Hvað á ég að gera við barnið mitt þegar það vex úr grasi?

Á eftirhrunsárunum var hægt að gera góða „díla“ í fasteignakaupum. Verð var lágt og gjarnan undir byggingakostnaði. Á þessum tímum ríkti þórðargleði hjá fjárfestum sem sáu fram á mikinn hagnað bæði af leigu og sölu húsnæðis. Dæmi voru um að íbúð tvöfaldaðist í verði á stuttum tíma. Fjársterkum aðilum stóðu til boða lán sem báru á þeim tíma lága vexti að undaförnu greiðslumati sem almenningur komst oft ekki í gegn um. Þetta gerði það að verkum að braskarar sem lögðu saman í „púkkið“ gátu hagnast verulega.

Hver er skýringin á háu fasteignaverði?

Verð húsnæðis, í fullkomnum heimi þar sem framboð helst í hendur við eftirspurn, ætti að myndast af lóðarverði, byggingarkostnaði og öðrum þáttum eins og staðsetningu. Þær húsnæðisframkvæmdir sem nú eru í gangi á höfuðborgarsvæðinu eru flestar á vegum verktaka. Ýmist er hent fram rökum um að þörf sé fyrir litlar íbúðir, án bílastæða, það þurfi að þétta byggð, og að markaðurinn kalli á hinar eða þessar gerðir eigna.

Öll umræða um að aldrei hafi verið byggt jafn mikið og undanfarið er „mantra“ sem telur almenningi þá trú að innan skamms verði ofgnótt húsnæðis, sem hefur ekki raungerst hingað til. Það er hins vegar nauðsynlegt að ætíð sé nægt lóðaframboð á eðlilegum kjörum. Einstaklingar verða að hafa val um hvernig húsnæði þeir vilja búa í. Lóðaframboð þarf að vera meira en eftirspurn.

Hvernig leysum við vandamálið ?

Stóra óleysta vandamálið er hvernig fólk eigi að eignast eða leigja fasteign. Skynsamlegasta leiðin er að tryggja framboð lóða á eðlilegu verði. Leiguverð fylgir nefnilega fasteignaverði. Foreldrum og fjölskyldum með fleira en eitt barn dugar stundum ekki að minnka við sig til að hjálpa börnunum. Það þarf mikið eigið fé í útborgun, meira en hægt er að nokkur vinnandi maður geti lagt fyrir, jafnvel með aðstoð.

Miðflokkurinn hefur lagt til 14 lausnir fyrir húsnæðismarkaðinn.Þar á meðal um að fyrirkomulag hlutdeildarlána verði lagfært auk þess sem lífeyrissjóðum og fjármálastofnunum verður heimilað að veita hlutdeildarlán.Þá verði komið á kynslóðabrú svokallaðri. Kynslóðabrú gengur út á það að foreldrum verði heimilað að fella fyrirgreiðslu undir fyrirframgreiddan arf þannig að hann nýtist til kaupa á fyrstu eign. Samhliða þessu verði frítekjumark erfðafjárskatt hækkað svo ríkið taki ekki af upphæðinni.

Það er engum greiði gerður að okurverð og yfirboð viðgangist á fasteignamarkaði. Með því móti geta börnin okkar og barnabörn hvorki keypt né leigt. Tryggja þarf að allir geti keypt íbúðarhúsnæði og þeir komist af leigumarkaði sem vilja.

Höfundur er frambjóðandi í 3. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.