Ný stjórn þingflokks Miðflokksins
Ný stjórn þingflokks Miðflokksins var kjörin á þingflokksfundi í gær.
Bergþór Ólason var kjörinn þingflokksformaður, Karl Gauti Hjaltason verður varaformaður stjórnar þingflokks og Ingibjörg Davíðsdóttir verður ritari.
Bergþór heldur áfram sem þingflokksformaður frá liðnu kjörtímabili en Karl Gauti og Ingibjörg koma ný inn í stjórn þingflokksins.
Mikill hugur var í þingflokki Miðflokksins þegar hann kom saman til fundar í gær enda styttist í upphaf þings. Verkefni Miðflokksins á þingi verða mörg og ærin til að tryggja hagsmuni landsmanna.
„Þingflokkur Miðflokksins er skipaður öflugu og reynslumiklu fólki sem er komið á þing til að berjast fyrir landsmenn, með skynsemina að vopni. Við munum verja fullveldi Íslands þegar að því verður sótt, standa gegn fjáraustri sem fyrr, berjast áfram fyrir auknu öryggi og stjórn á landamærunum ásamt því að leggja til skynsamlegar leiðir að bættari lífskjörum fólks. Þar verður ekki vanþörf á með ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Við hlökkum til – það munar um Miðflokkinn,“ sagði Bergþór eftir þingflokksfundinn.
Bergþór Ólason, Karl Gauti Hjaltason og Ingibjörg Davíðsdóttir