
Hjálpum dómsmálaráðherra í þágu öryggis borgaranna
Þingflokksformaður Miðflokksins lagði til við forseta Alþingis í dag að mál dómsmálaráðherra er snúa að farþegaupplýsingum á landamærum og framsali sakamanna verði færð fremst á dagskrá Alþingis við upphaf seinni þingfundar í dag, mánudaginn 26. maí. Að tillögunni stóðu einnig þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Samstaða er og hefur verið á þingi til að afgreiða þessi mál.
Verkstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur ekki auðnast að setja mikilvæg mál er varða landamæravörslu og framsal sakamanna í forgang, fremst á dagskrá þingfundar, þannig að þingið getið afgreitt málin. Önnur mál hafa frekar notið forgangs í augum ríkisstjórnarinnar, til að mynda mál er snúa að katta og hundahaldi í fjölbýlishúsum.
Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins:
„Það er augljóst að það er ekki samstaða innan ríkisstjórnarflokkanna um að setja mál er varða landamæravörslu eða útlendingamál í forgang. Okkur er því ljúft og skylt að rétta dómsmálaráðherranum hjálparhönd og leggja til við forseta Alþingis að mál dómsmálaráðherra komist á dagskrá strax í dag. Dómsmálaráðherrann getur þá nýtt tímann betur, hætt að barma sér yfir Miðflokknum og reynt að afla fylgis við mál sín innan ríkisstjórnarinnar. Það munar um Miðflokkinn, nú sem fyrr.“
Umræður í þingsal um forgangsröðun ríkisstjórnarinnar
Hér má hlusta á ræður þingmanna Miðflokksins og stjórnarandstöðunnar í þingsal 26. maí undir liðnum fundarstjórn forseta. (Upptökur aðgengilegar síðar í dag)