Miðflokkurinn á Seltjarnarnesi

Frambjóðendur á Seltjarnarnesi

1. sæti

Skafti Harðarson

Framkvæmdastjóri
2. sæti

Þóra Sif Friðriksdóttir

Viðskiptafræðingur
3. sæti

Guðrún Jónsdóttir

Grunnskólakennari
4. sæti

Hannes Tryggvi Hafstein

Framkvæmdastjóri
5. sæti

Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir

Mannauðs- og gæðastjóri
6. sæti

Hákon Jónsson

Verkefnastjóri MPM
7. sæti

Ágústa Sif Víðisdóttir

Viðskiptafræðingur
8. sæti

Guðmundur Júlíus Gíslason

Flugstjóri
9. sæti

Tómas Nielsen

Markaðsstjóri
10. sæti

Maríanna Ósk Guðjónsdóttir

Aðstoðarleikskólakennari
11. sæti

Nökkvi Gunnarsson

Golfkennari og framkvæmdastjóri
12. sæti

Halldór Benóný Nellett

Skipherra
13. sæti

Viðar Freyr Guðmundsson

Rafeindatæknifræðingur
14. sæti

Ástríður Sigurrós Jónsdóttir

Viðskiptafræðingur

Áherslumál

á

Seltjarnarnesi


Lögbundinni grunnþjónustu á að sinna af kostgæfni, metnaði og með eins hagkvæmum hætti og hægt er. Áhersla skal lögð á gagnsæi í rekstri, þar sem fjárhagsupplýsingar eru aðgengilegar íbúum með eðlilegum takmörkunum vegna persónuverndar.

Þegar jafnvægi hefur náðst á ný eftir fjárhagsleg áföll undanfarinna ára mun Miðflokkurinn lækka fasteignaskatta. Tekjur bæjarins eru sterkar og innan þeirra marka á að vera unnt að reka bæjarsjóð með ábyrgum hætti.

Tryggja skal að breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga leiði ekki til aukinnar heildarbyrði á íbúa. Komi til hækkunar á útsvari skal lækka aðra skatta á móti.


Í skipulagsmálum skal ávallt gætt jafnræðis meðal íbúa og ekki verður ráðist í framkvæmdir nema í samráði við íbúa nærumhverfis.

Við uppbyggingu þeirra svæða sem eftir eru óbyggð skal horfa til tveggja jafn mikilvægra sjónarmiða. Annars vegar að byggð sé lágreist, falli vel að umhverfi sínu og taki mið af hagsmunum nærliggjandi íbúa. Hins vegar að bærinn fái eðlilegt endurgjald fyrir lóðir og byggingarétt. Ný byggð má jafnframt ekki skapa óhóflegan þrýsting á innviði.


Viðhald gatna, göngustíga, leiksvæða og fasteigna skal vera í forgangi. Setja þarf skýra og reglubundna viðhaldsáætlun til að tryggja gæði og öryggi í nærumhverfi íbúa.

Jafnframt skal bæta samskipti við íbúa með einföldum stafrænum lausnum sem gera þeim kleift að koma ábendingum um úrbætur á framfæri.

Við ætlum að efla fegrun bæjarins með markvissum og hagkvæmum aðgerðum sem gera hann blómlegri, snyrtilegri og aðlaðandi fyrir alla. Við munum auka þátttöku starfsmanna og íbúa við að gera bæinn grænni og vistvænni, meðal annars með öflugri gróðursetningu og markvissri umhirðu opinna svæða. Þá verður sérstaklega hvatt til samvinnu við íbúa og félagasamtök, til dæmis með uppsetningu bekkja við gönguleiðir þar sem styrktaraðilar geta lagt sitt af mörkum og sett svip á umhverfið.


Tryggja þarf greiðar og öruggar samgöngur til og frá Seltjarnarnesi. Áhersla skal lögð á að aðgengi neyðarþjónustu sé ávallt innan ásættanlegra marka.

