Miðflokkurinn í Skagafirði
Staðir:
Sauðárkrókur, Varmahlíð, Hofsós, Fljót
Samfélagsmiðlar

Frambjóðendur í Skagafirði

1. sæti
Högni Elfar Gylfason

2. sæti
Jódís Helga Káradóttir

3. sæti
Elfa Björk Víðisdóttir

4. sæti
Sædís Bylgja Jónsdóttir

5. sæti
Hreiðar Örn Steinþórsson

6. sæti
Helga Rósa Pálsdóttir

7. sæti
Valdimar Árni Þorbergsson

8. sæti
Hólmsteinn Orri Þorleifsson

9. sæti
Kristján Ingi Sigurðsson

10. sæti
Hafsteinn Máni Björnsson

11. sæti
Karen Edda Kristjánsdóttir

12. sæti
Sigurjón Hreiðar Sigurbjörnsson

13. sæti
Kristján Elvar Gíslason

14. sæti
Sigfríður Jódís Halldórsdóttir

15. sæti
Hafsteinn Logi Sigurðarson

16. sæti
Líney María Hjálmarsdóttir

17. sæti
Ingi Sigþór Gunnarsson

18. sæti
Jóhann Már Jóhannsson
— Framtíðarsýn okkar —
Áherslumál
í
Skagafirði
Við leggjum áherslu á ábyrga fjármálastjórn, aðhald í rekstri og skýra forgangsröðun. Við lítum svo á að fjármunir sveitarfélagsins séu eign íbúanna og því beri að nýta þá af ábyrgð og með hagsmuni samfélagsins alls að leiðarljósi. Lögbundin þjónusta á ávallt að ganga fyrir og við teljum brýnt að sveitarfélagið einbeiti sér að þeim verkefnum sem skipta mestu máli í daglegu lífi fólks. Við viljum yfirfara kostnað við samninga og rekstur sveitarfélagsins með það að markmiði að draga úr útgjöldum, bæta nýtingu fjármuna og greiða niður skuldir. Á sama tíma viljum við auka gagnsæi svo íbúar geti séð með skýrum hætti hvert skattfé þeirra fer og á hvaða forsendum ákvarðanir eru teknar. Við viljum skoða fækkun sveitarstjórnarfulltrúa í þeim tilgangi að draga úr kostnaði við yfirstjórn sveitarfélagsins. Stjórnsýslan á að vera fagleg, lögmæt og gagnsæ.
Sjá nánar →
Við viljum efla íbúalýðræði í Skagafirði og auka traust á milli íbúa og sveitarstjórnar. Okkar sýn er sú að stórar og kostnaðarsamar ákvarðanir, sérstaklega þær sem falla ekki undir lögbundin hlutverk sveitarfélagsins, eigi ekki að vera teknar án virks samráðs við íbúa. Við teljum mikilvægt að leita reglulega til íbúa varðandi málefni sem snerta nærumhverfi þeirra, þjónustu og uppbyggingu. Sveitarfélagið á að vera aðgengilegt og upplýsingagjöf skýr og auðfengin. Með auknu íbúalýðræði, heiðarlegri upplýsingagjöf og skýrari stjórnsýslu byggjum við upp gagnkvæmt traust.
Sjá nánar →
Leikskólamál eru eitt stærsta hagsmunamál ungra fjölskyldna og viljum við setja þau í forgang. Við vitum að staðan er erfið fyrir marga foreldra þegar bil myndast á milli fæðingarorlofs og leikskólapláss og því viljum við styrkja stöðu þeirra með raunhæfum aðgerðum. Við leggjum til að heimgreiðslur verði hækkaðar verulega þar til barn fær leikskólapláss, þannig að foreldrar hafi meira svigrúm til að skipuleggja fjölskyldulíf sitt. Jafnframt viljum við skoða sveigjanlegar lausnir fyrir foreldra sem nýta ekki fullt leikskólapláss, svo sem hlutagreiðslur eða sérstakan stuðning og minnka þannig á sama tíma álag á leikskólana. Skortur á faglærðu starfsfólki er alvarlegt mál og munum við leggja áherslu á að bæta starfsumhverfi, skapa aukin tækifæri til náms á vinnutíma og öflugri stuðning við starfsþróun. Markmiðið er að fjölga leikskólaplássum í takt við þarfir samfélagsins, bæta starfsaðstæður og tryggja að fjölskyldur upplifi stuðning í stað óvissu.
Sjá nánar →
Við teljum að sterkt skóla- og íþróttastarf sé ein af undirstöðum eftirsóknarverðs samfélags. Börn og ungmenni í Skagafirði eiga að njóta góðs aðbúnaðar, jafns aðgengis að tækifærum og öflugs starfs í sínu nærumhverfi. Eitt af forgagnsverkefnum okkar verður að skapa börnunum á Hofsósi viðeigandi íþróttaaðstöðu til framtíðar. Við viljum jafnframt efla íþróttastarf allra barna sveitarfélagsins óháð búsetu og tryggja að aðstaða, stuðningur og fjárfestingar taki mið af þörfum samfélagsins. Horfa þarf til frekari uppbyggingar íþróttaaðstöðu á Sauðárkróki. Í skólastarfi viljum við að áhersla sé lögð á fagmennsku, skýra ábyrgð og heilnæmt umhverfi barna. Börn með sérþarfir eiga að hafa aðgang að viðeigandi þjónustu og stuðningi.
Sjá nánar →
Skagafjörður stendur frammi fyrir verulegri innviðaskuld og við teljum óumflýjanlegt að taka á henni af festu. Öflugir innviðir eru forsenda búsetu, atvinnuuppbyggingar og öryggis og því þarf að setja þá í forgang. Við viljum ráðast í markvissar úrbætur gamalla lagnakerfa, sérstaklega í neðri hluta Sauðárkróks. Við viljum einnig leggja áherslu á öflug veitukerfi og stuðla að frekari nýtingu jarðhita til hagsbóta fyrir öll svæði Skagafjarðar. Samgöngur, viðhald gatna og skilvirkur snjómokstur skipta einnig miklu máli fyrir daglegt líf íbúa og atvinnustarfsemi. Það sama á við um sorphirðu, þar sem við viljum skoða sanngjarnara fyrirkomulag sem tekur mið af því að íbúar greiði fyrir þá þjónustu sem þeir nýta.
Sjá nánar →
