Þingsályktun um framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi hafnar

Þorgrímur Sigmundsson mælti fyrir þingsályktunartillögu sinni fyrir stuttu um að framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi væru hafnar.

Með þingsályktunartillögunni er ríkisstjórninni falið að tryggja að framkvæmdir við þjóðveginn yfir Öxi hefjist strax í samræmi við gildandi vegáætlun. Í greinargerðinni kemur fram að ólíðandi er að draga það að hefja framkvæmdir við vandaðan veg sem eykur öryggi, styrkir byggðir og styttir hringveginn um 70 km ogl eysir jafnframt af hólmi hlýkkjóttan og holóttan veg af svipuðum gæðum og þeir sem lagðir voru fyrir tæpri öld.

Hér má sjá flutningsræðu Þorgríms um málið.