Frambjóðendur í Reykjanesbæ

1. sæti
Gunnlaugur Kárason

2. sæti
Rúnar Fossádal Árnason

3. sæti
Sigrún Þorsteinsdóttir

4. sæti
Bjarni Gunnólfsson

5. sæti
Matthildur Júlía Matthíasdóttir

6. sæti
Brynjólfur Sveinn Ívarsson

7. sæti
Davíð Brár Unnarsson

8. sæti
Aðalgeir Jónsson

9. sæti
Guðdís Eiríksdóttir

10. sæti
Bjarni Geir Bjarnason

11. sæti
Elísa Margrét Johnsen

12. sæti
Jón Ragnar Reynisson

13. sæti
Þorsteinn Ingi Hjálmarsson
14. sæti
Sigurður Jón Sigmundsson

15. sæti
Matthías Snorrason
16. sæti
Patience A.karlsson

17. sæti
Bryndís Káradóttir
18. sæti
Andrea Thorarensen

19. sæti
Elísa Gunnlaugsdóttir
20. sæti
Sandra Trang Bui Geirsdóttir

21. sæti
Karvel Granz

22. sæti
Pétur Þórarinsson
— Framtíðarsýn okkar —
Áherslumál
í
Reykjanesbæ
Miðflokkurinn ætlar að …
… efla móttökukennslu fyrir börn af erlendum uppruna til að styrkja íslenskukunnáttu og þátttöku í námi.
… tryggja framúrskarandi starfsaðstæður í skólum og draga markvisst úr álagi á starfsmenn.
… stuðla að bættum námsárangri í samstarfi við kennara og aðra starfsmenn í skólum Reykjanesbæjar og leggja áherslu á grunnfærni eins og læsi, íslensku og stærðfræði.
… taka upp skýrara einkunnakerfi í tölustöfum.
… innleiða fjölskylduverkefni með áherslu á árangur í lestri og virka þátttöku foreldra.
… kveikja aukinn áhuga á verk- og iðnmenntun strax á grunnskólastigi.
… efla geðheilbrigðisstuðning og stuðningsþjónustu í skólum.
… styðja við uppbyggingu Fjölbrautaskóla Suðurnesja með markvissum þrýstingi á ríkið um fjármagn fyrir skólann til að mæta þörfinni fyrir iðn- og verkmenntun.
Sjá nánar →
Miðflokkurinn ætlar að …
… tryggja öllum börnum frá fjórtán mánaða aldri leikskólapláss.
… tryggja betri leikskólaþjónustu með því að loka ekki öllum leikskólum samtímis í júlí.
… auka systkinaafslátt á leikskólum og hjá dagforeldrum, frítt fyrir þriðja barn og fleiri.
… tryggja valfrjálsar heimgreiðslur allt að 250.000 kr. til foreldra þegar fæðingarorlofi lýkur.
… auka áherslu á grunnglæsi í leikskólum svo börn komi betur undirbúin í grunnskóla.
Sjá nánar →
Reykjanesbær sem öflugan íþrótta- og menningarbæ með framúrskarandi aðstöðu.
Miðflokkurinn ætlar að …
… mæta þörfum vaxandi bæjar og byggja upp íþróttamannvirki á heimsmælikvarða fyrir alla aldurshópa, m.a. nýja fótbolta- og fimleikahöll, hús fyrir bardagaíþróttir o.fl.
… hækka hvatagreiðslur í 75.000 kr.
… auka afslætti fyrir systkini í íþrótta- og tómstundastarfi.
… bæta aðgengi barna með fötlun að íþrótta- og tómstundastarfi og auka möguleika þeirra til þátttöku.
… efla forvarnir til lýðheilsu strax á grunnskólastigi með markvissri fræðslu til foreldra.
Sjá nánar →
Búsetuúrræði fyrir hælisleitendur í bænum valda álagi á innviði og eru í óþökk bæjarbúa.
Miðflokkurinn ætlar að …
… tryggja að það verði engin búsetuúrræði fyrir hælisleitendur í Reykjanesbæ.
… tryggja að kostnaður vegna hælisleitenda falli ekki á sveitarfélagið.
… tryggja að öryggistilfinning íbúa sé virt, sérstaklega í almenningssamgöngum, sundlaugum og víðar.
… tryggja að áætluð brottfararstöð fyrir hælisleitendur verði lokað úrræði.
… beita sér fyrir því að ný lögreglustöð verði byggð í Reykjanesbæ.
… efla hagsmunagæslu, orðspor og stöðu Reykjanesbæjar á landsvísu.
… standa vörð um öfluga og skilvirka heilbrigðisþjónustu í Reykjanesbæ.
Sjá nánar →
Efla Reykjanesbæ sem nýsköpunarbæ með fjölbreytt og samkeppnishæft atvinnulíf.
Miðflokkurinn ætlar að …
… lækka fasteignaskatta á fyrirtæki í samræmi við skuldastöðu og rekstrarafkomu bæjarins.
… tryggja að Reykjanesbær verði með fjölbreytt framboð fjölbreyttra atvinnulóða.
… efla samstarf við einkaaðila í heimabyggð og styðja markvisst við atvinnuuppbyggingu.
… efla frumkvöðlastarf og nýsköpun með sterkari tengingu við atvinnulíf, menningu og skóla.