Í stefnumótun sveitarfélagsins þarf að hafa að leiðarljósi að þjónustan nái til allra íbúa. Við leggjum ríka áherslu á velferðarmál, þjónustu við eldri borgara, fatlað fólk og aðra sem þurfa á sérhæfðum stuðningi að halda. Við teljum forgangsmál að ráðast í uppbyggingu hjúkrunarheimilis og styrkja þjónustu við eldra fólk þannig að það geti búið við öryggi og reisn. Einnig viljum við bæta þjónustu við fatlað fólk og einstaklinga með flóknar stuðningsþarfir. Þá viljum við efla upplýsingagjöf og þjónustu við íbúa af erlendum uppruna svo allir geti nýtt sér réttindi sín og tekið virkan þátt í samfélaginu. Við fordæmum alla mismunun á grundvelli kyns, kynþáttar, kynferðis, trúar, o.s.frv. Góð þjónusta byggir á jafnræði, aðgengi og mannlegri sýn.
Sjá nánar →
Við lítum svo á að öflugt atvinnulíf sé forsenda samkeppnishæfni sveitarfélagsins. Skagafjörður hefur mikla sérstöðu og tækifæri, svo sem á sviði sjávarútvegs, landbúnaðar, matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu, iðnaðar, menntunar og nýsköpunar. Sveitarfélagið á að styðja við þessa þróun með góðu skipulagi, öflugum innviðum, skilvirkri stjórnsýslu og markvissri samvinnu við atvinnulíf og ríki. Við viljum að eignir sveitarfélagsins séu nýttar betur. Huga þar að stuðningi við nýja starfsemi og verðmætasköpun. Samvinna við Háskólann á Hólum er mikilvæg og viljum við skoða hvernig efla megi Hólastað. Klára þarf fyrirhugaða uppbyggingu hafnarinnar á Sauðárkróki. Markmiðið er að skapa fleiri störf, efla byggð og tryggja að fleiri sjái sér hag í að búa og starfa í Skagafirði til framtíðar.
Sjá nánar →
Við metum menningu, félagslíf og samfélagsanda mikils, en leggjum jafnframt áherslu á ábyrgð og raunsæi í þeim málaflokki. Við teljum mikilvægt að nýta sem best það húsnæði og þá aðstöðu sem þegar er til staðar áður en ráðist er í kostnaðarsamar nýbyggingar. Engum dylst að aðstaða fyrir menningu á að endurspegla metnað hvers samfélags og því erum við hlynnt því að aðstaða höfuðsafna Skagafjarðar og sviðslista á Sauðárkróki sé bætt til framtíðar. Leggja þarf fram uppreiknaða kostnaðaráætlun fyrir nýtt menningarhús á Sauðárkróki, þar sem ekkert er undan skilið ásamt því að kynna rekstraráætlun og skapa þannig trúverðugleika um framkvæmdina. Félagsheimili og önnur samfélagshús í dreifbýli gegna mikilvægu hlutverki í lífi nærsamfélaga og við viljum styðja við nýtingu þeirra.
Sjá nánar →
Við teljum nauðsynlegt að stjórnun sveitarfélagsins byggi á fagmennsku, skýrri ábyrgð og vönduðum vinnubrögðum. Það á jafnt við um ráðningar, fjármál, skipulag og daglegan rekstur. Okkar markmið er að bæta verklag og skýra ábyrgð ásamt því að treysta tengsl milli kjörinna fulltrúa, stjórnenda og íbúa. Með því byggjum við upp sveitarfélag sem er betur rekið og betur í stakk búið til að mæta framtíðinni.
Sjá nánar →
Sveitarfélagið á ekki aðeins að sinna innri rekstri heldur einnig vera öflugur málsvari íbúanna gagnvart ríkinu. Við viljum beita okkur af meiri þunga í hagsmunagæslu fyrir Skagafjörð og vinna markvisst að framgangi þeirra verkefna sem skipta svæðið miklu máli. Þar má nefna samgöngubætur, viðhald og endurnýjun vega, aukið öryggi og betri tengingar við stór innviðaverkefni sem ríkið ber ábyrgð á. Sveitarstjórn á að byggja slíkan þrýsting á faglegum rökum og skýrum kröfum um jafnræði og uppbyggingu Íslands alls. Við viljum að Skagafjörður hafi sterka rödd og að sveitarstjórnin láti ekki við það sitja að bíða eftir ákvörðunum annarra.
Eftirfarandi málefni verða okkar helstu áhersluatriði í þessum efnum:
- Hólar í Hjaltadal er einn sögufrægasti staður Íslands og á skilið að honum sé sýndur viðeigandi sómi. Varðveita þarf þær bygginar sem þar eru og tryggja að þar verði áfram blómleg starfssemi.
- Lagning vegar og brúar milli Kjálka og Lýtingsstaðahrepps hins forna er mikilvæg samgöngubót og öryggisráðstöfun, bæði fyrir íbúa, ferðamenn og allan atvinnurekstur á svæðinu.
- Löngu tímabært er að stækka verknámshús FNV. Það eykur samkeppnishæfni héraðsins og rennir stoðum undir núverandi atvinnustarfsemi.
- Athuga skal stöðu Alexandersflugvallar sem varaflugvallar, líkt og ályktað hefur verið um á Alþingi íslendinga.
- Kanna skal virkjunarmöguleika Héraðsvatna, með það að markmiði koma þeim í nýtingarflokk.
- Lagning uppbyggðs vegar með bundnu slitlagi úr Skagafirði yfir Kjöl er mikilvæg samgöngubót fyrir héraðið. Slíkur vegur yrði mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði og myndi lækka flutningskostnað til muna.
- Þrýsta þarf á stjórnvöld að setja jarðgöng undir Öxnadalsheiði framar á forgangslista. Tíðar lokanir skapa hættu fyrir vegfarendur, veika og slasaða, ásamt því að auka kostnað og tafir fólks og fyrirtækja.
Sjá nánar →
Fréttir & tilkynningar

