Borgarlínan – Sóun á skattfé

Tengd sveitarfélög:

Laufey Gunnþórsdóttir skrifar

Enn liggur ekki að fullu ljóst fyrir hvað borgarlínuverkefnið hefur í för með sér fyrir okkur Garðbæinga, en það sem liggur ljóst fyrir í dag vekur upp fleiri spurningar en svör.

Við vitum á þessu stigi að borgarlína á að liggja frá miðbæ Reykjavíkur til miðbæjar Hafnarfjarðar með stoppum í Garðabæ, eins og leið 1 hjá Strætó gerir í dag. Tíðni borgarlínu á að vera um 10 mínútur á háannatíma, einmitt eins og strætó lína 1 gerir í dag líka. Skoðum þetta aðeins betur:

Inni á vefslóðinni: „verksja.is/stofnvegir/S9“, má sjá eftirfarandi lýsingu á fyrirhuguðum breytingum á gatnakerfinu við Ásgarð: „Í Garðabæ verður Hafnarfjarðarvegur lagður í vegstokk frá Litlatúni vestur fyrir Lyngás sem tryggja mun frjálst flæði umferðar um tvenn gatnamót sem í dag eru ljósastýrð. Fyrirhuguð er talsverð þétting byggðar í grennd við stokkinn sem auka mun álagið á þessum gatna mótum umtalsvert og viðbúið að langar biðraðir myndist á álagstímum.
Sérrými Borgarlínunnar og hjóla- og göngustígar verða lagðir á yfirborði stokksins aðskildir frá akandi umferð.“

Fyrirhugaður stokkur er sýndur í gulum lit. Ekki liggur fyrir hversu margar akgreinar verða í stokknum.

Það á sem sagt að leggja stokk neðanjarðar fyrir almenna umferð, stokk sem virðist gera ráð fyrir að fólk keyri eingöngu í gegnum bæinn en af teikningunni af dæma virðist lokast á tengingar frá Hafnarfjarðarveginum inn á Vífilsstaðaveg, Tún, Fitjar og Ása fyrir almenna bílaumferð eða allar innanbæjartengingar á þessum kafla. Ofanjarðar verður svo sér vegur fyrir eina strætó línu sem gengur á 7-10 mínútna fresti, á háannatíma. Í þetta á að eyða 12,8 milljörðum króna!

Það liggur í augum uppi að þarna er forkastanleg eyðsla á skattfé í uppsiglingu, ásamt því að mjög er þrengt að almennri umferð. Réttara væri að efla gatnakerfið þannig að það greiði fyrir allri umferð og stytti umferðartíma allra. Miðflokkurinn styður umbætur í samgöngumálum en allt þarf að vera gert innan eðlilegra marka. 12,8 milljarðar í stokk sem er til þess eins að gera sér akgreinar fyrir eina strætó línu er óábyrg nýting á skattfé.

Laufey Gunnþórsdóttir, skipar 2. sæti á lista Miðflokksins í Garðabæ