Frambjóðendur á Akureyri

1. sæti
Hlynur Jóhannsson

2. sæti
Inga Dís Sigurðardóttir

3. sæti
Egill Einarsson

4. sæti
Katrín Vilhjálmsdóttir

5. sæti
Hannes Karlsson

6. sæti
Sigurbjörg Níelsdóttir

7. sæti
Hólmgeir Karlsson

8. sæti
Lísbet Hannesdóttir

9. sæti
Hafþór Már Vignisson

10. sæti
Guðrún Linda Guðmundsdóttir
11. sæti
Gunnlaugur Kristinsson

12. sæti
Þóra Aldís Axelsson

13. sæti
Helgi Sveinbjörn Jóhannsson

14. sæti
Anna Sif Melstað

15. sæti
Aron Ingi Hlynsson

16. sæti
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
17. sæti
Viðar Valdimarsson

18. sæti
Rósanna Marín Valdimarsdóttir

19. sæti
Þorvaldur Helgi Sigurpálsson
20. sæti
Guðný Heiðveig Gestsdóttir

21. sæti
Snæbjörn Þorbjörnsson

22. sæti
Sigríður Valdís Bergvinsdóttir
— Framtíðarsýn okkar —
Áherslumál
á
Akureyri
Mjög margt gott hefur áunnist á kjörtímabilinu sem er að líða og munu fulltrúar Miðflokksins halda því góða starfi áfram af festu fái þeir stuðning kjósenda til þess í komandi kosningum.
Aukin velferð í samfélaginu verður ekki til með auknum skattaálögum. Öflugt, arðbært og vaxandi atvinnulíf ásamt háu hlutfall vinnandi fólks skapar þær tekjur sem þarf og burði til að fjármagna og halda uppi góðu velferðarsamfélagi.
Því meira frelsi sem við sköpum atvinnulífinu til vaxtar, því meiru skilar það til samfélagsins í formi launagreiðslna og skatta.
Lykiláherslur Miðflokksins á Akureyri:
- Ábyrgur og skynsamur rekstur bæjarfélagsins verður áfram leiðarstef í allri vinnu Miðflokksins á Akureyri. Þetta er lykilatriði til að geta haldið áfram að bæta þjónustu við íbúana. Góður árangur hefur þegar náðst á kjörtímabilinu en við teljum þó að enn séu tækifæri til að bæta reksturinn og um leið að draga úr álögum á íbúana.
- Lækkum útsvarsprósentuna. Miðflokkurinn telur að svigrúm sé að skapast til að lækka álögur á íbúa sveitarfélagsins og telur að lækkun útsvars sé árangursrík leið þar sem hún nýtist þeim einum sem búa í sveitarfélaginu.
- Þá telur Miðflokkurinn mögulega áfram svigrúm til lækkunar á álagningarprósentu fasteignagjalda sem mótvægi við miklar hækkanir fasteignamats.
- Við viljum vernda græn svæði bæjarins. Við viljum því ekki frekari þéttingu byggðar þar sem við teljum mikilvægt að vernda opin og græn svæði bæjarins sem útivistarsvæði. Því stærri sem bærinn verður því mikilvægari verða þessi svæði fyrir íbúana.
- Uppbyggingu mikilvægra íþróttamannvirkja verður haldið áfram.
- Við höldum ótrauð áfram uppbyggingu og endurbótum á leik- og grunnskólum bæjarins.
- Forvarnir eru lykilatriði bættrar lýðheilsu og þeim þarf að sinna á öllum stigum samfélagsins.
- Vellíðan og farsæld barna þarf að vera í forgrunni í öllu skólastarfi. Við viljum efla stuðning við börn og ungmenni í skólakerfinu á Akureyri með því að fjölga sérhæfðu fagfólki í skólasamfélaginu.
- Að styðja við þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og hreyfingu er eitt mikilvægasta lýðheilsumál samfélagsins. Við viljum styðja við öflugt íþróttastarf á Akureyri og tryggja að öll börn hafi raunverulegt aðgengi að þátttöku, óháð aðstæðum eða þörfum.
- Tími framtíðar samgöngumiðstöðvar á Akureyri er kominn. Við skipulag verði unnið að því að koma fyrir samgöngumiðstöð sem tengipunkti allra almenningssamgangna á svæðinu. Staðsetning á flugvallarsvæðinu væri mikill kostur og stuðningur við ört vaxandi flugsamgöngur.
- Farsæld barna. Samstarfsverkefni fræðslu-, lýðheilsu- og verlferðarsviðs við innleiðingu og þróun samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna samkvæmt farsældarlögum hefur verið hrundið af stað og þarf að fylgja því verkefni vel eftir á næstu árum.
- Miðflokkurinn mun beita sér fyrir enn frekari eflingu Háskólans á Akureyri með samvinnu við ríkið og atvinnulífið með það að markmiði að tengja betur saman menntun, rannsóknir og nýsköpun í atvinnulífinu á svæðinu. Rækta þarf áfram það góða samstarf sem er við háskólann.
- Miðflokkurinn mun fylgja eftir áformum um stækkun á félagsaðstöðu eldri borgara.
- Við hönnun á tjaldsvæði reitnum er gert ráð fyrir tveimur íbúðablokkum fyrir eldri borgara vegna nálægðar svæðisins við þjónustu. Því munum við fylgja eftir.
- Miðflokkurinn mun áfram beita sér fyrir átaki í umhverfismálum og fegrun bæjarins.