Skagafjörður á betra skilið
Hreiðar Örn Steinþórsson skrifar þann 11.05.2026 Íbúar í Skagafirði eru orðnir þreyttir á endalausum kosningaloforðum, loforðum þar sem alltaf á…

Viðhorf til valds
„Gagnsæi“ er orð sem heyrist oft í stjórnmálum. Svo oft reyndar, að sumir eru eflaust farnir að velta því fyrir…

X26 | Elfa Björk skipar 3. sæti M-listans í Skagafirði
Birtist á feykir.is 06.05.2026 Það er Elfa Björk Víðisdóttir sem svarar spurningum Feykis en hún skipar 3. sætið á lista…

Kosningaloforðið endalausa – Íþróttahúsið á Hofsósi
Sædís Bylgja Jónsdóttir skrifar 05. maí 2026 Ljóst er að íþróttahús eru ekki lúxus heldur nauðsyn. Þau eru hornsteinn í…

Oddvitaumræður í Skagafirði
Högni Elfar Gylfason, oddviti Miðflokksins í Skagafirði mætti í oddvitaumræður á RÚV til að ræða málefni sveitarfélagsins. Sjá þáttinn í…

Yfir milljón á dag – við getum gert betur
Jódís Helga og Elfa Björk skrifa þann 27.04 Fjárhagur sveitarfélags er ekki bara samansafn talna í ársreikningi. Hann er eign…

Tímar og tækifæri í Skagafirði
Högni Elfar Gylfason skrifar grein sem birtist á feykir.is Skagfirðingar þekkja öðrum fremur hversu mikil lífsgæði felast í því að búa…

Brúum bilið fyrir fjölskyldur í Skagafirði
Brúum bilið fyrir fjölskyldur í SkagafirðiElfa Björk og Sædís Bylgja skrifa grein sem birtist á feykir.is. „Í leikskóla er gaman“…

„Vont er þeirra ránglæti“
Í þeim leiðinda veðrabrigðum með roki og snjókomu sem að undanförnu hafa verið að hrjá okkur Skagfirðinga líkt og aðra…

Miðflokkurinn fyrir Skagfirðinga
Högni Elfar og Jódís Helga skrifa Senn líður að kosningum til sveitarstjórna í landinu þar sem íbúar velja sér fulltrúa…

Skagafjörður fyrir unga fólkið | Jódís Helga Káradóttir skrifar
Ég tilheyri þeirri kynslóð sem stendur frammi fyrir raunverulegu vali, að flytja burt eða að taka þátt í að byggja…
- Kosningaskrifstofan er opin frá 16:00 alla daga fram að kosningum
- Laugardagurinn 16. maí kosningakaffi og kosningavaka á Kaffi Krók


