Er sjávarútvegurinn bara aukaleikari?
Á Íslandi hefur sjávarútvegur lengi verið grunnstoð atvinnulífsins.
Með tilkomu stóriðju, ferðamannaiðnaðar og nýsköpunar hefur fjölbreytileiki aukist í atvinnulífinu. Verðmætasköpunin sem fer fram í sjávarútveginum og tengdum greinum má þó ekki vanmeta en sjávarútvegurinn, þjónusta við sjávarútveginn og tengdar greinar eru lykilbreytur í lífi sjávarplássa landsins enn þann dag í dag.
Árangur Íslands í sjávarútvegi og tengdum greinum í gegnum tíðina er vægast sagt stórkostlegur og íslenskt samfélag hefur fengið að njóta góðs af þeim árangri. Við færðum út landhelgina okkar í 200 mílur árið 1975 og unnum þorskastríð við Breska heimsveldið og er það til marks um ótrúlega seiglu íslenskrar sjómannastéttar.
Í seinni tíð höfum við séð nýsköpunarfyrirtæki rísa í sjávarútvegi á borð við Kerecis, Marel og Völku er varða vinnslu og nýtingu á hráefni úr sjó. Óhætt er að segja að íslenskur sjávarútvegur sé í heimsklassa þegar kemur að verðmætasköpun en þessi verðmætasköpun er ekki sjálfsögð þó umræðan í þjóðfélaginu gefi það oft í skyn. Ég er ansi hræddur um að of margir geri sér ekki grein fyrir mikilfengleika þessarar atvinnugreinar vegna þeirrar umræðu sem kann oft að hljóma neikvæð.
Ég á tvo vini sem stunda nám við Skipstjórnarskólann og mér blöskrar að heyra af þeirra frásögn af stöðu mála í skólanum. Tækjabúnaður skólans stenst ekki nútíma kröfur þar sem hann er frá 10. áratug síðustu aldar og mikil mannekla starfsfólks í skólanum. Námið er ekki samkeppnishæft í alþjóðlegum samanburði og er eini slíki skólinn á Norðurlöndum sem veitir ekki háskólagráðu fyrir skipstjórnarnám.
Þetta er dæmi um nauðsyn þess að stjórnvöld fari í mun meiri mæli að hlúa að þeim greinum sem skapa verðmæti fyrir samfélagið. Sjávarútvegurinn er og verður alltaf ein af grunnstoðum landsins og nauðsynlegt er að við séum að búa til bestu nemendurna á öllum sviðum greinarinnar til að viðhalda gæðum hennar.
Undanfarin ár hefur fiskeldi orðið stærri hluti af kökunni í sjávarútveginum og með hverju árinu sem líður mun sá hluti einungis stækka. Ef áform þeirra fyrirtækja sem ætla að reisa landeldi á laxi í Vestmannaeyjum, Þorlákshöfn og Reykjanesi ganga upp, þá munu hér á landi myndast ótrúlegt magn tækifæra fyrir fólk sem er menntað í sjávarútvegi eða tengdum greinum. Því verðum við að grípa tækifærin og sækja fram á öllum vígstöðvum sjávarútvegsins því það er hagur allra landsmanna.
Við í Miðflokknum munum standa vörð um sjávarútveginn og sjá til þess að hér verði ekki týnd kynslóð af stýrimönnum og öðrum starfsstéttum sem við þurfum á að halda til að láta hjól atvinnulífsins snúast. Sjávarútvegurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenskt atvinnulíf, komum fram við hann þannig.
Höfundur er í 4. sæti Miðflokksins í Suðurkjördæmi og formaður Gullbrár, ungliðahreyfingar Miðflokksins í Suðurkjördæmi.