Aðalfundur Miðflokksdeildar Garðabæjar 11. febrúar
febrúar 11 @ 18:30 - 20:00

Aðalfundur Miðflokksdeildar Garðabæjar verður haldinn miðvikudaginn 11. febrúar 2026 kl. 18.30 í Sveinatungu, sal bæjarstjórnar Garðabæjar á Garðatorgi.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Stjórn félagsins vill hvetja áhugasama aðila um að bjóða sig fram í stjórn deildarinnar. Eins viljum við biðja þá sem hafa áhuga að taka sæti á lista fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, um að senda okkur tölvupóst á gardabaer@midflokkurinn.is eða hringja í undirritaðan í síma 845-9944.
Þingmenn kjördæmisins, Bergþór Ólason og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir mæta til fundarins og munu ræða við fundarmenn.
Bestu kveðjur frá Miðflokknum
Snorri Marteinsson
Formaður Miðflokksdeildar Garðabæjar
Formaður Miðflokksdeildar Garðabæjar