Örugg leið barna okkar – ábyrgð Suðurnesjabæjar

Tengd sveitarfélög:

Það er einföld staðreynd að þátttaka barna í íþróttum og tómstundum er ein
mikilvægasta fjárfesting sem við getum lagt í sem samfélag. Þar byggja þau upp
heilsu, sjálfstraust og félagsfærni sem nýtist þeim alla ævi.
Aðgengi að þessum tækifærum er ekki alltaf sjálfgefið, sérstaklega þegar fjarlægðir
innan sveitarfélagsins skapa hindranir. Í dag erum við ekki lengur tvö aðskilin
sveitarfélög, Sandgerði og Garður heldur erum við sameinuð undir einu nafni
Suðurnesjabær. Með þeirri sameiningu fylgir ábyrgð að þjónusta fjölskyldur hér með
því að létta undir og standast undir væntingum sameinuðu íþrótta og
tómstundarstarfi.


Við þurfum að bregðast við.
Við leggjum til að komið verður betra skipulagi á rútuþjónustunni hér sem sinnir
flutningi barna á milli bæjarkjarna innan Suðurnesjabæjar til þess að börnin okkar
geti iðkað okkar íþrótta og tómstundastarf. Rúta sem gengur eftir skýru kerfi, með
föstum tímasetningum og viðkomustöðum, rúta sem tryggir að börnin okkar komist á
æfingar og heim aftur á öruggan og traustan hátt. Einnig langar okkur að að
skipulagið á ferðalagi rútunnar gæti farið í gegn hjá íbúum Nátthaga og þau gætu þá
fengið tækifæri til þess að nýta ferðina og komist í búðina eða eitthvað þess háttar.
Slík þjónusta myndi einfalda og styðja við líf fjölskyldna í Suðurnesjabæ og einnig
styðja við þátttöku barna í uppbyggilegu starfi. Þessi þjónusta er líka skref í átt að því
að gera Suðurnesjabæ að sterkara og samheldnara samfélagi þar sem öll börn hafa
raunverulegan aðgang að tækifærum, óháð því hvar þau búa innan sveitarfélagsins.


En verðum líka að horfa lengra.
Við eigum að vera stolt og styðja við börnin okkar sem stunda tómstundir og
íþróttastarf hér í Suðurnesjabæ, við eigum fullt af iðkendum sem hafa staðið sig
ofboðslega vel og gera það mjög gott í sínu íþróttastarfi. T.d höfum/eigum við öfluga
iðkendur héðan sem hafa verið að skipta yfir í yngri flokka starf hjá bæði Keflavík og
Njarðvík, þar má nefna stelpurnar okkar sem hafa gert það mjög gott í sameinuðu liði
RKVN sem stendur fyrir Reynir, Keflavík, Víðir og Njarðvík.
Stelpurnar okkar hafa þurft að komast til Reykjanesbæjar mjög snemma eða í 5
flokki (10-11 ára) á sínum ferlum vegna þess að það er ekki hægt að halda uppi
flokki með svona fáum iðkendum seinna meir, upp kom þá sú frábæra hugmynd á
sínum tíma að sameina stelpurnar hér í okkar sveitarfélagi við félögin Keflavík og
Njarðvík til þess að mynda stóran hóp af sterkum fótboltastelpum hér fyrir sunnan.
Þessar stelpur æfa þar að leiðandi við Reykjaneshöllina allan ársins hring og er það
á ábyrgð foreldra að koma þeim til og frá æfingum. Sem að okkar mati er auðsýnt
að gengur ekki upp. Það hefur aldrei verið nein stefna né umræða um hvernig við
tryggjum það að stelpurnar komist að leiðarenda og aftur heim örugglega.

Draumasýn okkar er að þessi þjónusta þróist áfram þannig að rútan tengi ekki aðeins
bæjarkjarnana sem nú þegar eru innan sveitarfélagsins, heldur nái einn daginn
einnig til Reykjanesbæjar fyrir þau börn sem iðka íþróttir og tómstundir þar og
hugmynd að einhverskonar forriti sem gæti gert foreldrum kleift að fylgjast með
ferðum rútunnar og merkt inn ástundun barnanna sinna sem tryggir öryggi barnanna
og veitir betri yfirsýn á þjónustunni sem við komum til með að veita.


Þetta snýst um að setja þarfir barna og fjölskyldna í forgang og byggja upp
þjónustu sem endurspeglar það samfélag sem við viljum vera.


Setjum X við M því sameinuð erum við sterkari!


Tvær rætur – eitt samfélag


Ólafur Fannar Þórhallsson, skipar 5. sæti á lista Miðflokksins í Suðurnesjabæ.