Flokksráðsfundur 14. mars á Akureyri
Flokksráð Miðflokksins fundar 14. mars nk. á Akureyri. Gert er ráð fyrir að fundurinn hefjist um hádegi og ljúki síðdegis en um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður. Föstudaginn 13. mars mun Miðflokksdeild Akureyrar bjóða flokksráðsfulltrúum og mökum uppá dagskrá frá kl. 17.00
Nánari upplýsingar veita formenn kjördæmafélaga og deilda
Í flokksráði eiga sæti fulltrúar sem eru sjálfkjörnir eða valdir skv. lögum Miðflokksins
„3.3.8. Í flokksráði eiga sæti:
Stjórn Miðflokksins.
Stjórnir kjördæmafélaga og formenn deilda. Sé aðalmaður fjarverandi á flokksráðsfundi getur hann tilnefnt varamann í sinn stað og velur þá sjálfur úr hópi félaga í viðkomandi félagi. Tilnefni fjarverandi aðalmaður ekki varamann hefur stjórn flokksins heimild til að tilnefna varamann.
Þingmenn og ráðherrar Miðflokksins og fyrrverandi þingmenn, sem skráðir eru í Miðflokkinn.
Efstu fimm frambjóðendur á listum flokksins í hverju kjördæmi til síðustu alþingiskosninga.
Kjörnir sveitarstjórnarmenn Miðflokksins.
Efstu tveir frambjóðendur á listum flokksins í hverju sveitarfélagi til síðustu sveitarstjórnakosninga enda séu þeir félagar í Miðflokknum
Formenn landssambanda.
Fimm félagsmenn tilnefndir af stjórn hvers kjördæmafélags. Þeir skulu tilnefndir á aðalfundi til 2 ára í senn.
Aðalmenn fastanefnda.“
Dagskrá fundarinns verður birt þegar nær dregur
Miðflokkurinn.