

Blikastaðaland – Forsendur Mosfellinga
Mosfellingar vilja frekari uppbyggingu, vöxt og viðgang bæjarins. Þeir vilja jafnframt að skipulag og áform um uppbyggingu byggist á forsendum íbúa umfram allt annað. Mosfellingar vilja hóflega uppbyggingu sem byggist á forsendum sem hægt er að treysta.
Blikastaðir og áform um uppbyggingu íbúða-, atvinnu- og íþróttamannvirkja á því landi er metnaðarfullt verkefni. Forsendur fyrir því byggingarmagni sem þar er áformað að koma fyrir, allt að 3700 íbúðum auk um 66 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði auk íþróttamannvirkja, er að af Borgarlínuleið E og Sundabraut verði.
Sé rýnt í samgöngumat Eflu fyrir rammaskipulag Blikastaðalands frá desember 2025 koma þessar forsendur fram. Þar eru gefnar forsendur fyrir því hvernig koma megi í veg fyrir umferðarálag eftir að uppbyggingu er lokið. Forsendan önnur er að ferðir almenningssamgangna fari úr 5% af ferðum förnum í 15%. Hin forsendan er að umferð um Vesturlandsveg við Blikastaði fari úr 54.200 ökutæki á sólarhring árið 2040 án Sundabrautar í 32.200 með Sundabraut. Þar segir jafnframt: „Framtíðarástand á Vesturlandsvegi er mjög háð því hvort Sundabraut verði að veruleika eða ekki…“. Nú fara um 42.000 ökutæki um Vesturlandsveg við Blikastaði á sólarhring.
Sé litið til framangreindra hlutfalla af ferðum förnum með almenningssamgöngum, sé tekið tillit til ferða á vegum fyrirtækja, stofnana, erlendra ferðamanna, íbúa utan af landi, sem hér er ekki tekið tillit til í greiningu Eflu, enda almennt ekki annað tekið inn en ferðir á vegum íbúa heimila á svæðinu, fer hlutfallið með almenningssamgöngum í dag niður í 3%, þ.e. ekki þessi 5%. Þetta verður að hafa í huga. Í dag er einmitt, samkvæmt samgöngulíkani höfuðborgarsvæðisins, ferðir farnar með strætó um 3,0%, þ.e. um mitt ár 2025. Hlutur ferða með strætó árið 2019 var um 3,2% og fer því lækkandi, ekki hækkandi.
Ekki er séð að forsendur séu fyrir því, m.a. í ljósi tilraunaverkefnis Stætó bs um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu á árunum 2012 til 2022, að 15% markinu verði náð nokkurn tíman. Á þessu tímabili var markmiðið að ná ferðum förnum með almenningssamgöngum úr um 4% í 8% en það endaði í 3%. Á þessum tíma var ráðstafað um einum milljarði króna árlega í 10 ár sem annars átti að ráðstafa í stofnvegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þeim fjármunum hefur því verið sóað fyrir hugsjónir frá vinstri.
Ofan í kaupið er ekki séð hvert stefnir með Sundabraut. Þegar hafa vinstri menn, sem stýrt hafa höfuðborginni Reykjavík um árabil, byggt ofan í eitt, ef ekki tvö, hagstæð vegstæði fyrir Sundabraut. Nú stefnir í að hún frestist enn frekar vegna umhverfismats. Reiknað er með að framkvæmdir þar hefjist ekki fyrr en undir lok næsta kjörtímabils.
Það eru þessar forsendur sem setja Mosfellinga í vanda. Þessar staðreyndir, sem hér er bent á, vísa til forsendubrests. Við viljum hér auka og styrkja við atvinnulíf, tryggja Mosfellingum greiða leið til og frá höfuðborginni þar sem fjölmargir sækja vinnu. Með því að vinna með framangreindar forsendur sem viðmið er í raun aðför að verðmætum tíma fjölskyldna Mosfellinga. Mosfellingar vilja fremur nýta tímann sinn með sínu fólki hér í okkar fagra Mosfellsbæ en í heimatilbúnum umferðarhnútum til langrar framtíðar.
Við í Miðflokknum þekkjum vandann, skiljum hann og munum vinna að því að tryggja Mosfellingum áfram greiða leið á sínum einkabíl, með raunhæfum og hagkvæmum almenningssamgöngum, hjólandi eða gangandi. Við viljum tryggja að allir Mosfellingar geti farið úr vinnu og heim aftur til fjölskyldunnar á sem stystum tíma. Við veljum frelsið, ekki helsið og forræðishyggju forystumanna flokka sem telja sig vita betur. Við viljum byggja en engu að síður tryggja hag okkar bæjarbúa. Frá því verður ekki vikið.
Sveinn Óskar Sigurðsson, skipar 1. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ fyrir sveitastjórnarkosningar sem fram fara 16. maí næstkomandi
Greinin birtist í Morgunblaðinu 28. apríl, 2026.



