

Frumvarp Miðflokksins samþykkt á Alþingi

Frumvarp Miðflokksins var gert að lögum á síðasta degi Alþingis.
Skerðingar á gildistíma ökuskírteinis hefjast ekki fyrr en við 70 ára aldur í stað 60 ára eins og er raunin í dag.
Kröfum um endurnýjun ökuskírteina mun fækka verulega. Til að mynda á 20 ára tímabili mun kröfum um endurnýjun ökuskírteina fækka úr ca. 18 skiptum niður í 4 skipti.
Gildistími eftir lagabreytingu:
70–75 ára tíu ár,
76 ára níu ár,
77 ára átta ár,
78 ára sjö ár,
79 ára 6 ár,
80–83 ára fimm ár,
84–85 ára fjögur ár,
86–87 ára þrjú ár,
88–89 ára tvö ár og
90 ára eða eldri eitt ár.
Því er um mikla réttarbót að ræða fyrir eldri ökumenn, í dag eru yfir 75 þús. einstaklingar sem frumvarpið nær til og áhrif frumvarpsins eru jafnframt að létt verði á heilsugæslum landsins, fjármunir einstaklinga og ríkis sparist ásamt því að umstang hins opinbera minnki.