… vinna að því að tryggja að hátæknisorpbrennslustöð verði staðsett í Helguvík.
… vinna markvisst að því að tryggja næga orku á svæðinu.
… eiga frumkvæði að því að HSS verði hluti af háskólasjúkrahúsi Landspítalans.
… bjóða upp á vinnuskóla fyrir fyrsta árs nemendur í framhaldsskóla.
Sjá nánar →
Reka skal Reykjanesbæ með ábyrgum og skilvirkum hætti og tryggja að almannafé verði nýtt með hag íbúa að leiðarljósi.
Miðflokkurinn ætlar að …
… reka bæinn af fagmennsku, með viðmiðum sem þekkjast í vel reknum fyrirtækjum.
… tryggja ábyrga fjármálastjórn, halda álögum í skefjum og fjárfesta í uppbyggingu til framtíðar.
… bæta ferla og vinnu við fjárhagsáætlanir og stýringu verklegra framkvæmda.
… efla samstarf sveitarfélaga á Suðurnesjum og stefna að sameiningu.
… lækka útsvar í samræmi við skuldastöðu og rekstrarafkomu bæjarins.
… tryggja aukna nýtingu og tekjur af lóðum ríkisins í bænum, m.a. á Ásbrú.
… stefna á að Reykjanesbær taki yfir starfsemi Kadeco.
… setja aukna áherslu á fyrirbyggjandi viðhald innviða til að draga úr kostnaði til lengri tíma.
… bæta stafræna þjónustu og einfalda ferla þannig að þjónusta bæjarins verði skilvirkari.
… innleiða íbúalýðræði með stofnun hverfaráða og reglulegum samráðsfundum.
Sjá nánar →
Reykjanesbær verður fjölbreytt byggð sem hentar öllum hópum samfélagsins, með góðu aðgengi að þjónustu og nægu framboði bílastæða.
Miðflokkurinn ætlar að …
… endurskoða aðalskipulag bæjarins með skýrri framtíðarsýn um uppbyggingu íbúða, atvinnusvæða, samgangna, grænna svæða og bæjarþróun.
… stuðla að fjölbreyttari húsnæðisuppbyggingu sem mætir ólíkum þörfum íbúa.
… tryggja að næg bílastæði verði í takt við uppbyggingu og þróun bæjarins.
… endurskipuleggja Akademíureitinn út frá miðlægri þörf íþrótta og þjónustu.
… bæta umferðarlausnir, almenningssamgöngur og efla tengingar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
… bæta samgöngumannvirki með gerð hringtorga, undirganga og tvöföldun Njarðarbrautar.
… sinna markvissu og þarfagreindu viðhaldi gatna og stíga.
Sjá nánar →
Tryggjum eldri borgurum í Reykjanesbæ öruggt og áhyggjulaust ævikvöld með aðgengi að viðeigandi þjónustu, virkni og betri lífsgæðum
Miðflokkurinn ætlar að …
… stytta biðlista og tryggja betra aðgengi eldri borgara að heimaþjónustu.
… stuðla að því að aldraðir geti búið heima sem lengst og fjölga félagslegum íbúðum fyrir þá sem þess þurfa.
… hækka tekjutengda afslætti af fasteignagjöldum til að létta undir með eldri borgurum.
… efla þátttöku eldri borgara í samfélaginu, m.a. með aukinni aðkomu að skólastarfi (t.d. lestrarverkefni ömmu og afa).
… endurvekja heilsueflandi verkefni í anda Janusarverkefnisins með áherslu á hreyfingu og vellíðan.
Sjá nánar →
Reykjanesbær á að vera öflugur menningarbær.
Miðflokkurinn ætlar að …
… efla menningu og listsköpun markvisst til að auka veg Reykjanesbæjar sem menningarbæjar.
… efla menningartengda starfsemi með því að styðja við listamenn og skapandi listræna frumkvöðla.
… tryggja að börn komist í kynni við fjölbreytta listsköpun og menningu.
… styðja við viðburðahald allt árið sem laðar að íbúa og gesti og lífgar upp á bæjarlífið.
… standa vörð um sögu og menningu Reykjanesbæjar sem auðgar bæinn sem samfélag.
Sjá nánar →
Lífsgæði fyrir alla, alla daga, Reykjanesbær er samfélag fyrir alla.
Miðflokkurinn ætlar að …
… þróa þjónustu sem styður við sjálfstæða búsetu fatlaðs fólks með fjölbreyttum íbúðalausnum og aukinni áherslu á notendastýrðar þjónustuleiðir.
… auka samráð við notendur þjónustunnar og aðstandendur þeirra til að tryggja að velferðarþjónusta sveitarfélagsins þróist í takt við raunverulegar þarfir samfélagsins.
… skilvirkari velferðarþjónusta með öflugu starfsfólki.
… setja geðheilbrigðismál í forgang.
… vinna skipulega og markvisst að forvörnum fyrir börn, unglinga og foreldra.
Sjá nánar →
Fréttir & tilkynningar

