Frambjóðendur í Múlaþingi

1. sæti
Lárus Bjarnason
Lögfræðingur og fyrrverandi sýslumaður

2. sæti
Hannes Karl Hilmarsson
Afgreiðslustjóri

3. sæti
Stefán Bragi Birgisson
Bóndi og götumálari

4. sæti
Jóhann Halldór Harðarson
Ráðgjafi

5. sæti
Guðmunda Vala Jónasdóttir
Leikskólastjóri

6. sæti
Viðar Gunnlaugur Hauksson
Framkvæmdastjóri

7. sæti
Ingibjörg Lárusdóttir
Kennari

8. sæti
Gestur Bergmann Gestsson
Bóndi

9. sæti
Berglind Sveinsdóttir
Vaktstjóri

10. sæti
Erlingur Hjörvar Guðjónsson
Rafmagnsiðnfræðingur

11. sæti
Regína Margrét Friðfinnsdóttir
Eldri borgari

12. sæti
Ingunn Anna Þráinsdóttir
Grafískur hönnuður

13. sæti
Óli Stefánsson
Ýtustjóri

14. sæti
Guðjón Sigmundsson
Vélvirkjameistari

15. sæti
Benedikt V. Warén
Rafeindavirkjameistari

16. sæti
Sigurður Alex Sigurgeirsson
Meistari

17. sæti
Harpa Hlín Jónasdóttir
Skólaliði

18. sæti
Stefán Scheving Einarsson
Verkamaður

19. sæti
Grétar Heimir Helgason
Rafvirkjameistari

20. sæti
Sigurður Ragnarsson
Framkvæmdastjóri

21. sæti
Björn Ármann Ólafsson
Skógarbóndi

22. sæti
Gunnar Þór Sigbjörnsson
Þjónusturáðgjafi
— Framtíðarsýn okkar —
Áherslumál
í
Múlaþingi
- Við ætlum að ráða óháðan fagaðila til þess að vinna heildstæða úttekt á rekstri sveitarfélagsins í ljósi þess að A hluti Múlaþings var rekinn með 372 miljón króna halla árið 2025.
- Við teljum tímabært í ljósi stöðu efnahagsmála að rýna stöðuna og greina hvar tækifæri eru til hagræðingar.
- Kostnaður við þá úttekt næst margfalt til baka á kjörtímabilinu.
- Við viljum fækka fulltrúum í sveitarstjórn úr 11 í 9.
- Við göngum ekki með fyrirfram mótaðar hugmyndir um hvað hægt er að gera til að bæta reksturinn heldur viljum fá óháð stöðumat.
- Ef til þess kemur að tekjur Múlaþings aukist af væntu frumvarpi um fasteignaskatta á orkumannvirki viljum við nýta hluta þeirra til að ýta fjárfestingum í innviðum ásamt því að greiða hraðar niður skuldir sveitarfélagins
- Við teljum framtíðina bjarta í Múlaþingi en það dylst engum að efnahagsástandið hérlendis og á heimsvísu krefst þess að brugðist verði við versnandi ytri skilyrðum.
Sjá nánar →
- Miðflokkurinn í Múlaþingi styður áframhaldandi baráttu um Fjarðarheiðargöng
- Framkvæmdir við flughlöð og lýsingarbúnað á Egilsstaðaflugvelli þurfa að hefjast sem fyrst.
- Miðflokkurinn í Múlaþingi styður mikilvægi þess að vegaframkvæmdum um Öxi verði flýtt.
- Hlutverk Múlaþings í baráttunni fyrir bættum samgöngum felst fyrst og fremst í þrýstingi og samtali við stjórnvöld landsins.
- Einnig er nauðsynlegt að halda upplýstri umræðu um þessi stóru hagsmunamál okkar sífellt á lofti.
Sjá nánar →
- Framboð íbúðalóða verði aukið
- Framboð atvinnulóða þarf að auka
- Áhersla lögð á fegrun og ásýnd umhverfis okkar
- Við teljum nauðsynlegt að ákvörðun um legu nýrrar brúar yfir lagarfljót verði unnin samhliða nýju aðskipulagi sveitarfélagins og liggi fyrir í lok kjörtímabilsins
- Múlaþing þarf að leggja línurnar og móta stefnu sem hentar hagsmunum sveitarfélagins best.
