Miðflokkurinn í Mosfellsbæ

Frambjóðendur í Mosfellsbæ

1. sæti

Sveinn Óskar Sigurðsson

2. sæti

Ingibjörg Einarsdóttir

3. sæti

Hjalti Árnason

4. sæti

Sóley Sævarsdóttir Meyer

5. sæti

Kristján Davíð Sigurjónsson

6. sæti

Karl Gissur Þórisson

7. sæti

Nói Þrastarsson

8. sæti

Sara Hafbergsdóttir

9. sæti

Ólafur Vignir Þórarinsson

10. sæti

Eyþór Bjarki Benediktsson

11. sæti

Aldís Dröfn Ingvarsdóttir

12. sæti

Bjarki Þór Þórisson

13. sæti

Pétur Þór Ásgeirsson

14. sæti

Helga Diljá Jónsdóttir

15. sæti

Sigurjón Kristjánsson

16. sæti

Jóhannes Birgir Jóhannesson

17. sæti

Mikael Árni Bergmann Þorsteinsson

18. sæti

Linda Björk Stefánsdóttir

19. sæti

Hlynur Hilmarsson

20. sæti

Friðbert Bragason

21. sæti

Sigurrós K. Indriðadóttir

22. sæti

Þorlákur Ásgeir Pétursson

Áherslumál

í

Mosfellsbæ

Sveitastjórnarkosningar 16. maí 2026 – Kjörtímabilið 2026-2030
Börnin fyrst. Alltaf – ábyrg stjórn – raunhæfar lausnir – í þágu allra íbúa


  • Börn með fjölþættan vanda – fyrirbyggjandi stuðningur
  • NEET ungmenni – utan skóla og vinnu – sérhæfð úrræði
  • Stuðningur við fjölskyldur áður en vandinn verður alvarlegur
  • Samhæfð þjónusta – Velferðartorg án flækjustigs
  • Barátta gegn einsemd og félagslegri einangrun barna
  • Könnun á möguleikum tveggja til þriggja öryggisíbúða fyrir börn í fíknivanda og aðstandendur vegna bráðatilfella.

Við viljum styrkja velferðarþjónustu og barnavernd með því að grípa fyrr inn í. Sérstök áhersla verður lögð á börn með fjölþættan vanda og ungmenni utan skóla og vinnu. Fjölskyldur og jafnvel starfsmenn stjórnsýslu þurfa stuðning og virkari úrræði áður en vandi barna með fjölþættan vanda í sveitarfélaginu verður alvarlegri. Samhæfing þjónustu verður að bæta enn frekar þannig að foreldrar þurfi ekki að fara um of margar og oft þröngar gáttir í leit að úrræðum fyrir börn sín.

Grípum fyrr inn – styðjum fjölskyldur

  • Þéttleiki í efri hluta Blikastaða endurmetinn – fleiri bílastæði
  • Umferðarþungi á Vesturlandsvegi – lausnir á undan framkvæmdum
  • Skólar og velferðainnviðir fylgi uppbyggingu eftir – ekki eftir á
  • Tenging (T2) fyrir bílaumferð úr hverfinu upp á Korpúlfstaðarveg verði tryggð
  • Hraðari og gagnsærri málsmeðferð í skipulags- og byggingamálum
  • Gerð verðmats á verkefninu í dag miðað við upprunalegar forsendur frá 2022 – krafist skal gagnsæis um hvort fjárhagsleg skilyrði hafi breyst.

Uppbygging Blikastaðalands er stærsta mál komandi kjörtímabils. Við fögnum vexti en krefjumst þess að innviðir — skólar, samgöngur og velferðarþjónusta — fylgi með frá upphafi. Reynslan af Helgafellshverfi má ekki endurtaka sig. Miðflokkurinn vill gefa íbúum raunverulegt vægi í umdeildri skipulagsákvörðun og tryggja að uppbygging þjóni hagsmunum bæjarins til langs tíma. Samgöngumat sýnir að hlutdeild almenningssamgangna í ferðavenjum er ofmetin í forsendum skipulagsins – krafist er þess að umferðarmat taki mið af raunhæfum spám áður en útgönguleiðir úr hverfinu eru endanlega ákveðnar og gengið er til verka á svæðinu.

