Innflytjendamál
Frá óreiðu til almannahags. Vöktum landið – verjum íslenska velferð!
Við ætlum að koma böndum á stjórnleysið sem ríkir á landamærunum og skrifa ný útlendingalög frá grunni. Það á enginn að koma til Íslands í leit að hæli. Við eigum að bjóða fólki í neyð til landsins og hjálpa því að aðlagast íslenskri menningu og samfélagi. Við eigum líka að hjálpa fólki í neyð á þeirra nærsvæðum. Þannig hjálpum við fleirum.
Lausnir Miðflokksins í innflytjendamálum snúa að hælisleitendum, fólki sem flytur til landsins á grundvelli EES samningsins og fólki sem flytur til landsins á grundvelli sérstakra heimilda til að flytja inn fólk í tiltekin störf.
- Vinna þarf ný útlendingalög, frá grunni.
- Enginn ætti að koma til landsins til að sækja þar um hæli.
Áfram verður tekið á móti kvótaflóttamönum sem boðið er til landsins og leitast við að leggja áherslu á aðstoð á nærsvæðunum. Íslendingar gætu tekið þátt í að reka móttökustöðvar í öðrum löndum en þörfin fyrir slíkt er þó minni hjá okkur en flestum Evrópulöndum því Ísland er eyja í Norður Atlantshafi. Hingað koma ekki hælisleitendur án þess að hafa komið við í öðru öruggu landi þar sem þeim bar að sækja um hæli (samanber Dyflinarreglugerðina ofl. um að sótt skuli um í fyrsta örugga landinu sem komið er til). Allir sem koma til landsins eftir að hafa farið í gegnum önnur örugg lönd skulu umsvifalaust sendir aftur til þess ríkis. - Aðlögun að íslensku samfélagi skylda.
Þeir sem fá hæli á Íslandi skulu sýna vilja til að aðlagast íslensku samfélagi eða eiga ella á hættu að missa dvalarleyfi. - Afbrot jafngilda brottvísun.
Þeim hælisleitendum sem fremja alvarleg afbrot eða brjóta ítrekað af sér skal vísað úr landi. - Tímabundinni vernd fylgt eftir.
Þeir sem hafa tímabundið dvalarleyfi vegna ástands í heimalandi skulu snúa heim þegar aðstæður leyfa. - Ákvæði um fjölskyldusameiningar hert.
Gera skal kröfur um að sýnt sé fram á skyldleika auk krafna til bæði þess aðila sem fyrir er og þeirra sem koma vegna fjölskyldusameiningar um aðlögun að samfélaginu og framfærslu. - Atvinnuþátttaka skilyrði fyrir fullri velferðarþjónustu.
Fólk á vinnualdri sem fær hæli á Íslandi verður að sýna fram á atvinnuþátttöku áður en það fær fullan rétt á þjónustu velferðarkerfisins (til samræmis við það sem krafist er af íslenskum ríkisborgurum sem hafa búið lengi erlendis). - Landamæragæsla hert.
Landamæragæsla verður hert eftir þörfum óháð Schengen samkomulaginu í samræmi við aðgerðir annarra Schengenlanda að undanförnu. - Flugfélög skili farþegalistum.
Flugfélög skulu skila farþegalistum og staðfestingu á því að farþegar hafi getað gert grein fyrir sér á fullnægjandi hátt. - Auknar kröfur vegna ríkisborgararéttar.
Grunnþekking á íslensku og samfélagsmálum verður krafa við veitingu íslensks ríkisborgararéttar. - Eftirfylgni – atvinnuhorfur og atvinnuleysisbætur.
Draga þarf úr hvötum til að nýta íslenskar atvinnuleysisbætur annars staðar á EES svæðinu. Árlega skal greina atvinnuhorfur á Íslandi til að meta hvort beita skuli heimildum í samræmi við EES samninginn til að gera undantekningar á frjálsu flæði vinnuafls vegna sérstakra aðstæðna. - Endurskrifa lög um innflutning vinnuafls með sérþekkingu.
Tryggja þarf að það sé eingöngu nýtt fyrir fólk með eiginlega sérfræðiþekkingu á sviðum þar sem annað vinnuafl getur ekki komið í staðinn. - Virkt mat á stoðkerfum samfélagsins.
Framkvæmt verði mat á stoðkerfum samfélagsins, svo sem á sviði heilbrigðis-, velferðar- og menntamála ásamt því að lagt verði mat á stöðu mála á húsnæðismarkaði, þar sem metið verði það svigrúm sem íslenskt samfélag hefur til að taka við og styðja þá sem hingað er boðið á grundvelli kvótaflóttamannakerfisins.