- Förum í átak um fegrun Oddeyrarinnar, þar sem bærinn taki ákveðið frumkvæði og geri áætlanir um lagfæringar á götum og gangstéttum um leið og íbúar yrðu hvattir til að fegra sitt umhverfi.
- Við munum vinna áfram markvisst að því að tryggja fötluðum einstaklingum búsetu við hæfi og efla tækifæri þeirra til að taka sem virkastan þátt í samfélaginu. Standa þarf vörð um frístund fyrir fötluð börn að sumri til að brúa bil sumarleyfa foreldra þeirra.
- Miðflokkurinn telur að saltvatn eigi ekki að nota á götur bæjarins þar sem mikil óþrif hljótast af því. Salt eigi heldur ekki að nota nema í undantekningartilvikum til hálkuvarna. Leggja ber meiri áherslu á að þrífa göturnar til að draga úr rykmengun.
- Tryggja þarf í skipulagi nægt framboð á lóðum fyrir íbúðabyggð og atvinnustarfsemi þannig að aldei komi upp sú staða að byggingarhæfar lóðir séu ekki til staðar.
- Miðflokkurinn telur mikilvægt að halda áfram markvissri uppbyggingu göngu, – hjóla, reið- og útivistraleiða um allt bæjarfélagið og tryggja öruggar leiðir þar sem fara þarf yfir umferðargötur.
- Mikilvægt er að tryggja í skipulagi öruggar samgönguæðar fyrir þungaflutninga. Við skipulag bæjarins þarf að huga vel að umferðaröryggi þar sem þungaflutningar vegna atvinnustarfsemi fara um bæinn.
“Það er gott að búa á Akureyri og þannig á það að vera áfram”
Akureyrarbær er fyrir fólk og fyrirtæki. Bæjarfélag þar sem tekið er tillit til þarfa og óska þeirra sem samfélagið mynda. Þannig á að vinna með fólki og fyrirtækjum að áhugaverðum og hagkvæmum framtíðarlausnum sem tryggja vöxt bæjarins og hagkvæman rekstur.
Mjög margt gott hefur áunnist á kjörtímabilinu sem er að líða og munu fulltrúar Miðflokksins halda því góða starfi áfram af festu fái þeir stuðning kjósenda til þess í komandi kosningum.
Aukin velferð í samfélaginu verður ekki til með auknum skattaálögum. Öflugt, arðbært og vaxandi atvinnulíf ásamt háu hlutfalli vinnandi fólks skapar þær tekjur sem þarf og burði til að fjármagna og halda uppi góðu velferðarsamfélagi.
Því meira frelsi og fyrirsjáanleika sem við sköpum atvinnulífinu til vaxtar, því meiru skilar það til samfélagsins í formi launagreiðslna og skatta.
Miðflokkurinn mun beita sér fyrir enn frekari eflingu Háskólans á Akureyri með samvinnu við ríkið og atvinnulífið með það að markmiði að tengja betur saman menntun, rannsóknir og nýsköpun í atvinnulífinu á svæðinu. Rækta þarf áfram það góða samstarf sem er við háskólann.
Störf án staðsetningar. Mikilvægt er að stuðla að því að eftirsóknarvert verði fyrir fólk að búa hér og geta einnig sinnt slíkum störfum sem fer ört fjölgandi, bæði á vegum hins opinbera og atvinnulífsins.
Sjá nánar →
Ábyrgur og skynsamur rekstur bæjarfélagsins verður áfram leiðarstef í allri vinnu Miðflokksins á Akureyri. Þetta er lykilatriði til að geta haldið áfram að bæta þjónustu við íbúana. Góður árangur hefur þegar náðst á kjörtímabilinu en við teljum þó að enn séu tækifæri til að bæta reksturinn og um leið að draga úr álögum á íbúana. Einnig þurfum við að styrkja tekjustofnana með því að búa atvinnulífinu umhverfi sem gefur tækifæri til sóknar og nýsköpunar.
Lækkum útsvars prósentuna. Miðflokkurinn telur að svigrúm sé að skapast til að lækka álögur á íbúa sveitarfélagsins og telur að lækkun útsvars sé árangursrík leið þar sem hún nýtist þeim einum sem búa í sveitarfélaginu. Þá telur Miðflokkurinn mögulega áfram svigrúm til lækkunar á álagningarprósentu fasteignagjalda sem mótvægi við miklar hækkanir fasteignamats.
Mikilvægt er að tryggja nægt framboð af lóðum við hæfi bæði fyrir íbúa og atvinnustarfsemi.
Miðflokkurinn mun áfram vinna að bættum samskiptum við ríkið um verkaskiptingu og sanngjarna tekjuskiptingu í þeim mörgu viðfangsefnum sem eru framkvæmd af bænum en á ábyrgð ríkisins.
Sjá nánar →
Miðflokkurinn mun vinna náið með atvinnulífinu sem er grundvöllur búsetu og velferðar í bænum. Tryggja þarf nægt framboð af byggingarhæfum lóðum á hverjum tíma fyrir atvinnustarfsemi. Þá er mikilvægt að tryggja að skipulagsferli bæjarins sé skilvirkt hvað atvinnulífið varðar.
Bærinn taki upp samvinnu við atvinnulífið um möguleika þess að efla tækifæri íbúanna til að taka að sér störf án staðsetningar.
Nýta áfram mögulegt svigrúm til lækkunar fasteignagjalda sem mótvægi við miklar hækkanir fasteignamats.
