Hættið að hæða lýð­ræðið – Slítið stjórnar­sam­starfinu!

Þorsteinn Sæmundsson skrifar 9. október 2024

Landsmenn hafa horft upp á langvinnt dauðastríð ríkisstjórnarinnar síðustu misseri. Hver dagur sem stjórnin situr er þjóðinni rándýr. Á meðan á dauðastríðinu hefur staðið hafa mikilvæg mál rekið á reiðanum. Ríkisstjórnin er fyrir löngu orðin hol likt og yfirgefið geitungabú. Hver höndin er upp á móti annarri og ráðherrar ganga fram í algeru getuleysi og vinna skaða með verkum sínum. Verður nú getið helstu afreka þeirra:

Landamæri Íslands eru óvarin og farandfólk flæðir inn. Dómsmálaráðherra hamast þó við að færa stefnu sína að stefnu Miðflokksins. Það er vel en henni mun ekki takast vel til því örflokkurinn stendur í vegi og mun ekki samþykkja neinar breytingar. Menntamál eru í algerum ólestri og árangur í engu samræmi við fjármagn sem rennur í málaflokkinn. Ráðherra horfir máttvana á ástandið og skilar ekki umbeðnum upplýsingum sem er reyndar plagsiður viðkomandi.

Tveir matvælaráðherrar hafa að öllum líkindum skapað ríkissjóði skaðabótaskyldu með framferði sínu og núverandi ráðherra tók upp hjá sjálfum sér að skipta um kúrs í Hvalveiðiráðinu til tjóns fyrir þjóðina. Utanríkisráðherra vinnur að því öllum árum að brjóta niður fullveldi þjóðarinnar með bókun 35 milli þess sem hún flækir þjóðina í aukinn stríðsrekstur.

,,Þetta er allt að koma” tuðar fjármálaráðherra og það má til sannsvegar færa þegar fylgi framsóknar nálgast fimm prósent. Fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp skilar á meðan auðu í baráttunni við að hemja ríkisútgjöld. Næsta ríkisstjórn mun taka skellinn af óráðsíunni og berjast við halla á ríkissjóði. Umhverfis-orku og loftslagsráðherra liggur yfir hundraðogfimmtíuskrefa áætluninni sem er myllusteinn um háls inn í framtíðina. Heimilin glíma á meðan við síhækkandi orkuverð vegna samþykktar orkupakka 3.

Heilbrigðisráðherra treður marvaðann og má þó segja honum til hróss að hann hefur undið nokkuð ofan af marxisma forvera síns. Biðlistar halda samt áfram að lengjast og margir lifa biðina ekki af. Innviðaráðherra bisar við að eyðileggja lífæðina í Vatnsmýrinni með óafturkræfum þrengingum að Reykjavíkurflugvelli.

Á meðan dundar háskóla -nýsköpunar og iðnaðarráðherra við að teikna upp næstu ríkisstjórn. Hún gerir þá lítið af sér á meðan. Menningarmálaráðherrann sendir milljarða til Hollywood á meðan innlend kvikmyndagerð sveltur.

Forystusauðurinn snýst í hringi og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Flokkurinn hans fuðrar upp vegna þess að fólk hefur fyrir löngu fengið nóg. Þjóðinni verður biðin eftir því óhjákvæmilega óbærilega löng. Á sínum tíma hvatti núverandi forsætisráðherra forvera sinn til að skila lyklum að stjórnarráðinu. Hann er hér með hvattur til að gera slíkt hið sama tafarlaust.

Hættið að hæða lýðræðið. Hættið gera þjóðinni ógagn. Slítið stjórnarsamstarfinu strax. Það er hvort sem er löngu dautt.

Höfundur er um sinn fyrrverandi þingmaður Miðflokksins og situr í stjórn hans.