Aðalfundur Miðflokksfélags Norðausturkjördæmis
mars 7 @ 16:00 - 18:00

Aðalfundur Miðflokksfélags Norðausturkjördæmis verður haldinn laugardaginn 7 mars 2026 kl 16:00 á Sel hótel Mývatni.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Framboðum til formanns og í stjórn skal skilað á netfangið nordaustur@midflokkurinn.is viku fyrir aðalfund eða fyrir kl 16:00 laugardaginn 28. febrúar 2026.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður og formaður flokksins mun ávarpa fundinn, Þorgrímur Sigmundsson þingmaður og Ágústa Ágústsdóttir varaþingmaður verða einnig á fundinum.
Þar sem fundurinn er seinnipartsfundur en ekki hádegis eins og hefur verið venjan , þá ætlar kjördæmafélagið að bjóða niðurgreiðslu um 5000kr. á mann á hvern fundargest í kvöldverðarhlaðborð sem kostar 8500 kr, eftir fundinn.
Vinsamlegast látið vita fyrir 4. mars hér í comment eða sendið á nordaustur@midflokkurinn.is ef á að panta fyrir ykkur í matinn.
Fyrir þá sem ætla að gista yfir á sunnudag þá er þetta linkur sem hægt er að bóka gistingu á.