Miðflokkurinn í Borgarbyggð

Borgarnes, Reykholt í Borgarfirði

Frambjóðendur í Borgarbyggð

1. sæti

Haukur Þór Hauksson

Rekstrarhagfræðingur
2. sæti

Þórður Brynjarsson

Verkamaður
3. sæti

Tinna Rut Þórarinsdóttir

Hótelrekandi og hársnyrtisveinn
4. sæti

Helena Rós Helgadóttir

Alhliða starfsmaður JGR umboðs og hei
5. sæti

Hafsteinn Ingi Gunnarsson

Húsasmíðameistari
6. sæti

Helgi Már Ólafsson

Bústjóri
7. sæti

Þuríður Inga G. Gísladóttir

Bóndi
8. sæti

Sigurjón Helgason

Bóndi
9. sæti

Einar Ólafsson

Vélaverktaki, smiður og refaskytta
10. sæti

Gunnhildur Gísladóttir

Rannsóknir við LBHÍ og meistar­anemi
11. sæti

Guðjón Pétursson

Tæknimaður hjá Multivac Group
12. sæti

Guðný Vilhjálmsdóttir

Leiðsögukona
13. sæti

Snorri Jóhannesson

Bóndi og refaskytta
14. sæti

Jórunn Guðsteinsdóttir

Húsfreyja og bóndi
15. sæti

Bjarni Benedikt Gunnarsson

Verkfræðingur
16. sæti

Alexandra Sif Svavarsdóttir

Umönnun í Brákarhlíð
17. sæti

Vilhjálmur Diðriksson

Fyrrverandi bóndi
18. sæti

Guðrún Jónsdóttir

Húsmóðir og fyrrverandi oddviti

Áherslumál

í

Borgarbyggð


Miðflokkurinn í Borgarbyggð leggur áherslu á skýra forgangsröðun í rekstri sveitarfélagsins. Lögbundin þjónusta skal ætíð ganga fyrir og hagsmunir íbúa alltaf vera í fyrsta sæti. Við viljum lækka vaxtaberandi skuldir, yfirfara samninga, kostnað og rekstur sveitarfélagsins og einfalda stjórnkerfi þess, með það að markmiði að gera það léttara, ódýrara og skilvirkara.

Við viljum aukið gagnsæi þannig að íbúar geti með auðveldum hætti kynnt sér í hvað peningarnir fara og á hvaða forsendum ákvarðanir eru teknar.

Miðflokkurinn í Borgarbyggð leggur áherslu á skýra forgangsröðun í rekstri sveitarfélagsins.

Borgarbyggð er eitt sögufrægasta og fegursta hérað landsins. Styrkur héraðsins felst meðal annars í þeim náttúruperlum og menningarlegu gæðum sem þar er að finna. Gæðum sem við viljum varðveita og nýta, íbúum og gestum til hagsbóta. Stórkarlaleg orkumannvirki á hálsum Borgarfjarðar myndu hafa gríðarleg áhrif á ásýnd, náttúru, landslag og fuglalíf svæðisins, auk þess sem þau valda hljóðmengun og skuggaflökti á viðkvæmum svæðum.

Við höfnum því öllum hugmyndum um vindmyllur á hálsum Borgarfjarðar.

Borgarbyggð er eitt sögufrægasta og fegursta hérað landsins. Styrkur héraðsins felst meðal annars í þeim náttúruperlum og menningarlegu gæðum sem þar er að finna.

Í kjölfar mikilla hækkana á fasteignamati á síðustu árum hafa álögur á íbúa aukist gríðarlega. Sveitarfélagið hefur ekki brugðist við þessari þróun með lækkun á álagningarprósentu fasteignaskatts, þrátt fyrir að ýmis önnur sveitarfélög hafi gert það. Við teljum tímabært að hlífa íbúum við þessum byrðum og viljum lækka álagningarprósentuna í áföngum.

Í kjölfar mikilla hækkana á fasteignamati á síðustu árum hafa álögur á íbúa aukist gríðarlega.

Undanfarin ár hafa verið gerðar miklar breytingar á sorphirðukerfi Borgarbyggðar sem hafa leitt til aukins flækjustigs og hækkandi kostnaðar fyrir íbúa. Miðflokkurinn vill endurskoða þennan þátt í rekstri sveitarfélagsins með það aðmarkmiði að einfalda kerfið og lækka kostnað íbúa.

