Landsþing Miðflokksins – skráning

Landsþing Miðflokksins fer fram dagana 11.-12. október í Reykjavík á Hilton Reykjavík Nordica. Þingið er opið öllum flokksmönnum en aðeins fulltrúar tilnefndir af kjördæmafélögum hafa atkvæðisrétt.

Til þátttöku á landsþingi og hátíðarkvöldverði þarf að skrá sig í gegnum hlekkinn hér að neðan. Við skráningu þarf jafnframt að greiða þinggjald kr. 8900 og/eða gjald vegna hátíðarkvöldverðar kr. 13.900. Sýna þarf kvittun fyrir greiðslu eða aðgöngumiða þegar mætt er á landsþingið og hátíðarkvöldverðinn.

Leiðbeiningar: Þú velur fjölda miða á hvorn viðburð fyrir sig og fylgir svo leiðbeiningum um hvernig greitt er. Ef greitt er fyrir fleiri en einn þarf að gefa skrifstofu Miðflokksins upp fyrir hverja er greitt, á netfangið midflokkurinn@midflokkurinn.is

Hátíðarkvöldverður

Hátíðarkvöldverðurinn fer fram laugardagskvöldið 11. október á Hilton Reykjavík Nordica. Þar má búast við glæsilegum þriggja rétta kvöldverði í bland við skemmtiatriði og tónlist áður en dansleikur hefst.

Borðhaldið hefst með fordrykk kl. 19.30. Veislustjórn verður í höndum Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, alþingismanns.

Það má búast við skemmtiatriðum í boði kjördæmafélaga, fjöldasöng og tónlist. Þá mun engin önnur en Ugla Tré samfélagsrýnir heilsa upp á veislugesti. Að loknu borðhaldi hefst svo dansleikur með hinni frábæru norðlensku hljómsveit Í góðu lagi sem tryggja mun gott stuð til kl. 01.00

Matseðill:

Forréttur: Humarsúpa með þeyttum rjóma, dill-olíu ásamt brauði & smjöri.

Aðalréttur: Íslenskt lambalæri með hægelduðum lambaskanka, nýpumús, steiktu grænmeti, kartöfluterrín og svarthvítlaukssoð.

Eftirréttur: Létt limoncello-tiramisu með lady-finger kexkökum og sítrónu rjóma.