Frambjóðendur í Kópavogi

1. sæti
Einar Jóhannes Guðnason

2. sæti
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

3. sæti
Beitir Ólafsson

4. sæti
Thelma Bergmann Árnadóttir

5. sæti
Trausti Örn Þórðarson
6. sæti
Ævar Örn Jóhannsson
7. sæti
Una María Óskarsdóttir
8. sæti
Guðmundur Pétur Pálsson
9. sæti
Eva Guðrún Hilmarsdóttir
10. sæti
Högni Guðmundsson
11. sæti
Inga Jóna Gunnarsdóttir
12. sæti
Kolbeinn Sturla Baldursson
13. sæti
Anna Pétursdóttir
14. sæti
Matthildur Skúladóttir
15. sæti
Sigurður Bjarni Jónsson
16. sæti
Guðrún Stefánsdóttir
17. sæti
Magnús Valur Böðvarsson
18. sæti
Alda Viggósdóttir
19. sæti
Ásgeir Önundarson
20. sæti
Kristján Atli Marteinsson
21. sæti
Einar Baldursson
22. sæti
Ragnheiður Brynjólfsdóttir
— Framtíðarsýn okkar —
Áherslumál
í Kópavogi
Stefnu Miðflokksins í Kópavogi má draga saman í tveimur punktum:
- Miðflokkurinn í Kópavogi vill stöðva Reykjavíkurvæðingu Kópavogs og mun koma skynsemi aftur inn í skipulagið.
- Miðflokkurinn í Kópavogi vill róttækar aðgerðir í menntamálum og stjórnsýslu bæjarins, með mælanlegum árangri ekki hugmyndafræði.
Miðflokkurinn í Kópavogi hafnar Borgarlínunni og kallar eftir virkjun endurskoðunarákvæðis samgöngusáttmálans. Fyrir liggja betri tillögur sem samtökin Samgöngur fyrir Alla hafa lagt fram sem forgangsraða vegaframkvæmdum og skynsamari stefnu í almenningssamgöngum sem er til þess fallin að bæta samgöngur á höfuðborgarsvæðinu fyrir alla ferðamáta.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Endurskoðunarákvæði samgöngusáttmálans virkjað
- Frítt í strætó sem tilraun í 2 ár á meðan farið er í endurbætur
- Fjölgun forgangsakreina úti í enda fremur en miðjusettar
- Aukin tíðni í strætó, 10 mín á háannatíma og 15 mín almennt
- Endurskoðun leiðarnets til þess að auka skilvirkni innan Kópavogs og í tengingu við önnur sveitarfélög
Kópavogur á að vera eftirsótt sveitarfélag til þess að búa í þar sem bílastæði eru ekki munaðarvara og innviðir nýrra hverfa sitja ekki á hakanum. Það er ekki ákall frá bæjarbúum að þétta byggð, gjaldskylda bílastæði eða breyttar ferðavenjur. Ákallið er eftir spennandi kjörnum með blómlegu mannlífi, að geta stækkað við sig sem og minnkað við sig innan hverfis, geta sótt þjónustu nálægt heimili og að geta boðið fjölskyldu og vinum heim til sín.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Að hverri íbúð fylgi að lágmarki 2 bílastæði
- Matvöruverslun innan hverfis
- Uppbygging „miðbæjarkjarna“ sem hægt sé að sækja á þeim farakosti sem maður vill
- Forgangsröðun uppbyggingar þjónustu og verslana í nýjum hverfum
- Íbúalýðræði sé virt þegar kemur að stórum framkvæmdum í eldri byggðum og að fundir séu ekki bara til þess að geta sagst hafa mætt heldur að á íbúa sé hlustað
Miðflokkurinn í Kópavogi vill að lóðir séu hilluvara og að fjölskyldur eigi möguleika á að byggja draumaheimili sitt í Kópavogi. Lóðir eiga ekki að vera tekjulind sveitarfélaga og þarf að afvinda af öllum óþarfa gjöldum og hvötum sveitarfélaga til að skammta lóðaúthlutunum. Þörf er á samhentu átaki allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem felur eftirfarandi í sér:
- Afnám vaxtamarka Höfuðborgarsvæðisins
- Afnám lóðagjalda og að einungis séu greidd gatnagerðar- og önnur nauðsynja gjöld.