Skipulagsbreytingar á helstu umferðaræðum skulu taka mið af raunverulegum þörfum íbúa og tryggja þarf að umferðarflæði batni. Framkvæmdir við Borgarlínu, sem eru hluti af Samgöngusáttmálanum, munu þrengja að umferð og auka álag á stofnæðar á borð við Miklubraut og Sæbraut. Miðflokkurinn hafnar þessum áformum og krefst endurskoðunar Samgöngusáttmálans.

Endurskoða þarf leiðakerfi Strætó bs. eða leita annarra leiða til að mæta þörfum íbúa fyrir almenningssamgöngur. Jafnframt skal leggja áherslu á umferðaröryggi íbúa, meðal annars með hraðalækkandi aðgerðum á borð við þrengingar þar sem þörf er á.


Tryggja skal nægilegt framboð leikskólaplássa og hagkvæmt rekstrarfyrirkomulag.

Sérstök áhersla skal lögð á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla með raunhæfum og fjölbreyttum úrræðum. Það felur ekki eingöngu í sér heimgreiðslur, heldur skal einnig tryggja jafnræði milli valkosta, svo sem dagforeldra og leikskóla utan sveitarfélagsins.

Endurskoða þarf núverandi fyrirkomulag fjárframlaga þannig að það mismuni ekki foreldrum eftir því hvaða úrræði þeir velja. Áætlanagerð skal byggja á traustum gögnum um fjölda barna og framtíðarþörf, þannig að þjónustan verði fyrirsjáanleg og skilvirk.

Skólastarf skal byggja á skýrri menntastefnu með metnað fyrir öfluga grunnmenntun. Foreldrar eiga að hafa aðgang að skýrum upplýsingum um framfarir og árangur barna sinna.

Kennarar eru lykilþáttur í góðu skólastarfi og mikilvægt er að styðja þá í starfi og efla það góða faglega starf sem þegar fer fram. Einnig viljum við bæta skólalóðirnar í samráði við starfsfólk skólanna.

Öryggi og velferð barna skal ávallt vera í forgangi, með öflugu eftirliti og nánu samstarfi skóla og heimila.


Á Seltjarnarnesi er öflugt og gott íþróttastarf og góð samræming milli skóla og tómstunda sem skapar góðar aðstæður fyrir börn og ungmenni. Fjármunum skal ráðstafað með skilvirkum hætti og með aukinni samvinnu félagasamtaka til að bæta þjónustu og nýtingu fjármuna.

Fá, ef nokkur, sveitarfélög ráðstafa jafn miklu fé til íþrótta- og æskulýðsmála og Seltjarnarnes, en aðeins fjórðungur þess rennur beint til Gróttu. Sem stærsta félag bæjarins gegnir Grótta lykilhlutverki og mikilvægt er að styðja starfsemi þess, enda er forvarnargildi íþrótta ótvírætt.

Einnig er mikilvægt að styðja vel við bakið á barna- og unglingastarfi Nesklúbbsins sem vaxið hefur ótrúlega á undanförnum árum, svo eftir er tekið.

Við viljum efla tómstundastyrki þannig að þeir nýtist sem flestum börnum. Aldursviðmið verða lækkuð niður í 4 ár og aukinn sveigjanleiki tryggður þannig að styrkir nái einnig til styttri og fjölbreyttari námskeiða. Jafnframt viljum við einfalda umsóknarferlið og gera ráðstöfun styrkja sjálfvirka.

Miðflokkurinn mun svara ákalli íbúa og færa opnunartíma sundlaugarinnar varanlega til fyrra horfs.


Félagsstarf eldri borgara á Seltjarnarnesi er öflugt og skiptir miklu máli fyrir virkni og líðan, en hlusta þarf betur á raddir þeirra og óskir. Aðstöðuleysi takmarkar félags- og tómstundastarf og mikilvægt er að bæta úr því.

Tryggja þarf að eldra fólk hafi raunhæfa möguleika á að búa sem lengst á eigin heimili og styrkja þarf þjónustu sem því fylgir. Stuðla skal að góðri lýðheilsu eldri borgara með því að efla aðgengi að hreyfingu, félagsstarfi og fjölbreyttum úrræðum sem bæta lífsgæði.


