Miðflokkurinn í Grindavík
Samfélagsmiðlar

Frambjóðendur í Grindavík

1. sæti
Magnús Már Jakobsson
Verktaki í öryggismálum

2. sæti
Björn Steinar Brynjólfsson
Stöðvastjóri hjá DHL

3. sæti
Gunnar Már Gunnarsson
Bæjarfulltrúi og þjónustustjóri hjá Sjóvá

4. sæti
Signý Lind Elíasdóttir
Flugfreyja hjá Icelandair

5. sæti
Eydís Ármannsdóttir
Húsmóðir

6. sæti
Aníta Sif Kristjánsdóttir
Nemi í iðjuþjálfunarfræði

7. sæti
Páll Gíslason
Verktaki

8. sæti
Páll Árni Pétursson
Yfirstýrimaður

9. sæti
Hajie Flores Sicat
Matreiðslumaður

10. sæti
Andri Hrafn Vilhelmsson
Vélstjóri

11. sæti
Ragna Fossádal
Eldri borgari
— Framtíðarsýn okkar —
Áherslumál
í
Grindavík
- Mikil áhersla lögð á samvinnu við Fasteignafélagið Þórkötlu til að Grindvíkingar eigi möguleika á að koma aftur heim. Við viljum hafa fyrirsjáanleika og köllum eftir breytingum laga um fasteignagjöld á þeirra eignum og framlengingu á forkaupsrétti. Einnig munum við óska eftir að viðhaldi lóða verði sinnt svo bærinn verði meira aðlaðandi.
- Tryggingar og fjármögnun á húsnæði ásamt fjárfestingum fyrirtækja þarf að vera trygg.
- Við þurfum að tryggja afhendingu á rafmagni með hringtengingu við Reykjanesvirkjun.
- Við munum halda sömu stefnu í styrkveitingu við okkar flotta íþróttastarf og vera með frístundastyrk fyrir börnin okkar.
- Uppbygging bílastæða á vinsælum stoppistöðum ferðamanna og innheimta bílastæðagjalda. Ferðamenn munu halda áfram að sækja Grindavík heim næstu áratugina og þurfum við að hafa innviði klára til að taka á móti öllu þessu fólki. Skoðum möguleikann á að gera Hópið að safni sem segir söguna af skjálftum og eldgosum.
- Við ætlum að halda áfram stefnu núverandi bæjarstjórnar að opna skóla og leikskóla á þessu ári með öryggi í fyrirrúmi.
- Verðum með örugga eftirfylgd og eftirlit með nýframkvæmdum bæjarins svo mistök eigi sér ekki stað sem við höfum reynslu af eftir hamfarirnar.
- Vera með öruggari og ábyrgari fjármálastjórn.
- Við ætlum að auka við fjölskylduviðburði
- Við ætlum að nýta bæturnar sem við fengum frá NTÍ til fjárfestinga til að bæta þjónustu við okkar fólk. Þessi peningur á ekki að fara í rekstur.
- Hópið verður nýtt til sýningar fyrir ferðamenn sem koma til Grindavíkur og vilja skoða sprunguna þar.
- Viljum gera Víkurbrautina að einstefnu götu niður götuna en hún verði líka göngugata.
- Við viljum gefa 50% afslátt af leikskólagjöldum á fyrsta ári fyrir foreldra sem flytja heim.
- Við ætlum að gera endurbætur á leikvelli við Ásabraut fyrir yngstu börnin.
- Ætlum að gera þrautabraut í Selskógi sbr. þeirri sem er í Njarðvíkurskógum.
Endurreisn Grindavíkur verður góð í höndum Miðflokksins í góðri samvinnu með öðrum í bæjarstjórn.
Fréttir & tilkynningar
Engar fréttir að svo stöddu. Prófaðu að athuga aftur seinna.
Kosningaskrifstofa:
Veitingastofan Vör

Kosningastjóri:
Kynntur síðar
Netfang:
Símanúmer:


