Miðflokkurinn í Vestmannaeyjum

Frambjóðendur í Vestmannaeyjum

1. sæti

Jón Þór Guðjónsson

Tölvunarfræðingur og atvinnurekandi
2. sæti

Sæunn Magnúsdóttir

Lögfræðingur
3. sæti

Jóhann Ingi Óskarsson

Smiður og atvinnurekandi
4. sæti

Sonja Andrésardóttir

Tómstunda- og virknistjóri
5. sæti

Guðni Hjörleifsson

Veiðarfæratæknir
6. sæti

Þuríður Bernódusdóttir

Eldri borgari og afgreiðslustúlka
7. sæti

Linda Rós Sigurðardóttir

Tækniteiknari
8. sæti

Erlendur Ágúst Stefánsson

Rafvirkjameistari og sjómaður
9. sæti

Emma Karína Jakobsen

Húsmóðir
10. sæti

Sveinn Hjalti Guðmundsson

Flugstjóri
11. sæti

Hafþór Elí Hafsteinsson

Atvinnubílstjóri og söngvari
12. sæti

Ailandas Baurinas

Múrarameistari
13. sæti

Þórey Katla Brynjarsdóttir

Sundlaugarvörður
14. sæti

Jón Helgi Gíslason

Málarameistari
15. sæti

Sigdór Yngvi Kristinsson

Atvinnurekandi
16. sæti

Adam Smári Sigfússon

Sjómaður
17. sæti

Elmar Hrafn Óskarsson

Gæða- og verkstjóri
18. sæti

Eyjólfur Pétursson

Stýrimaður og aflakóngur

Áherslumál

í

Vestmannaeyjum

Miðflokkurinn í Vestmannaeyjum vill byggja upp sterkt og traust samfélag þar sem skynsemi, ábyrgð og langtímahugsun ráða för. Ákvarðanir í dag eiga að standa undir kröfum morgundagsins fyrir íbúa, fjölskyldur og atvinnulíf.

Við leggjum áherslu á ábyrga uppbyggingu með skýra framtíðarsýn að leiðarljósi. Það þýðir að forgangsraða rétt, nýta fjármagn vel og vanda til verka í öllum framkvæmdum. Við viljum byggja með eyjunni en ekki yfir hana og virða sérstöðu náttúrunnar, hraunsins, klettanna og sögunnar sem hefur mótað samfélagið okkar.

Markmið okkar er að skapa samfélag þar sem gott er að búa, starfa og eldast, samfélag sem nýtir tækifærin sem eru til staðar hér og nú!


Við leggjum áherslu á skýra framtíðarsýn og markvissa uppbyggingu, við viljum:

  • Stórskipahöfn við Eiðið til að styrkja samkeppnishæfni og atvinnulíf Eyjanna.
  • Móta heildstæða framtíðarsýn og stefnu um uppbyggingu og viðhald fasteigna bæjarins, þar með talið íþróttamannvirkja. 
  • Skipuleggja lóðir undir íbúðarhúsnæði svo sem austan Dverghamars, sunnan Hraunhamars og sunnan Stapavegs. 
  • Finna nýju hjúkrunarheimili stað í skipulagi bæjarins, leggja lóð til verkefnisins gegn kröfu um að ríkið byggi nýtt hjúkrunarheimili í Vestmannaeyjum.
  • Bæta skipulag umferðar þungaflutninga um Strandveg með öryggi að leiðarljósi. 
  • Auka aðgengi og bæta akstursleiðir við stofnanir.
  • Vernda atvinnuhúsnæði og setja frekari hömlur á breytingar þess í íbúðarhús á lykilsvæðum. 
  • Fjölga lóðum undir atvinnustarfsemi. 
  • Bæta aðgengi að salernum fyrir ferðamenn og gesti í Stórhöfða og Herjólfsdal.
  • Móta heildstæða framtíðarsýn fyrir uppbyggingu innviða í Herjólfsdal. 
  • Byggja í sátt við eyjuna okkar en ekki á kostnað hennar. Við viljum vernda hina fallegu kletta og hraun þar sem því verður við komið, meðal annars með því að skipuleggja hluta nýja hraunsins sem jarðvang.
Við leggjum áherslu á skýra framtíðarsýn og markvissa uppbyggingu, við viljum:

Við viljum hreint, fallegt og aðgengilegt umhverfi, við munum:

  • Kanna fýsileika sorpbrennslu í Vestmannaeyjum. 
  • Efla viðhald og uppbyggingu gatna, göngustíga og hjólastíga. 
  • Skipuleggja Herjólfsdal með hóflegri uppbyggingu sem lágmarkar rask og eykur notagildi fyrir fjölskyldur, ferðamenn og viðburðahald. 
  • Tryggja góða dreifingu sorpíláta og skilvirka sorphirðu, ásamt góðum rekstri og umhirðu móttökustöðvar og nærumhverfis hennar.
Við viljum hreint, fallegt og aðgengilegt umhverfi, við munum:

Öflugar samgöngur eru lykill að lífsgæðum og atvinnu. Þess vegna munum við:

  • Styðja áframhaldandi rannsóknir á jarðgöngum milli lands og Eyja. 
  • Berjast fyrir úrbótum í Landeyjahöfn, þar á meðal byggingu varnargarðs til austurs. 
  • Berjast fyrir eflingu flugsamgangna, fleiri ferðum og áframhaldandi tilveru Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni. 
  • Tryggja að Herjólfur verði áfram rekinn af heimamönnum.
Öflugar samgöngur eru lykill að lífsgæðum og atvinnu. Þess vegna munum við:

Heilbrigðisþjónusta þarf að vera öflug og aðgengileg. Við munum:

  • Halda áfram að berjast fyrir og þrýsta á innleiðingu sjúkraþyrluverkefnisins. 
  • Vinna ötullega að því að tryggt verði að Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum, þar með talið Hraunbúðir, verði vel mönnuð og geti sinnt þörfum samfélagsins. 
  • Tryggja faglega og lögbundna þjónustu við einstaklinga með fatlanir.
  • Styðja við og efla heilsueflingu og stuðningsþjónustu við eldri borgara.
  • Skoða möguleika á að koma að úrræði fyrir einstaklinga sem þurfa á endurhæfingu eða félagslegri virkni að halda.
Heilbrigðisþjónusta þarf að vera öflug og aðgengileg. Við munum:

Fjölskyldan er það mikilvægasta sem við eigum. Samfélagið okkar á að veita fjölskyldum tækifæri á að blómstra

  • Leikskólakerfið þarf að styðja við atvinnuþátttöku foreldra en ekki draga úr henni. Tryggja þarf 36 klukkustunda gjaldfrjálsa vistun á viku, afnema tekjutengingu gjalda og fella niður aukagjöld sem innheimt eru í dymbilviku og sambærilegum dögum.
  • Við viljum að allar menntastofnanir verði áfram á sviði þeirra fremstu, m.a með áframhaldandi þróun kveikjum neistans.
  • Sprangið er hluti af menningu okkar. Miðflokkurinn vill fegra og bæta aðgengi að Spröngunni og að boðið verði upp á sýnikennslu í sprangi yfir sumartímann, þannig kynnum við og varðveitum þennan merka sið.
  • Við viljum gera Stakkagerðistúni hærra undir höfði sem fjölskyldusvæði, laga gosbrunninn og koma upp grillaðstöðu.
  • Afnema tekjutengingu heimgreiðslna.
  • Yfirbyggð hjólaskýli við skóla, leikskóla og íþróttamiðstöð.
Fjölskyldan er það mikilvægasta sem við eigum. Samfélagið okkar á að veita fjölskyldum tækifæri á að blómstra

Við leggjum áherslu á vandaða stjórnsýslu, ábyrgan og skilvirkan rekstur. Við munum:

  • Berjast fyrir aukinni þátttöku ríkisins í fjármögnun vatnslagnarinnar. 
  • Leita leiða til að nýta fasteignir bæjarins fyrir hinar ýmsu stofnanir og félagasamtök með það að markmiði að auka skilvirkni og hagkvæmni.
  • Beita okkur fyrir því að matvöruverslanir í Eyjum verði færðar í hærri flokk en í dag eru aðeins svokallaðar C verslanir í bænum. 
  • Leggja áherslu á fagmennsku og vönduð vinnubrögð þegar kemur að útboðsmálum til að fyrirbyggja sambærileg mistök og hafa átt sér stað á undanförnum misserum.
  • Takmarka útvistun verkefna við þau tilvik þar sem hún er fjárhagslega hagkvæm.
  • Beita okkur fyrir raunlækkun fasteignagjalda. 
Við leggjum áherslu á vandaða stjórnsýslu, ábyrgan og skilvirkan rekstur. Við munum:

Við viljum öflugt og fjölbreytt atvinnulíf, við viljum:

  • Skapa umhverfi þar sem fjölbreytt atvinnulíf getur dafnað.
  • Efla samstarf við atvinnurekendur með lausnamiðaðri nálgun. 
  • Berjast fyrir því að opinber störf verði í auknum mæli staðsett í Vestmannaeyjum.
Við viljum öflugt og fjölbreytt atvinnulíf, við viljum:

Við viljum sanngjarnt orkuverð fyrir alla landsmenn, við munum:

  • Berjast fyrir jöfnum kjörum í raforku og hitaveitu óháð búsetu.
Við viljum sanngjarnt orkuverð fyrir alla landsmenn, við munum:

Markmið Miðflokksins er skýrt! Við viljum byggja upp samfélag þar sem fólk vill búa, starfa og ala upp börn. Við viljum samfélag sem nýtir styrkleika sína, verndar sérstöðu sína og horfir af metnaði til framtíðar.

TÆKIFÆRIÐ ER NÚNA! 

Fréttir & tilkynningar

Kosningaskrifstofa:
Strandvegur 51, 900 Vestmannaeyjar

Miðgarður

Kosningastjóri:
Margrét Ingólfsdóttir
Netfang:
margret.ingolfsdottir@gmail.com
Símanúmer:
866-6333

Gaktu í lið með Íslandi.

Sýndu að þú sért stuðningsmaður.

Styrktu starf Miðflokksins