Skipuleggjum í þágu íbúa

Tengd sveitarfélög:

Fyrir sveitarfélag eins og Suðurnesjabæ er fjölbreytt atvinnulíf ein af lífæðum samfélagsins.
Uppbygging af hinum ýmsa toga er jákvæð og sýnir kraft, metnað og vilja einstaklinga og
fyrirtækja til að fjárfesta í samfélaginu okkar. Slík þróun skapar störf, eykur þjónustu og
styrkir sveitarfélagið til framtíðar.
En þegar kemur að skipulagsmálum þurfum við að fara varlega og vinna hlutina rétt. Hvort
sem um ræðir íbúðabyggð, atvinnusvæði eða aðra uppbyggingu þá snerta
skipulagsákvarðanir daglegt líf íbúa beint. Þótt eitthvað líti vel út á teikningu eða á blaði er
ekki sjálfgefið að það henti nærumhverfinu eða þeim sem þar búa.
Íbúar eiga rétt á að láta rödd sína heyrast þegar breytingar eru gerðar á deiliskipulagi eða
þegar ný uppbygging er fyrirhuguð. Það er ekki aðeins formsatriði að auglýsa
skipulagstillögur það er skylda sveitarfélagsins að hlusta raunverulega á þær athugasemdir
og þau sjónarmið sem koma fram. Fólk sem býr á svæðinu þekkir sitt nærumhverfi best;
umferðina, ásýndina, birtuskilyrði, hljóðvistina og hvernig breytingar geta haft áhrif á daglegt
líf.
Gott skipulag snýst ekki um að segja alltaf já eða alltaf nei. Það snýst um að finna jafnvægi
milli uppbyggingar og hagsmuna íbúa. Það þarf að ríkja traust milli sveitarfélags og
samfélagsins þar sem fólk upplifir að tekið sé mark á því áður en ákvarðanir eru teknar, ekki
eftir á.
Við eigum að skipuleggja í þágu íbúa og leita lausna sem henta sem flestum. Það getur
verið flóknara og tekið lengri tíma, en þannig byggjum við upp samfélag þar sem fólk vill búa,
ala upp börn sín og taka þátt í samfélaginu.
Því að vinna fyrir íbúa á aldrei að vera einfaldasta leiðin, heldur sú ábyrgasta.

Daði Bergþórsson, oddviti Miðflokksins í Suðurnesjabæ.