Kjördæmavika

Það var mikið um að vera í nýafstaðinni kjördæmaviku hjá þingmönnunum okkar. Þá ferðuðust þeir um kjördæmin, heimsóttu fjölbreytt fyrirtæki og stofnanir, hittu félagsmenn og héldu opna fundi.

Þingmenn í Reykjavík heimsóttu m.a. Listasafn Íslands og Árnastofnun, ásamt því að halda opinn fund í Sykursalnum í Grósku ásamt Ara Edwald, oddvita Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar. 

Karl Gauti fór víða um Suðurkjördæmið og fór m.a. í fyrirtækjaheimsóknir í Grindavík. 

Ingibjörg Davíðsdóttir var með opinn fund á Hvanneyri ásamt Snorra Mássyni og Antoni Sveini McKee. Þá sótti Ingibjörg einnig aðalfund Miðflokksdeildar Akranes og heimsótti Snæfellsnes og Borgarbyggð. 

Sigmundur sló tvær flugur í einu höggi í heimsókn sinni í Norðausturkjördæmið, hann fór í klippingu á Akureyri og hélt þar opinn fund með Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur, Snorra Mássyni og Þorgrími Sigmundssyni. Þá héldu þau einnig opinn fund í Fjarðabyggð og á Húsavík, ásamt því að heimsækja hin ýmsu fyrirtæki.