Tími alvöru breytinga í Reykjanesbæ – Tækifærið er núna
Við höfum báðir búið í Reykjanesbær um árabil og fylgst með bænum okkar vaxa og þróast. Við vitum hversu mikil…

Tækifærið er núna – skipulag og framtíðarsýn í Reykjanesbæ
Skipulag skiptir sköpum í ört vaxandi bæjarfélagi eins og Reykjanesbæ. Þegar byggð stækkar hratt þarf að huga að mörgum þáttum…

Sterkt atvinnulíf – Reykjanesbær sem drifkraftur nýsköpunar og fjárfestinga
Ég hef áður sagt ykkur frá því að karlarnir í heita pottinum hafa flestir mjög sterka og oft ólíka skoðun…

Bless, bless, milljónir
Árið 2025 voru 78,6% þeirra sem þáðu fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ erlendir ríkisborgarar en heildarkostnaðurinn nam 224 milljónum króna.…

Það næstum sýður upp úr í heita pottinum
Rúnar Fossádal Árnason skrifar Miðvikudagur 8. apríl 2026. Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí næstkomandi. Á næstu dögum og vikum munu…

Tækifærið er núna! Öflugri Reykjanesbær með Miðflokknum
Gunnlaugur Kárason skrifar Mánudagur 30. mars 2026 Reykjanesbær er samfélag sem býr yfir gríðarlegum krafti. Við í Miðflokknum fögnum því…