Uppbygging í takt við innviði og íbúa

  •  Vesturlandsvegur — samstarf við Vegagerðina og nágrannasveitarfélög strax
  •  Sundabraut flýtt — lykilverk samhliða uppbyggingu Blikastaða
  •  Borgarlína endurmetin — tímalínan verður að vera raunhæf
  •  Fjölgun hleðslustöðva fyrir rafbíla
  •  Hjóla- og gangstígar styrktar sem hluti af daglegum samgöngum

Við getum ekki byggt þétt hverfi á grunni samgönguinnviða sem eru ekki til. Miðflokkurinn krefst þess að umferðarvandi á Vesturlandsvegi verði leystur áður en frekari uppbygging hefst. Borgarlínan er jákvæð hugmynd en tímalínan er óviss — við viljum raunhæfa áætlun, ekki loforð sem bíða í áratugi.

Raunhæfar lausnir — ekki pólitískar vonir

  •  Engar óþarfar biðraðir – mælanleg markmið sett og birt opinberlega
  •  Stafræn þjónusta og einfaldir ferlar
  •  Ríkið fjármagni lögbundin verkefni að fullu
  •  Aukið sjálfstæði sveitarfélaga í tekjustofnum
  •  Gagnsæi og opinn aðgangur að gögnum bæjarins
  • Árleg yfirferð á fjárhag bæjarins – ný framsetning – hvert fer hver króna?
  • Endurskoðun á samningnum við þjónustuaðila – verðlag þróast hratt
  • Kröfugerð um að ríkið endurgreiði sveitarfélögum raunkostnað vegna flutnings verkefna.
  • Aukin virðing á sjálfstæði sveitarfélaga gagnvart ríkisvaldinu

Miðflokkurinn vill byggja upp stjórnsýslu sem þjónar íbúum hratt og af fagmennsku. Markmið okkar er að draga úr biðtíma, einfalda ferla og auka aðgengi með stafrænum lausnum. Við krefjumst þess að ríkið tryggi fulla fjármögnun þeirra verkefna sem sveitarfélögum er falið að sinna, og leggjum áherslu á gagnsæja stjórnsýslu þar sem íbúar vita hvert fer hvert krónan.

Skilvirk, örugg og þjónustumiðuð

  • Fjölbreytt rekstrarform — þ.m.t. sjálfstæðir aðilar og dagforeldrar
  • Sveigjanleg vistun í takt við þarfir fjölskyldna
  • Stöðug mönnun og betri starfsaðstæður
  • Val foreldra í forgrunni
  • Heimgreiðslur til foreldra skoðaðar — til að auka valfrelsi og sveigjanleika fjölskyldna
  • Leikskólapláss tryggð samhliða íbúafjölgun á Blikastöðum

Við viljum leikskólakerfi sem tekur mið af raunverulegum þörfum fjölskyldna. Foreldrar eiga að hafa val um þjónustu og vistunartíma — þ.m.t. möguleikann á heimgreiðslum sem gera fjölskyldum kleift að velja þá lausn sem hentar þeim best, hvort sem það er leikskóli, dagforeldrar eða heimagæsla. Sérstaklega er brýnt að tryggja nýtt leikskólapláss samhliða áætlaðri íbúafjölgun í Blikastaðahverfi.