Sjá nánar →
Afar mikilvægt er að skipulagsmál séu unnin með langtímasjónarmið og þróun bæjarfélagsins að leiðarljósi. Þá er einnig mikilvægt að fylgt sé meginlínum í samþykktu skipulagi bæjarins þannig að atvinnulífið búi við öryggi og geti sinnt nauðsynlegri uppbyggingu á sínum athafnasvæðum. Sem dæmi um það er að mikilvægt er að ekki verði þrengt að hafnar- og atvinnusvæðum bæjarins á Oddeyrinni.
Tryggja þarf í skipulagi nægt framboð af lóðum fyrir íbúðabyggð og atvinnustarfsemi þannig að aldrei komi upp sú staða að byggingarhæfar lóðir séu ekki tilbúnar.
Miðflokkurinn telur að ekki skuli gengið frekar á græn svæði bæjarins. Við viljum því ekki frekari þéttingu byggðar en þá sem komin er á samþykkt skipulag þar sem við teljum mikilvægt að vernda opin og græn svæði bæjarins sem útivistarsvæði. Því stærri sem bærinn verður því mikilvægari verða þessi svæði fyrir íbúana.
Miðflokkurinn telur mikilvægt að halda áfram markvissri uppbyggingu göngu, – hjóla, reið- og útivistaraleiða um allt bæjarfélagið og tryggja öruggar leiðir þar sem fara þarf yfir umferðargötur.
Mikilvægt er einnig að tryggja í skipulagi öruggar samgönguæðar fyrir þungaflutninga. Við skipulag bæjarins þarf að huga vel að umferðaröryggi þar sem þungaflutningar vegna atvinnustarfsemi fara um bæinn.
Stefnumörkun í skipulagsmálum skal unnin í samvinnu við bæjarbúa og atvinnulífið. Þannig mótum við samfélagið saman í sátt til lengri framtíðar.
Sjá nánar →
Góðir skólar og þjónusta á öllum stigum við barnafólk eru lykill að góðum búsetuskilyrðum í sveitarfélaginu, um leið er þetta líka fjárfrekasti málaflokkurinn og því þarf að vinna hlutina markvisst og vel. Miðflokkurinn vill leita allra leiða til að þróa betur fyrirkomulag og gjaldtöku í leikskólum.
Vellíðan og farsæld barna þarf að vera í forgrunni í öllu skólastarfi. Við viljum efla stuðning við börn og ungmenni í skólakerfinu á Akureyri með því að fjölga sérhæfðu fagfólki í skólasamfélaginu. Með sterkari stuðningi innan skólanna getum við gripið fyrr inn í, stutt betur við börn og fjölskyldur og byggt upp öruggara og heilbrigðara skólasamfélag á Akureyri.
Að styðja við þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og hreyfingu er eitt mikilvægasta lýðheilsumál samfélagsins. Við viljum styðja við öflugt íþróttastarf á Akureyri og tryggja að öll börn hafi raunverulegt aðgengi að þátttöku, óháð aðstæðum eða þörfum. Við viljum tryggja aukinn stuðning fyrir börn með sérþarfir í skipulögðu íþróttastarfi svo þau hafi sömu tækifæri til þátttöku og önnur börn, líkt og stuðningur er tryggður í skólakerfinu.
Sjá nánar →
Forvarnir eru lykilatriði bættrar lýðheilsu og þeim þarf að sinna á öllum stigum samfélagsins. Miðflokkurinn leggur áherslu á að efla forvarnir strax á grunnskólastigi og þá ekki síst með aukinni fræðslu til foreldra um forvarnir.
Að styðja við þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og hreyfingu er eitt mikilvægasta lýðheilsumál samfélagsins.
Við viljum leita allra leiða til að auka virkni, sjálfstæði og heilsueflingu eldra fólks og ekki síður öryrkja. Stuðlum að möguleikum eldra fólks og styðjum það til sjálfstæðs lífs á eigin vegum eins lengi og kostur er með góðri þjónustu og fræðslu.
Við munum áfram vinna náið með íþróttafélögunum í bænum að uppbyggingu á góðri aðstöðu til íþróttaiðkunar og fylgja eftir þeim ákvörðunum sem þegar hafa verið teknar.
Farsæld barna. Samstarfsverkefni fræðslu-, lýðheilsu- og verlferðarsviðs við innleiðingu og þróun samþættrar þjónustu í þágu farsældar barna samkvæmt farsældarlögum hefur verið hrundið af stað og þarf að fylgja því verkefni vel eftir á næstu árum.
Sjá nánar →
Miðflokkurinn leggur áherslu á góða þjónustu við eldri borgara.
Verulega hefur því miður skort á að í boði sé nægt húsnæði á öldrunarheimilum bæjarins. Þó svo þessi mál séu á hendi ríkisins þarf að fylgja því fast eftir að bygging nýs hjúkrunarheimilis verði að veruleika eins og hefur verið samþykkt.
Mikilvægast teljum við þó vera að gera eldri borgurum kleift að vera sem lengst á eigin heimili studd af góðri þjónustu. Með nýjum tæknilausnum er einnig hægt að auka öryggi þeirra sem búa einir.
Mikilvægt er að virkja getu eldri borgara til þátttöku í samfélaginu og til heilsueflingar.