Undanfarin ár hafa verið gerðar miklar breytingar á sorphirðukerfi Borgarbyggðar sem hafa leitt til aukins flækjustigs og...

Við viljum stuðla að hraðari uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu með markvissri greiningu á styrkleikum þess, veikleikum og tækifærum. Í kjölfarið verður farið í markvissar kynningar á svæðinu og möguleikum þess, í þeim tilgangi að laða að fyrirtæki og nýsköpunarstarfsemi.

Við viljum stuðla að hraðari uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu með markvissri greiningu á styrkleikum þess...

Við leggjum mikla áherslu á að standa vörð um og styrkja innlenda matvælaframleiðslu og hefðbundinn landbúnað. Í Borgarbyggð er blómlegur landbúnaður, en mörg tækifæri eru þó ónýtt. Sífellt fleiri jarðir lenda í höndum stórfyrirtækja og erlendra auðmanna, oft með vafasama kolefnisjöfnun að markmiði. 

Við í Miðflokknum höfnum því að góðar landbúnaðarjarðir leggist í eyði í nafni kolefnisjöfnunar.

Við leggjum mikla áherslu á að standa vörð um og styrkja innlenda matvælaframleiðslu og hefðbundinn landbúnað.

Við styðjum bætt aðgengi og gæði í leikskólum en leggjum áherslu á að breytingar taki mið af raunverulegum þörfum fjölskyldna. Mikilvægt er að þjónustan skerðist ekki, kostnaður aukist ekki óhóflega, lausnir séu sveigjanlegar og henti ólíkum aðstæðum. Við viljum sanngjarnt, einfalt og fjölskylduvænt kerfi sem styður daglegt líf íbúa.

Klárum endurbætur og stækkun leikskólanna Uglukletts og Klettaborgar og tryggjum áfram að öll börn komist á leikskóla við 12 mánaða aldur.

Við styðjum bætt aðgengi og gæði í leikskólum en leggjum áherslu á að breytingar taki mið af raunverulegum þörfum fjölskyldna.

Eflum grunnskóla Borgarbyggðar þá með markvissri uppbyggingu á nærumhverfi þeirra. Styðjum áfram það góða starf sem þar er unnið og tryggjum fyrirbyggjandi viðhald á fasteignum.

Eflum grunnskóla Borgarbyggðar þá með markvissri uppbyggingu á nærumhverfi þeirra. Styðjum áfram það góða starf sem þar er unnið og tryggjum fyrirbyggjandi viðhald á fasteignum.

Stefna okkar er að Holtavörðuheiðarlína með flutningsgetu upp á 900 MW fari ekki um uppsveitir Borgarfjarðar. Línan myndi hafa mikil áhrif á landbúnað, eignaverð, ásýnd lands og framtíðarmöguleika svæðisins. Að leggja hana þvert í gegnum uppsveitirnar hefur neikvæð áhrif á landbúnað, landeigendur og náttúruupplifun á svæðinu. 

Miðflokkurinn tekur undir með bændum og landeigendum sem hafa gagnrýnt áformin harðlega og krefjast þess að horft verði til ríkislanda í stað landa í einkaeigu þegar kemur að slíkum framkvæmdum. Við mælum með heiðarleið A3, sem er einn af valkostum Holtavörðuheiðarlínu 3 og liggur yfir heiðar og hálendi frekar en í gegnum byggðir og uppsveitir Borgarfjarðar.

Stefna okkar er að Holtavörðuheiðarlína með flutningsgetu upp á 900 MW fari ekki um uppsveitir Borgarfjarðar.

Borgarbyggð er meðal víðfeðmustu sveitarfélaga landsins og eru þar alls sex þéttbýliskjarnar: Borgarnes, Hvanneyri, Kleppjárnsreykir, Reykholt, Varmaland og Bifröst. Undanfarin ár hafa engin markviss áform verið uppi um uppbyggingu þessara þéttbýliskjarna, að undanskildum þeim stærstu – Borgarnesi og Hvanneyri. Það hefur leitt til þess að uppbygging hefur verið lítil sem engin í minni byggðakjörnunum, öfugt við þróun í öðrum sveitarfélögum sem eru staðsett í nálægð við höfuðborgarsvæðið.