Sjá nánar →
Miðflokkurinn vill ráðast í róttækar endurbætur í skólum Kópavogs sem munu gefa kennurum aftur völdin á skólastofunni sinni og úrræði til þess að taka á vandamálum. Tryggja þarf vinnufrið og aga í skólum.
Miðflokkurinn vill skóla með aðgreiningu. Börn eru með mismunandi þarfir og er mikilvægt að mæta þörfum þeirra þar sem þau eru, hvort sem það er meira krefjandi námsefni handa þeim sem skara fram úr eða auka aðstoð í viðeigandi rými fyrir þá sem eiga erfitt með að vera í hefðbundinni skólastofu. Skólaskyldan er ekki viðveruskylda heldur trygging þess að hvert barn fái vinnufrið og aga til þess að læra.
Miðflokkurinn styður valfrelsi foreldra í námi barna sinna og vill auðvelda einkareknum grunnskólum að starfa í Kópavogi. Á Íslandi eru til flottir einkareknir skólar á borð við Ísaksskóla, NÚ og Hjallastefnuna. Kópavogur á að vera sveitarfélag með fjölbreyttu vali í námi.
Hrakandi námsárangur er óboðlegur og þarf því að líta aftur í ræturnar til að snúa við stöðunni. Miðflokkurinn í Kópavogi vill endurvekja samræmd próf og tölulegar einkunnir. Nám í grunnskólum Kópavogs þarf að vera faglegt og með áherslu á grunnfög, þ.e. Lestur, skrift, stærðfræði, landafræði, náttúruvísindi, o.s.frv. Hlúa verður að þeim börnum sem skara fram úr bæði fyrir framtíð þeirra en einnig til þess að lyfta upp fyrirmyndum fyrir önnur börn. Kópavogur má ekki taka þátt í keppni að lægsta samnefnaranum.
Skólastofan og skólalóðin á að vera laus við allan áróður.
Tryggja þarf viðeigandi næringu handa börnum með hollum mat sem eldaður er á staðnum.
Miðflokkurinn styður símabann í skólum og vill ganga enn lengra með því að hætta notkun spjaldtölva. Í samráði við foreldra vill Miðflokkurinn vinna að viðmiði varðandi skjátíma og samfélagsmiðla sbr. útivistartíma. Samfélagslegur þrýstingur er á börnum að byrja snemma á samfélagsmiðlum sem bæði raskar skólastarf en hefur einnig slæm áhrif á andlega líðan þeirra.
Endurvekja þarf bekkjarkerfið til að stuðla að festu í skólastarfi og félagsleg tengsl.
Miðflokkurinn kallar eftir úttekt og samanburði á námsárangri fyrir og eftir spjaldtölvuvæðingu grunnskóla í Kópavogi. Vaxandi áhyggjur foreldra ber að taka alvarlega og er óásættanlegt að ekki sé meira tekið mark á þeim.
Inni í þessum aðgerðum eru:
- Samræmd próf í öllum grunnskólum Kópavogs (t.d. Í 4., 7., og 10. bekk)
- Tölulegar einkunnir
- Sérdeildir fyrir börn með tungumálaörðugleika eða fjölþættan vanda
- Minnka bekki, of mörg börn í sama rými gera kennurum erfitt fyrir að aðstoða alla í bekknum
- Aflétting spjaldtölvuvæðingar í námi eins og kostur er á
- Einungis þjóðfáninn, fáni Kópavogs og fánar viðurkenninga flaggi við grunnskóla
- Matráður í öllum grunnskólum
- Viðmið sbr. útivistartíma þegar kemur að samfélagsmiðlum, skjátíma og snjallsímum
- Áhersla lögð á skrift og fingrasetningu
Sjá nánar →
Miðflokkurinn í Kópavogi vill í auknum mæli bjóða út rekstur leikskóla og auðvelda einkareknum úrræðum að starfa í Kópavogi. Þetta minnkar báknið, eykur samkeppni og gefur foreldrum frekara valfrelsi um leikskólavist barnanna sinna.
Kópavogsmódelið ber að vinna áfram og þarf varanlega lausn sem tryggir að leikskólakerfið virki í Kópavogi. Bærinn á hrós skilið fyrir að hafa þorað að fara í breytingar en plástur dugar ekki endalaust og er módelið komið að þolmörkum.
Auka þarf stuðning að fæðingarorlofi loknu og vill Miðflokkurinn stórefla heimgreiðslur til foreldra til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og pláss í leikskóla. Margir foreldrar vilja vera lengur heima og er það staðreynd að yngstu börnin krefjast fleiri starfsmanna, þetta ýtir bæði undir valfrelsi foreldra sem og léttir á þrýstingi um leikskólapláss að fæðingarorlofi loknu.
Miðflokkurinn í Kópavogi hefur miklar áhyggjur af fréttum af kynferðisbrotum í leikskólum. Ráðast þarf strax í aðgerðir sem eru til þess fallnar að fullmanna leikskóla, borga góðu starfsfólki þau laun sem þau eiga skilið og ekki gefa afslætti í ráðningarferlum. Óboðlegt er að geta ekki mannað leikskóla með góðu fólki sökum ramma sem sveitarfélagið setur.
Leikskóli og leikskólalóðin eiga að vera laus við allan áróður.
Tryggja þarf gæði í leikskólabyggingum og ráðast strax í bætingu loftgæða og starfsaðstæðna þar sem það á við.
Systkini eiga að hafa forgang í leikskólum sem og forgangur eftir búsetu.
Mikilvægt er að starfsmenn á leikskólum Kópavogs tali íslensku. Málþroski barna hefur versnað undanfarin ár og því mikilvægt að koma í veg fyrir að leikskólar séu orsakavaldurinn.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Forgangsröðun uppbyggingar leikskóla í Naustavör og Vatnsendahvarfi
- Fjölgun einkarekinna leikskóla
- Fullunnin lausn fyrir leikskóla þar sem leikskólagjöld gæta sanngirnis sem, mönnun er í lagi og aðlaðandi starfsumhverfi
- Matráð í alla leikskóla
- Einungis þjóðfáninn, fáni Kópavogs og fánar viðurkenninga flaggi við leikskóla
- Hækkun á heimgreiðslum (tala ekki staðfest, beðið eftir svari frá Kópavogsbæ um kostnað pr. Barn í leikskóla, einnig þarf að huga að því hverjir eigi rétt á heimgreiðslum)
- Systkinaforgangur í úthlutun
- Búsetu forgangur í úthlutun
- Bæta loftgæði og aðbúnað í leikskóla byggingum þar sem á við, ekki allir leikskólar uppfylla þessi skilyrði.
Sjá nánar →
Kópavogur státar sig af íþróttafélögum í hæsta gæðaflokki. Mikilvægt er að bærinn standi ekki í vegi fyrir mikilvægum endurbótum og uppbyggingu þeirra.
Miðflokkurinn í Kópavogi vill í samráði við íþróttafélög auka áhuga barna og unglinga á íþróttum með lausnum sem leyfa þeim að finna sína íþrótt. Taka þarf upp fjölgreinapassa sem leyfir iðkendum að prófa mismunandi íþróttir og finna þá sem passar fyrir þá.
Mikilvægt er að börn komist örugglega leiðar sinnar í íþróttir en einnig að íþróttir hindri ekki heilbrigt fjölskyldulíf. Skoða þarf möguleikann að Kópavogsbær kosti frístundabíl sem og samráð við íþróttafélög um flýtingu æfingatíma til þess að gefa nægt andrými fyrir fjölskyldustundir.
Miðflokkurinn í Kópavogi lítur á íþróttir sem bestu forvörn sem hægt er að bjóða upp á. Mikilvægt er að efla samtvinningu íþrótta og t.d. Barnaverndar. Í Kópavogi eru íþróttafélög með samninga við önnur sveitarfélög með góðan árangur.
Sundlaugar eiga að vera opnar lengur um helgar og er óboðlegt að skera við nögl þegar kemur að opnunartíma sundlauga.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Fjölgreinapassi
- Endurskoðun reksturs á frístundabíl
- Endurskoðun æfingartíma barna og samþætting við stundatöflur skóla
- Lenging opnunartíma sundlauga
- Forgangsröðun mikilvægra framkvæmda t.d. Stúku HK, trygging á húsnæði fyrir siglingafélagið Ými, flóðljós fyrir Breiðablik, sundlaug í Kórnum, o.fl.