Miðflokkurinn mun fylgja eftir áformum um stækkun á félagsaðstöðu eldri borgara.
Við hönnun á tjaldsvæðisreitnum er gert ráð fyrir tveimur íbúðablokkum fyrir eldri borgara vegna nálægðar svæðisins við þjónustu. Því munum við fylgja eftir.
Sjá nánar →
Virða ber og fara eftir samningi sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Miðflokkurinn styður áframhaldandi uppbyggingu á notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) sem mun geta veitt stærri hópi fatlaðs fólks aukin lífsgæði.
Bæta þarf enn frekar og auka þjónustu í skammtímavistun fyrir fatlaða.
Miðflokkurinn mun vinna áfram að því að fatlaðir einstaklingar hafi meira val um húsnæði og búsetu. Mikið hefur þar áunnist en halda þarf áfram markvissri uppbyggingu til að eyða biðlistum eftir varanlegu húsnæði.
Við munum því áfram vinna markvisst að því að tryggja fötluðum einstaklingum búsetu við hæfi og efla tækifæri þeirra til að taka sem virkastan þátt í samfélaginu.
Standa þarf einnig vörð um frístund fyrir fötluð börn að sumri til að brúa bil sumarleyfa foreldra þeirra.
Brýnt er einnig að sinna geðheilbrigðismálum fatlaðra einstaklinga svo sómi sé af.
Við viljum að Akureyrarbær sýni fordæmi á vinnumarkaði með því að bjóða fólki með skerta starfsgetu störf við hæfi þar sem mikilvægt er að hjálpa fólki eins og mögulegt er til aukinnar virkni og þátttöku í samfélaginu.
Sjá nánar →
Miðflokkurinn mun áfram beita sér fyrir átaki í umhverfismálum og fegrun bæjarins.
Mikilvægt er að gengið sé vel frá öllum nýjum hverfum, en einnig hugað að eldri hverfum bæjarins. Segja má að Oddeyrin hafi setið eftir og því viljum við að bærinn fari í átak á því svæði. Mjög mikið hefur þó þegar verið gert þar af íbúum og fyrirtækjum í fegrun bæjarhlutans. Við viljum hinsvegar að bærinn taki þar ákveðið frumkvæði og geri áætlanir um lagfæringar á götum og gangstéttum um leið og íbúar yrðu hvattir til að fegra sitt nærumhverfi enn frekar. Oddeyrin er „andlit bæjarins“ fyrir ferðamenn sem koma til okkar frá hafnarsvæðinu.
Bæta þarf enn frekar merkingar og öruggari gönguleiðir fyrir ferðamenn sem koma með skemmtiferðaskipum til bæjarins.
Í samstarfi við bæjarbúa og atvinnulífið verði skipulagðar hreinsunarvikur tvisvar á ári þar sem allir leggjast á eitt við að gera bæinn fegurri. Bærinn legði til sérstaka gáma tengt því.
Fylgja eftir áformum um stækkun grænmetisgarðanna og nýrra garða við uppbyggingu hverfa eins og ráð er fyrir gert í hinu nýja Móahverfi og gera þannig fleirum mögulegt að stunda slíka ræktun. Mikilvægt tækifæri felst í slíku til að kenna börnum sjálfbærni og góða umgengni við náttúruna.
Sjá nánar →
Tími framtíðar samgöngumiðstöðvar á Akureyri er kominn. Við skipulag verði unnið að því að koma fyrir samgöngumiðstöð sem tengipunkti allra almenningssamgangna á svæðinu. Staðsetning á flugvallarsvæðinu væri mikill kostur og stuðningur við ört vaxandi flugsamgöngur.
Miðflokkurinn telur mikilvægt að halda áfram markvissri uppbyggingu göngu, – hjóla, reið- og útivistraleiða um allt bæjarfélagið og tryggja öruggar leiðir þar sem fara þarf yfir umferðargötur.
Mikilvægt er einnig að tryggja í skipulagi öruggar samgönguæðar fyrir þungaflutninga. Við skipulag bæjarins þarf því að huga vel að umferðaröryggi þar sem þungaflutningar vegna atvinnustarfsemi fara um bæinn.
Mikilvægt er að halda Glerárgötunni sem stofnsamgönguæð gegnum bæinn þar sem leiðin um Krossanesbraut liggur nú gegnum íbúðahverfi eftir uppbyggingu Holtahverfisins.
Auk þess þarf að tryggja enn frekar umferð gangandi og hjólandi við Glerárgötuna. Tryggvabraut þjónar einnig mikilvægu hlutverki sem stofnæð og tenging við atvinnusvæðin á Oddeyrinni.
Dregið verði úr notkun á sandi og salti til hálkuvarna eins og kostur er og aukin áhersla verði á þrif á götum til að bæta sem mest lífsgæði. Ekki verði notað saltvatn við slík þrif eða við hálkuvarnir.
Sjá nánar →
Miðflokkurinn mun standa vörð um sögu og menningu Akureyrar. Þannig styður flokkurinn við lista- og menningarstarf sem auðgar bæinn sem samfélag.
Miðflokkurinn mun beita sér fyrir því að betur verði haldið utan um listmuni í eigu bæjarins og þeir gerðir aðgengilegir bæjarbúum og gestum bæjarins.
Sjá nánar →
Fréttir & tilkynningar

