Loading Viðburðir

« Allir Viðburðir

  • Þessi viðburður er búinn.

Opnunarpartý kosningaskrifstofu Miðflokksins í Kópavogi

apríl 23 @ 12:00 - 14:00
Sumardaginn fyrsta, 23. apríl kl. 12:00, blásum við til opnunar kosningaskrifstofu Miðflokksins í Kópavogi og þér er boðið!
Staðsetning: Sunnusmári 4. Geymdu bílastæðakvíðann heima því heill hellingur af bílastæðum er við Smáralindina… amk ennþá. Miðflokkurinn ætlar að standa vörð um þau eftir kosningar.
Framundan eru mikilvægar kosningar og við ætlum að hefja vegferðina af krafti. Komdu og taktu þátt í öflugri samstöðu, hittu frambjóðendur og áhugafólk, ræddu málin sem skipta þig máli og leggðu þitt af mörkum til sterkara samfélags.
Við bjóðum upp á léttar veitingar og drykki í léttu og skemmtilegu andrúmslofti.
Sameinumst um skýra sýn og kraftmikla framtíð fyrir Kópavog.

Allir velkomnir! Við tökum vel á móti þér.

Smáatriði

  • Dagsetning: apríl 23
  • Tímasetning:
    12:00 - 14:00