Sveigjanleiki, gæði og valfrelsi

  •  Foreldrar fá aukið vægi — sterkara samstarf heimila og skóla
  •  Bætt aðstaða, hljóðvist og kennsluaðstaða
  •  Fleiri talmeinafræðingar og sálfræðingar — styttri biðtímar
  •  Snemmtæk íhlutun fyrir börn með greiningar
  •  Nýr skóli samhliða Blikastaðauppbyggingu — loforð sem við stöndum við
  • Úttekt á stöðu sérfræðiþjónustu í samanburði við önnur sveitarfélög – niðurstöður birtar og aðgerðaráætlun gerð á fyrsta ári kjörtímabilsins

Mosfellsbær er eftir á miðað við nágrannasveitarfélög í talmeinaþjónustu og sérfræðiþjónustu. Við viljum fjölga fagmenntuðu starfsfólki og stytta biðtíma. Foreldrafélag Lágafellsskóla hefur réttilega bent á að nýr skóli verður að koma samhliða Blikastaðauppbyggingu — við munum standa við það loforð.

Gæði, snemmtæk íhlutun og innviðir

  • Stuðningur við félög — skýr samningur og fjármögnun
  • Samræmt samstarf bæjar og félaga
  • Aukið aðgengi barna óháð efnahag fjölskyldna
  • Íþróttaaðstaða í Blikastaðahverfi — fylgir uppbyggingu
  • Fjölíþróttaklasi — fullkomið aðgengi fyrir fatlaða og eldri borgara, fjölbreyttar íþróttir og lifandi starf
  • Frjálsar íþróttir endurvaktar í Mosfellsbæ – keppnissvæði sem stenst alþjóðastaðla

Íþróttir og æskulýðsstarf eru lykill að góðri heilsu og samfélagslegri þátttöku. Við viljum styrkja starf félaga og tryggja að öll börn hafi raunverulegt aðgengi óháð efnahag. Þegar ný hverfi eru byggð á íþróttaaðstaða fylgja með — það er hluti af samfélagslegu loforði gagnvart fjölskyldum sem flytja til bæjarins. Við viljum einnig koma á fót Fjölíþróttaklasa þar sem fatlaðir og eldri borgarar njóta fulls aðgengis og geta stundað fjölbreyttar íþróttir. Endurvekja frjálsar íþróttir og aðstöðu til keppnishalds.

Aðgengi, samvinna og heilbrigð uppbygging

  • Menningar- og tónlistarhús — undirbúningur hafinn á kjörtímabilinu
  • Stuðningur við listir og listamenn í bænum
  • Virkt menningarlíf allt árið — ekki bara á tilteknum tímabili
  • Álafosskvos — menningarmiðstöð þróuð sem áfangastaður

Menning er hluti af sjálfsmynd Mosfellsbæjar. Við viljum efla menningarlíf með betri aðstöðu og markvissri stefnu. Álafosskvos er einstakt tækifæri þar sem þegar er hafinn undirbúningur að ullarsýningu og menningarstarfsemi, og við viljum nýta það sem lifandi miðstöð fyrir bæði íbúa og ferðamenn. Undirbúningar vegna menningarhúss felur m.a. í sér könnun á fjármögnun í samstarfi við ríki og einkaaðila.

Lifandi menning og sameiginleg rými

  • Betri aðstaða fyrir verktaka og smærri fyrirtæki
  • Markviss þróun á ferðaþjónustu — náttúra og menning
  • Áfangastaðaþróun tekin á ný til bæjarins — markaðsmál og þróun áhugaverðra áfangastaða í Mosfellsbæ flutt frá Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
  • Meta hvata til atvinnuuppbyggingar – lækkun fasteignagjalda – bæta samkeppnishæfni Mosfellsbæjar

Við viljum efla Mosfellsbæ sem aðlaðandi stað fyrir atvinnulíf og nýsköpun. Markaðsmál og þróun áfangastaða í bænum á að vera á höndum bæjarins sjálfs — Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins hefur of miklar áherslur á Reykjavíkurborg og áfangastaði þar. Við viljum sjá sérstaka stefnu fyrir Mosfellsbæ þar sem náttúra, saga og menning bæjarins er markviss kynnt á eigin forsendum. Skerpa á þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins m.t.t. atvinnulífs og uppbyggingar atvinnu- og þjónustuhúsnæðis.

