Löðum fólk og fyrirtæki til Fjarðabyggðar

Tengd sveitarfélög:

Fjarðabyggð hefur allt sem þarf til að vera eitt öflugasta búsetu- og atvinnusvæði landsins. Hér eru sterkar rætur, mikil náttúrugæði, öflugt atvinnulíf og samfélög þar sem fólk þekkir hvert annað. Verkefnið fram undan er að nýta þessa styrkleika betur og skapa aðstæður sem laða bæði fólk og fyrirtæki til sveitarfélagsins.

Miðflokkurinn vill nálgast þetta verkefni af skynsemi og festu. Við trúum því að fólk og fyrirtæki velji sér framtíð þar sem umhverfið er fyrirsjáanlegt, þjónustan góð og stjórnsýslan skilvirk. Sveitarfélagið á ekki að vera hindrun, heldur samstarfsaðili sem greiðir fyrir uppbyggingu, einfaldar ferla og tekur vel á móti þeim sem vilja fjárfesta, skapa störf og setjast hér að.

Til að laða fólk til Fjarðabyggðar þarf að tryggja grunninn. Það þarf nægt framboð lóða og húsnæðis, góða leik- og grunnskóla, örugga þjónustu, fjölbreytt frístundastarf og samfélag þar sem fjölskyldur finna að þær skipta máli. Ungt fólk þarf að sjá að hér sé raunhæft að byggja upp framtíð, eignast heimili og taka þátt í lifandi samfélagi.

Fyrirtæki horfa einnig til þess hvort sveitarfélagið sé lausnamiðað. Þau þurfa að geta treyst því að ákvarðanir séu skýrar, málsmeðferð taki ekki óþarflega langan tíma og að innviðir séu til staðar. Með hóflegum gjöldum, góðu samtali við atvinnulífið og skýrri framtíðarsýn getum við gert Fjarðabyggð að eftirsóknarverðum stað fyrir nýja starfsemi.

Við eigum líka að vera duglegri að segja frá kostum Fjarðabyggðar. Hér eru fjölmörg tækifæri í atvinnu, hafnsækinni starfsemi, nýsköpun og ferðaþjónustu auk fjölbreyttrar þjónustu. En tækifærin þurfa að vera sýnileg.

Miðflokkurinn vill byggja Fjarðabyggð upp með ábyrgð, ráðdeild og trausti á fólkinu sjálfu. Með því að einfalda kerfin, verja verðmætasköpun og setja íbúana í forgang getum við laðað til okkar fólk og fyrirtæki sem vilja taka þátt í að byggja sterkara samfélag til framtíðar.

Hafþór Eiríksson, skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Fjarðabyggð.

Greinin birtist í Austurfrétt 4. maí, 2026.