Sjá nánar →
Hlutverk sveitarfélaga er að sinna grunnþjónustu og ætti fjármunum að vera varið í að þjónusta íbúum, ekki auka útgjöld í uppfyllingu gæluverkefna á borð við loftslagsstefnu og framleiðslu fræðslu sem er utan almennrar menntunar. Sumar tillögur Miðflokksins kunna að hljóma eins og útgjaldahækkanir en við teljum alltaf rými til betri forgangsröðunar. Gjöldum og sköttum skal stilla í hóf og þarf reglulega að endurskoða hvernig útsvari bæjarbúa er varið.
Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur Fólksins reyna nú að keyra í gegn frumvarpi á Alþingi sem skikkar sveitarfélög til að hámarka útsvarsprósentu sína og þar með auka skattheimtu Kópavogsbúa. Takist ríkisstjórninni að keyra þessari skattahækkun í gegn leggur Miðflokkurinn í Kópavogi til að fasteignagjöld séu lækkuð um sömu krónutölu til að verja Kópavogsbúa.
Mikilvægt er að takmarka skuldir og vinna að því að greiða þær niður eins fljótt og auðið er.
Aðgengi bæjarbúa að stjórnsýslunni þarf að bæta. Þrátt fyrir fína heimasíðu bæjarins getur reynst allt of erfitt að nálgast upplýsingar og fá svör við beiðnum.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Rýning allra útgjalda á innri rekstri og endurforgangsröðun til að hámarka nýtingu
- Aukið gagnsæi með aðgangi að gögnum á heimasíðu bæjarins
- Uppsetning raunhæfrar áætlunar um minnkun skulda sveitarfélagsins
- Gjöldum stillt í hóf
Sjá nánar →
Miðflokkurinn í Kópavogi leggur sérstaka áherslu á að aldraðir fái viðeigandi stuðning og þjónustu sem miðar að þörfum hvers og eins.
Áhersla skal lögð á endurhæfingu hvers einstaklings sama hvar sem hann kýs að búa, á eigin heimili eða á dvalar- og öldrunarheimilum, forvarnir verði lykilatriði þegar tryggja á aðgengi að innihaldsríku lífi á efri árum og vill Miðflokkurinn t.a.m. skoða frístundastyrk fyrir eldri borgara sem geti nýst í líkamsrækt. Betra er að vera elstur í ræktinni en yngstur á hjúkrunarheimili.
Miðflokkurinn í Kópavogi telur brýnt að tryggja að þeir sem þiggja fjárhagsaðstoð frá bænum séu í raun búsettir í sveitarfélaginu og bæta eftirlit til að minnka misnotkun kerfisins.
Mikilvægt er að aðgengi fatlaðra sé tryggt í Kópavogi og að Kópavogsbær veiti viðeigandi þjónustu.
Sveitarfélagið þarf að beita ríkið þrýstingi og skoða aðgerðir til þess að auka aðgengi að heilsugæslum bæjarins.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Úttekt á félagsþjónustu í Kópavogsbæ
- Auka heimaþjónustu fyrir eldri borgara
- Skoða upptöku frístundastyrks fyrir eldri borgara
- Setja langtíma stefnu fyrir eldri borgara í Kópavogi sem tekur mið af því að einstaklingar geti búið heima eins lengi og hægt er, t.d. með aukinni hreyfingu sem og heimgreiðslum til fjölskyldumeðlima sem sjá um eldri fjölskyldumeðlimi
- Efla samstarf barnaverndar og íþróttafélaga líkt og önnur sveitarfélög hafa gert
Sjá nánar →
Miðflokkurinn í Kópavogi hafnar öllu ofstæki og hræðsluáróðri í tengslum við umræðu um umhverfis- og loftslagsmál.
Í umhverfis- og loftslagsmálum þarf að taka tillit til sérstöðu Íslands og framlag landsins í heildaráhrifum á heimsvísu. Stefna Kópavogsbæjar á að taka tillit til heildaráhrifa og ákvarðanir sveitarfélagsins að taka mið af því.
Miðflokkurinn í Kópavogi vill nálgast loftslagsmál eins og önnur með skynsemina að vopni og leggja til lausnir sem stuðla að bættu umhverfi fólks og fyrirtækja án íþyngjandi gjalda.
Guðmundarlundur er náttúruperla sem ber að vernda. Lundurinn hefur nýst í útikennslu barna og útiveru Kópavogsbúa. Þörf er á mikilvægum framkvæmdum til að varðveita lundinn og bæta aðgengi vatns, rafmagns og þörf er á að framræsa svæðið. Miðflokkurinn vill efla samvinnu við Skógræktarfélag Kópavogs í þessum efnum.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Tiltekt á útgjöldum bæjarins til loftslagsmála
- Efling útivistarsvæða og nýtingu þeirra
- Fjárfesta í innviðum Guðmundarlundar
- Tryggja gæða götusópun, þrif og snjómokstur
Sjá nánar →
Miðflokkurinn í Kópavogi vill efla menningu í Kópavogi og að bæjarbúar geti sótt stóra fjölbreytta viðburði innanbæjar sem og sótt menningu í sínu nærumhverfi.
Stærsta sóknartækifæri Kópavogs er uppbygging kjarna eða miðbæja sem geta orðið miðpunktar menningar í sveitarfélaginu. Mikilvægt er að fara skynsamlega í slíkar framkvæmdir. Miðflokkurinn í Kópavogi telur ekki heppilegt hvernig staðið hefur verið að framkvæmdum í Fannborg og að uppfærð áætlun að miðbæ í Smáralind hafi breytt skynsamri uppbyggingu í ofurþéttingu.
Miðflokkurinn í Kópavogi vill að sveitarfélagið skari fram úr í árlegum menningarviðburðum. Löngu tímabært er að koma á árlegri bæjarhátíð að sumri og endurvakningu áramótabrennu. Óhófleg þétting hefur gert það erfiðara að halda brennu mjög miðsvæðis og þarf því að finna góðan stað fyrir slíkan viðburð.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Sett verði á stofn árleg bæjarhátíð
- Áramótabrenna verði endurvakin
- 17. júní hátíðarhöld verði efld og kvölddagskrá verði aftur sett á stofn
- Gera enn meira úr jólahátíðarhöldum með skoðun á því að setja upp jólaþorp í bænum
- Merking „norðurljósastaða“, þ.e. svæði með lítilli lýsingu sem stutt og gott er að fara til að skoða norðurljós þegar þau láta sjá sig
Sjá nánar →
Miðflokkurinn í Kópavogi vill öflugt atvinnulíf í Kópavogi og að sveitarfélagið sé spennandi áfangastaður rótgróinna fyrirtækja sem og glænýrra. Mikilvægt er að halda vel utan um atvinnusvæði sem þegar eru sem og skynsama uppbyggingu nýrra svæða. Fyrirtæki eiga ekki að þurfa að hafa áhyggjur af bílastæðum á atvinnusvæðum.
Miðflokkurinn í Kópavogi vill stuðla að nýsköpun og koma á stofn nýsköpunarsetri með samstarfi við t.d. Háskólann í Reykjavík og KLAK.
Inni í þessum aðgerðum felast:
- Framtíðarstefna fyrir Smiðjuhverfið sem atvinnusvæði
- Skoðaður möguleiki að nýsköpunarsetri í Kópavogi
Sjá nánar →
Fréttir & tilkynningar

Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum?
Einar Jóhannes Guðnason skrifar 8. apríl 2026 í grein á Vísi. Nýverið gerði ég þau „mistök“ að velta upp áhyggjum um…

Kynferðisbrot gegn börnum í leikskólum – Öryggi barna er ekki samningsatriði
Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar 19. mars 2026 í grein á Vísi. Fjölgun kynferðisbrota gegn börnum í leikskólum kallar á skýr og…

Varðveisla Guðmundarlundar
Beitir Ólafsson skrifar 10. mars 2026 í grein á Vísi. Guðmundarlundur í Vatnsendahlíð í vatnsendalandi er eitt vistlegasta útisvæði Kópavogs og…