Málefni fatlaðra á Akureyri – fundurinn með Þroskahjálp
Hvað er að frétta af byggingu við Nonnahaga? Ég mætti í pallborð fyrir Miðflokkinn í gær á fundi sem Þroskahjálp…

Akureyri á að sækja fram – ekki bíða
Hannes Karlsson skrifar 05. maí 2026 Akureyri hefur alla burði til að verða áfram öflugur valkostur fyrir fólk og fyrirtæki.…

Nokkur orð um þjónustu Akureyrarbæjar við eldra fólk
Sem einn þriggja fulltrúa Félags eldri borgara (EBAK) í öldungaráði Akureyrarbæjar hef ég undanfarin fjögur ár kynnst málefnum eldra fólks…

Verndum græn svæði – engin óhófleg þétting byggðar
Sigurbjörg Níelsdóttir skrifar 03. maí 2026 Á vef Akureyrarbæjar er lögð áhersla á að varðveita beri þær frábæru náttúruperlur sem umlykja…

Velferðarmálin á Akureyri – Setjum börnin í forgang
Hólmgeir Karlsson skrifar 28.04 Velferðarmálin eru mjög stór og mikilvægur þáttur í rekstri Akureyrarbæjar og því mikilvægt að vel sé…

Akureyri þarf skýra stefnu
Hannes Karlsson skrifar 28.04 Fram undan eru mikilvægar kosningar á Akureyri og nú skiptir máli að velja skýra stefnu sem…