Við viljum breyta þessu og vinna að framtíðarskipulagi sem styður við íbúafjölgun á svæðinu. Við teljum að íbúðarhúsalóðir eigi ekki að vera fjáröflunartæki sveitarfélagsins heldur fjárfesting í nýjum íbúum. Miðflokkurinn vill því taka upp tímabundinn afslátt af íbúðar- og atvinnuhúsalóðum í þeim tilgangi að hvetja til uppbyggingar og koma lóðum á markað eins hratt og hægt er. Við trúum því að það sé hagur sveitarfélagsins að stækka og fá sem fyrst fasteignagjöld og útsvar, fremur en að liggja með lausar lóðir árum saman.

Við viljum einnig einfalda skipulagsferla og gera húsbyggjendum auðveldara fyrir að reisa fjölbreytt húsnæði, samfélaginu til heilla.

Borgarbyggð er meðal víðfeðmustu sveitarfélaga landsins og eru þar alls sex þéttbýliskjarnar: Borgarnes, Hvanneyri, Kleppjárnsreykir, Reykholt, Varmaland og Bifröst.

Vinnum að framtíðarskipulagi í Brákarey sem þróunarreit í sátt við samfélagið. Sveitarfélagið á ekki að þurfa að kosta niðurrif eða uppkaup á fasteignum í Brákarey til að greiða götur fjárfesta.

Vinnum að framtíðarskipulagi í Brákarey sem þróunarreit í sátt við samfélagið.

Ástand vega og tengivega í héraðinu er mikið áhyggjuefni. Fjárveitingar til vegamála hafa verið mjög misskiptar milli landshluta og vegakerfi Borgarbyggðar hefur að miklu leyti setið eftir. Tengivegir eru enn víða án slitlags. 

Samkvæmt nýrri samgönguáætlun hefur ýmsum nauðsynlegum framkvæmdum verið frestað. Má þar m.a. benda á Uxahryggjaleið sem er ekki í áætluninni. Þá er vegurinn milli Borgarness og Holtavörðuheiðar fyrst með fjármögnun á þriðja tímabili áætlunarinnar, á árunum 2036–2040. 

Við munum þrýsta á ríkisvaldið að gera úrbætur á vegakerfinu í sveitarfélaginu.

Ástand vega og tengivega í héraðinu er mikið áhyggjuefni.

Eitt af lykiláhersluatriðum Miðflokksins er að efla félagsþjónustu við aldraða. Við viljum fylgjast með því að öll ákvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga um þjónustu við aldraða séu í fullu gildi og ganga eftir framkvæmd þeirra. Með eflingu félagsþjónustunnar stuðlum við að því að aldraðir geti búið við eðlilegt heimilislíf eins lengi og unnt er og jafnframt að nauðsynleg stoðþjónusta sé til þegar þörf krefur.

Eitt af lykiláhersluatriðum Miðflokksins er að efla félagsþjónustu við aldraða.

Við viljum styðja starfsemi Heilsugæslunnar í Borgarnesi þannig að þjónusta hennar endurspegli betur fjölda og þarfir íbúa héraðsins. Í því skyni viljum við vera í nánu samstarfi við ríkisvaldið um fjárveitingar til heilsugæslunnar.

Við viljum styðja starfsemi Heilsugæslunnar í Borgarnesi þannig að þjónusta hennar endurspegli betur fjölda og þarfir íbúa héraðsins.

Við viljum lengja opnunartíma íþróttamannvirkja og sundlauga Borgarbyggðar. Með því styrkjum við samfélagið og hvetjum til heilsueflandi samfélags. 

Engurskoðum nýtingu íþróttamannvirkja í dreifbýli og stefnum að löngu tímabærum endurbótum og stækkun íþróttahússins í Borgarnesi þegar við höfum náð tökum á fjármálunum.

Við viljum lengja opnunartíma íþróttamannvirkja og sundlauga Borgarbyggðar. Með því styrkjum við samfélagið og hvetjum til heilsueflandi samfélags. 

Í Borgarbyggð er farsímasamband víða ábótavant. Tryggjum að farsímasamand náist í dölum og á heiðum, sérstaklega þegar slökkt hefur verið á 2G og 3G sambandi. Það er mikilvægt öryggisatriði að símasamband náist sem víðast.

Í Borgarbyggð er farsímasamband víða ábótavant.

Ef þú vilt breytingar, þá þarf að kjósa breytingar.

Tækifærið er núna!

Fréttir & tilkynningar

Kosningaskrifstofa:
Kynnt síðar
Kosningastjóri:
Kynntur síðar
Netfang:
Símanúmer:

Gaktu í lið með Íslandi.

Sýndu að þú sért stuðningsmaður.

Styrktu starf Miðflokksins