu um ráðherra­ábyrgð og eft­ir at­vik­um van­traust. Fjár­málaráðherr­um framtíðar­inn­ar yrði jafn­framt að óska góðs geng­is hvað varðar end­ur­heimt­ur á of­greidd­um krón­um úr rík­is­sjóði. Dóm­ar­ar lands­ins munu í öllu falli klóra sér í koll­in­um.

Það væri í raun af­rek ef mál þró­ast þannig að Viðreisn, sem kom til rík­is­stjórn­ar­sam­starfs­ins með sterk­asta stöðu flokk­anna, sitji uppi með Svarta-Pét­ur í þessu máli.

Það virðist blasa við að mót­taka fjár­mun­anna var ólög­mæt, breyt­ing í fe­brú­ar 2025 breyt­ir aug­ljós­lega engu varðandi lög­mæti út­greiddra upp­hæða fyr­ir árin 2022, 2023 og 2024, enda hef­ur formaður­inn geng­ist við því að hafa verið meðvitaður um að regl­um væri ekki fylgt af hálfu FF.

Eitt er ólög­mætið sem formaður FF hef­ur sagt vera smá­atriði, hitt er spill­ing­in ef hinir stjórn­ar­flokk­arn­ir tveir líta svo á að skatt­greiðend­ur verði bara óspurðir að bera kostnaðinn af þessu lausn­ar­gjaldi til að halda rík­is­stjórn­inni sam­an. Ég veit um einn stjórn­mála­mann sem myndi kalla það spill­ingu með stóru S-i.

Höf­und­ur er þing­flokks­formaður Miðflokks­ins. bergt­horola@alt­hingi.is