Bæta þarf ásýnd og nýtingu Eiðistorgs með reglulegu viðhaldi og markvissum aðgerðum.

Hefja skal opið samtal við eigendur og íbúa um framtíð svæðisins, með það að markmiði að efla mannlíf og gera torgið að aðlaðandi samkomustað. Skoða má einfaldar úrbætur, svo sem leiksvæði fyrir börn, og efna til hugmyndasamkeppni meðal íbúa um þróun svæðisins.

Endurreisn félagsheimilisins er mikilvægt verkefni sem þarf að nálgast af ábyrgð og með skýra framtíðarsýn. Núverandi staða kallar á heildstæða skoðun á kostnaði, nýtingarmöguleikum og langtíma hagkvæmni. Kanna skal raunhæfa möguleika á því að nýta húsnæðið undir starfsemi bæjarins, með það að markmiði að bæta nýtingu fjármuna og draga úr kostnaði vegna leiguhúsnæðis. Samhliða því þarf að horfa til þess að húsnæðið geti þjónað fjölbreyttum hópum, þar á meðal eldri borgurum og félagasamtökum, og orðið virkur samkomustaður fyrir bæjarbúa.


Seltjarnarnes er eitt eftirsóknarverðasta sveitarfélag landsins til búsetu og skyldi engan undra. Hér er gott að búa, ala upp börn og eldast í umhverfi í návist við sjávarsíðuna, stórbrotna náttúru og fjölbreytt fuglalíf. Íbúar nota vestursvæðin til útivistar og heilsubótar og í Suðurnesi fer fram öflugt íþrótta- og lýðheilsustarf fyrir alla aldurshópa.

Í þrjá áratugi hafa hundar verið bannaðir á vestursvæðum Seltjarnarness á varptíma. Miðflokkurinn vill heimila hunda aftur á göngustígum svæðisins, í stuttum taumi, þannig að hundaeigendur geti notið útivistar og náttúru með öðrum bæjarbúum árið um kring.

Standa þarf vörð um vestursvæðin, fjörur og fuglalíf og stýra þarf ört fjölgandi ferðamönnum um svæðið og setja skýrari reglur um nýtingu bílastæða við Gróttu. Þessari náttúruperlu þarf að hlúa að og varðveita. Ágangur sjávar er vaxandi ógn sem kallar á markvissar úrbætur á sjóvarnargörðum á Nesinu.


Miðflokkurinn vill skoða hugmyndir um að koma á Nespassa sem veitir bæjarbúum ókeypis eða lægri gjaldtöku en aðkomufólk og ferðamenn greiða. Passann mætti nýta í þjónustu á borð við aðgangseyri í sundlaugina og bílastæðagjöld við fjölfarna staði, með það að markmiði að tryggja sanngjarna gjaldtöku og forgang fyrir íbúa.


Áhersla Miðflokksins og óháðra er skýr. Við viljum draga úr útgjöldum, lækka fasteignaskatta og bæta rekstur bæjarins með aukinni skilvirkni.

Fáum við traust til áhrifa munu loforð okkar ekki gleymast eftir kosningar. Við munum upplýsa bæjarbúa reglulega um stöðu mála og framgang verkefna. Gamlar kosningayfirlýsingar sem gleymast strax munu heyra sögunni til. Við ætlum að gera hlutina öðruvísi, og tækifærið til þess er núna.

Fréttir & tilkynningar

Kosningaskrifstofa:
Austurströnd 1, Seltjarnarnesi, 2. hæð.

Opnunartími:

Opið fimmtudag 14. maí 13-17

Opið á kjördag 10-17

Kosningastjóri:
Skafti Harðarson
Oddviti Miðflokksins á Seltjarnarnesi
Netfang:
skafti.hardarson@mac.com
Símanúmer:
897-0815

Gaktu í lið með Íslandi.

Sýndu að þú sért stuðningsmaður.

Styrktu starf Miðflokksins