Mosfellsbær sem tækifæri

  • Nýtt heildstætt heilsuverkefni með skýru vörumerki
  • Samstarf við Reykjalund — nýtum sérfræðiþekkingu á staðnum
  • Forvarnir í forgrunni — ekki bara meðferð
  • Heilsusamfélag í Blikastaðahverfi — gangstígar og náttúruaðgangur
  • Aukin þjónusta í íþróttum fyrir eldri borgara — stærra hlutverki íþróttastarfs gefið í heilsueflingu
  • Fjölbreytt gufubaðarými í bænum — víðar staðsetningar, jafnvel við hafið

Við viljum efla lýðheilsu með forvörnum og samstarfi við Reykjalund. Sérstök áhersla er á heilsueflingu eldri borgara í gegnum íþróttir. Við viljum auka framboð á gufuböðum á fjölbreyttum stöðum og styðja við rekstur þeirra í samráði við íþróttafélög. Nýtt hverfi á Blikastöðum er tækifæri til að hanna heilsueflandi umhverfi frá grunni. Samráð við sundstaði um tilraunaverkefni með ilmolíur í gufuböðum í allt að tvo tíma á dag.

Heilsueflandi Mosfellsbær

  • Fleiri leiguíbúðir á viðráðanlegu verði
  • Aðgengilegt húsnæði í nýjum hverfum — fjölbreytt, ekki bara dýrar lóðir
  • Húsnæðisstuðningur fyrir ungt fólk og lágtekjufólk
  • Samstarf varðandi félagslegar íbúðir um fleiri einstaklingsíbúðir
  • Skýrari grein gerð fyrir hlutfalli leiguhúsnæðis að Blikastöðum

Mosfellsbær vex hratt en húsnæðisöryggi fylgir ekki alltaf með. Við viljum sjá fleiri leiguíbúðir á viðráðanlegu verði og tryggja að uppbygging nýrra hverfa bjóði upp á fjölbreyttar búsetulausnir — ekki einvörðungu dýrar einbýlislóðir heldur einnig hagkvæmara húsnæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga.

Öruggt húsnæði fyrir alla

  • Þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara — biðlistar styttir
  • Stuðningur við eldri borgara til að búa lengur á eigin heimili
  • Heima- og dagþjónusta styrkt og fjármögnuð
  • Akstursþjónusta tryggð og framtíð hennar varðveitt
  • Fríkort í grunníþróttir — nýtanlegt virka daga kl. 11–15 (íþróttamiðstöðvar, sundlaugar o.fl.)
  • Samhæfð þjónusta — einföldun ferla og eitt inntakskerfi fyrir eldri borgara
  • Kostnaðarmat á fríkorti eldri borgara lagt fram á fyrsta ári – samstarf við íþróttafélög um fjármögnun

Eldri borgarar eiga rétt á þjónustu, reisn og virku lífi. Við viljum stytta biðlista eftir þjónustuíbúðum, styrkja heimaþjónustu og tryggja akstursþjónustu. Sem hluta af heilsueflingu og félagslífsgæðum fá eldri borgarar (67+) fríkort í grunníþróttir í Mosfellsbæ — nýtanleg alla virka daga frá kl. 11 til 15. Enginn á að þurfa að bíða í ár eftir aðstoð við að búa við öryggi og reisn.

Reisn, þjónusta og virkt líf — 67+

Fréttir & tilkynningar

Kosningaskrifstofa:
Flugumýri 28, 270 Mosfellsbæ

Opnunartímar fram að kjördag, laugardaginn 16. maí.
Þriðjudaginn 12. maí: 13:00 til 18:00 (formleg opnun kl. 18).
Miðvikudaginn 13. maí: 13:00 til 18:00
Fimmtudaginn 14. maí: 13:00 til 18:00
Föstudginn 15. maí: 13:00 til 18:00

Kosningastjóri:
Nói Þrastarson
Netfang:
noithrastarson@gmail.com
Símanúmer:
855-4544

Gaktu í lið með Íslandi.

Sýndu að þú sért stuðningsmaður.

Styrktu starf Miðflokksins