

Tækifærið er núna – XM Garðabær
Kæru Garðbæingar,
Við í Miðflokknum bjóðum fram skýr og raunhæf stefnumál fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí.
Við leggjum áherslu á málefnalega, jákvæða og skynsama umræðu. Listi okkar er öflugur og samanstendur af vel menntuðum einstaklingum ásamt reynslumiklu fólki úr atvinnulífinu. Aldursdreifing frambjóðenda er góð og tryggir jafnvægi milli ungra og eldri.
Málefnin
Borgarlínan
Við teljum að Borgarlínan færi Garðabæ ekki raunverulegar umbætur heldur muni hún leiða til íþyngjandi aðgerða gagnvart fjölskyldubílnum.
Íbúar í Akrahverfi og Arnarhverfi munu að okkar mati finna fyrir auknum umferðarhnútum þegar uppbyggingu lýkur og umferð verður leidd í gegnum hverfin.
Kostnaður við Borgarlínuna er gríðarlegur og að okkar mati um sóun á skattfé að ræða. Við leggjum þess í stað áherslu á að efla almenningssamgöngur með aukinni tíðni ferða í hraðvagnakerfi, sem er bæði hagkvæmari og raunhæfari leið.
Í dag nota um 4% almennings almenningssamgöngur og óvíst er hvort markmið Borgarlínunnar um 8–10% náist.
Við spyrjum: Á að skerða aðgengi fjölskyldubílsins fyrir þessa þróun?
Svar okkar er nei.
Skóla- og leikskólamál
Skólamál eru okkur ofarlega í huga og þar viljum við gera betur. Við kjósum skóla með aðgreiningu.
Við viljum létta undir með kennurum og efla íslenskukunnáttu nemenda svo þeir geti fylgt kennslu. Við viljum stórefla lestur og lesskilning í nánu samstarfi við foreldra og skólasamfélagið.
Við leggjum til aukið framboð íþróttatíma og viljum tryggja hollan og næringarríkan mat í skólum og leikskólum.
Skólar eiga að vera öruggt og traust umhverfi fyrir börn. Því teljum við að utanaðkomandi fræðsla eigi aðeins að fara fram þegar brýn nauðsyn krefur.
Leikskólamál eru almennt í góðu horfi í Garðabæ, en við teljum mikilvægt að bæta mönnun og skoða beri kosti og galla heimgreiðsla.
Þéttingarstefna
Miðflokkurinn telur að ásýnd Garðabæjar hafi beðið hnekki vegna óhóflegrar þéttingar.
Garðabær hefur lengi verið þekktur fyrir fjölbreytta og lágreista byggð sem hefur skapað bænum sérstakt yfirbragð.
Núverandi stefna hefur hins vegar leitt til hraðrar uppbyggingar á háreistum fjöl-býlishúsum, að því er virðist með það að markmiði að hámarka tekjur af lóðasölu og byggingarétti.
Samkvæmt ársreikningi námu tekjur af lóðasölu og byggingarétti 3,5 milljörðum króna árið 2025. Þótt talað sé um góða afkomu er ljóst að stór hluti tekna kemur frá einskiptistekjum.
Við teljum mikilvægt að rekstur bæjarins sé sjálfbær til lengri tíma.
Aldraðir og öryrkjar
Aldraðir njóta almennt góðrar þjónustu í Garðabæ, en við viljum gera enn betur.
Við munum skoða gjöld og álögur á 70 ára og eldri, stöðu heimaþjónustu og biðlista eftir hjúkrunarrýmum.
Einnig viljum við leggja aukna áherslu á að vinna gegn einmanaleika og tryggja að allir hafi aðgang að félagslegri virkni.
Við teljum að betur megi standa að málefnum öryrkja. Auka þarf aðgengi að þjónustu, íþróttum og félagsstarfi, sem og efla búsetuúrræði.
Íþróttir og forvarnir
Stjarnan gegnir lykilhlutverki í samfélaginu og er öflugur vettvangur fyrir uppeldi barna og ungmenna.
Við viljum tryggja félaginu öflugan stuðning, bæði til afreksstarfs og barna- og unglingastarfs, sem er ein besta forvörn sem völ er á.
Um mig
Ég hef búið stóran hluta ævi minnar í Garðabæ. Eftir atvinnumannaferil í knattspyrnu í Belgíu og Þýskalandi flutti ég í bæinn og lék með Stjörnunni.
Að ferli loknum þjálfaði ég yngri flokka og meistaraflokk Stjörnunnar. Árið 2008 stofnaði ég KFG fyrir drengi sem ekki áttu greiðan aðgang að afreksstarfi. Í 12 ár lagði ég mikla vinnu í það starf, ásamt því að sinna rekstri og utanumhaldi.
Hundruð drengja fengu þar tækifæri til að taka þátt í íþróttum og starfið lifir áfram í dag.
Sjálfboðastarf af þessu tagi er afar gefandi og sýnir hvað samfélagið okkar getur verið sterkt þegar við leggjum okkar af mörkum.
Lokaorð
Að lokum viljum við í Miðflokknum leggja áherslu á það sem skiptir mestu máli.
Að Garðabær haldi áfram að vera samfélag sem byggir á skynsemi, ábyrgð og virðingu fyrir íbúum sínum. Þar sem ákvarðanir eru teknar með langtímahagsmuni að leiðarljósi og fjármunum er ráðstafað af varfærni.
Við teljum að með skýrri stefnu, öflugum hópi frambjóðenda og málefnalegri nálgun getum við lagt okkar af mörkum til að gera góðan bæ enn betri.
Við hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur og deila því sem ykkur liggur á hjarta. Slóð gardabaer@midflokkurinn.is
Við erum tilbúin til að taka ábyrgð.
Kær kveðja,
Lárus Guðmundsson oddviti Miðflokksins í Garðabæ



