Tryggjum fleiri íbúðir fyrir fyrstu kaupendur og eldriborgara

Tengd sveitarfélög:

Talsverð óánægja hefur verið meðal nágranna Arnarlandsins með fyrirsjáanlega aukna umferð um núverandi hverfi og skuggavarp frá háum byggingum í Arnarlandinu. Miðflokkurinn mun beita sér fyrir því að gengið verði til samninga við byggingaraðila og aðra hagaðila um nokkur lykilatriði. Deiliskipulag Arnarlands hefur þegar verið samþykkt með formlegum hætti og því er ekki hlaupið að því að gera miklar breytingar á skipulaginu, nema með slíkum samningum. Markmið okkar er að ná fram betri heildarniðurstöðu fyrir nágranna, framtíðaríbúa Arnarlands og byggingaraðila. Við teljum góðar líkur á því
að hægt sé að semja um lækkun einstakra bygginga, gegn því að íbúðum sé fjölgað á svæðinu, bílastæðum verði fjölgað neðanjarðar og bílastæðahús víki fyrir lífvænlegri starfsemi.

Umferðin í kringum Arnarlandið er mikil í dag og varla á bætandi. Við leggjum áherslu á að fá aðrein frá Hafnarfjarðarvegi inn í hverfið, sem myndi létta á Arnarnesveginum og gatnamótunum við Arnarsmára. Eins teljum við mikilvægt, fyrir íbúa Akrahverfis, að undirgöng undir Arnarnesveg inn í Akrahverfi takmarkist við neyðarakstur, hjólreiðar og gangandi vegfarendur.

Varðandi fjölgun íbúða á svæðinu er mikilvægt að gefa fyrstu kaupendum aukin tækifæri á að kaupa sér minni eign (47-80 fm), í Arnarlandinu er kjörið tækifæri til þess að leyfa byggingaraðilum að fjölga íbúðum án þess að byggingamagn sé aukið. Jafnframt ef hægt væri að leggja áherslu á stærri íbúðir fyrir 60 ára og eldri – það skapar hreyfingu á fasteignamarkaðnum og gefur fólki kost á að flytja úr stórum einbýlishúsum.

Það er þó algjört skilyrði að hægt sé að bjóða upp á eitt bílastæði á íbúð, að lágmarki. Með nægum bílastæðum og betra umferðarflæði eru auknar líkur á því að hverfið verði spennandi valkostur fyrir íbúa og atvinnurekendur í Garðabæ.

Snorri Marteinsson, viðskiptafræðingur og skipar 3. sæti á lista Miðflokksins í Garðabæ.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 7. maí, 2026