Snorri í Grjótkastinu

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, var gestur í hlaðvarpinu Grjótkastið 16. sept sl. í þættinum Hvað má ræða og hvað ekki? Menningarstríðin hin nýju.

Um þáttinn: Menningarstríðin hin nýju, þar sem margir hreinlega standa á orginu og telja að fólk annarrar skoðunar megi helst hvergi þrífast setja mark sitt á alla umræðu, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim. Hvers vegna er skautunin svo mikil og óþol fyrir andstæðum skoðunum? Morðið á Charlie Kirk, staða Þjóðkirkjunnar, hin ömurlegu átök fyrir botni Miðjarðarhafs og margt fleira eldfimt til umræðu og gestir eru sr. Örn Bárður Jónsson prestur, Snorri Másson alþingismaður Miðflokksins og Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og siðfræðingur.