Dómsmálaráðherra dreginn að landi

Oflæti getur reynst mönnum skeinuhætt í stjórnmálum og það er dómsmálaráðherrann að reyna þessi dægrin. Þegar ráðherrann ætlar svo að taka blaðsíðu úr bók aðstoðarmanns síns, sem áður starfaði við uppistand, getur staðan bara versnað. Það sáum við í vikunni.

Um liðna helgi ákvað dómsmálaráðherra að ráðast á Miðflokkinn og gera honum upp annarlegar hvatir í afstöðu sinni í útlendingamálum, tækifærismennsku og stöðvun mála á þingi er vörðuðu öryggi á landamærum Íslands. Önugheitin voru mikil og óútskýrð.

Hún sagði Miðflokkinn í málþófi, sem er þó í sjálfu sér hlægilegt og til marks um reynsluleysi ráðherrans í þingstörfunum enda miklar takmarkanir á ræðuhöldum þingmanna við fyrstu umræðu mála.

Þingmenn Miðflokksins komu auðvitað af fjöllum við þessar yfirlýsingar ráðherrans enda ekkert fjarri sanni. Það dylst engum að Miðflokkurinn hefur talað manna hæst um þörfina á stjórn á landamærum og í málefnum hælisleitenda og verið ólíkt mörgum öðrum samkvæmur sjálfum sér í gegnum árin.

En við leit að málunum sem ráðherrann vísaði til, og sagði Miðflokkinn stoppa, kom í ljós að ríkisstjórnin með forseta Alþingis í broddi fylkingar hafði sett þau aftast á dagskrá þingsins, rúmum mánuði eftir að málið var klárað úr nefnd og tilbúið til umræðu. Forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í málefnum öryggis á landamærum var skýr – málin voru aftast. Framar í forgangsröðun ríkisstjórnarinnar var til dæmis mál um hunda- og kattahald í fjölbýlishúsum og ekki má gleyma grásleppunni…

En okei, þrátt fyrir önugheit ráðherrans í garð Miðflokksins sem hlýtur að vera merki um erfiða stöðu mála hennar innan ríkisstjórnarinnar ákváðum við að rétta ráðherranum hjálparhönd, í þágu öryggis borgaranna. Málin eru að vísu aðeins plástrar á svöðusárið sem ríkir á landamærunum en skref í rétta átt. Fyrst hún gat ekki tryggt framgang málanna innan ríkisstjórnarinnar og hjá forseta Alþingis stigum við inn í málið.

Undirritaður lagði fram dagskrártillögu til forseta Alþingis strax á mánudag og krafðist þess að málin yrðu sett fremst á dagskrá og yrðu tekin til umræðu síðar sama dag og það studdu þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Í kjölfar þess að dagskrártillagan kom formlega fram frá stjórnarandstöðunni kallaði forseti Alþingis þingflokksformenn allra flokka saman á fund þar sem niðurstaðan varð sú að stjórnin varð við kröfum stjórnarandstöðunnar um að málin tvö kæmust fremst á dagskrá og strax til umræðu. Samstaða hefur verið um að afgreiða þessi mál en forgangsröðun ríkisstjórnarinnar hefur staðið því í vegi. Málin eru nú afgreidd til lokaumræðu og lúkningar þar.

Það munar um Miðflokkinn, nú sem fyrr.

Það var ekkert Obba.

Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 28. maí 2025.