- Miðflokkurinn í Múlaþingi styður nýlega framkomnar hugmyndir um uppbyggingu Mennta- og íþróttamiðju Egilsstaða.
- Tilaga að breytingum á aðalskipulagi var samþykkt á aðalfundi Hattar 2026.
- Hér er um að ræða mál sem færir okkur sóknartækifæri í framþróun samfélagins okkar.
Sjá nánar →
- Við viljum styðja við og þróa enn frekar það öfuga og framsækna skólastarf sem er í Múlaþingi, í því samhengi leggjum við áherslu á gott náms- og starfsumhverfi í skólum þar sem fram fer gæða skólastarf í fjölbreyttu og sterku námsumhverfi
- Efla þarf stoðþjónustu skólanna og fjölga fagstéttum sem koma að skólastarfinu og auka faglega breidd til að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem best.
- Miðflokkurinn styður byggingu nýs Seyðisfjarðarskóla og stækkun Bjarkatúns á Djúpavogi.
Sjá nánar →
- Öflugt íþróttastarf og fjölbreytt er ein megin forsenda þess að ungt barnafólk sest að í sveitarfélaginu okkar.
- Lýðheilsa íbúa á öllum aldri er mikilvæg og þar skiptir stuðningur sveitarfélags við íþrótta og tómstundastarf miklu máli.
- Við viljum efla það starf enn frekar með gerð þjónustusamninga við íþróttafélög.
- Múlaþing er íþróttasamfélag og Miðflokkurinn vill efla það enn frekar fyrir alla íbúa í sveitarfélaginu.
- Við ætlum í samstarfi við önnur sveitarfélög á landsbyggðinni að berjast fyrir lækkun ferðakostnaðar íþróttafólks af landsbyggðinni.
- Þátttaka í íþróttum á ekki að vera spurning um efnahag eða búsetu og börnin okkar eiga að hafa tækifæri til jafns við önnur.
Sjá nánar →
- Miðflokkurinn í Múlaþingi ætlar að auka samtal og samstarf við atvinnulífið sem er hér og frumkvöðla á svæðinu.
- Við teljum hlutverk sveitarfélagsins vera að skapa skilyrði fyrir nýsköpun með góðu skipulagi, nægu lóðaframboði og aðgengi að nauðsynlegum innviðum.
- Við viljum stuðla að tækifærum á nýtingu orku sem verður til hér á svæðinu til atvinnuskapandi verkefna í Múlaþingi.
- Uppbygging á afþreyingu í ferðaþjónustu utan hánnatíma er lykilforsenda fyrir þróun millilandaflugs til Egilsstaða og við þá þróun viljum við styðja.
Sjá nánar →
- Sýnileiki Múlaþings út á við og öflug hagsmunagæsla skiptir miklu máli fyrir sveitarfélag sem er langt frá stjórnkerfi landsins.
- Atburðir síðustu mánuða og glíman við stjórnvöld hafa sýnt okkur nauðsyn þess að láta rödd okkar heyrast hærra, oftar og víðar.
- Við ætlum að leggja okkar af mörkum í þeirri baráttu.
Sjá nánar →
TEYMIÐ
Við erum teymi fólks úr sveitarfélaginu okkar sem býður sig fram til góðra verka. Við leggjum áherslu á jákvætt hugarfar, samvinnu, aukið samtal við íbúa og atvinnulíf. Við búum yfir sterkum vilja til þess að þróa samfélagið okkar áfram. Það eru ýmis tækifæri til vaxtar í Múlaþingi og Miðflokkurinn er tilbúinn til að fylgja þeim eftir af krafti.
Tækifærið er núna!
Fréttir & tilkynningar

Hvatning til að kjósa Miðflokkinn
Kæru kjósendur í Múlaþingi. Hvers vegna ættuð þið að kjósa Miðflokkinn í sveitarstjórnarkosningunum laugardaginn 16. maí. Kosningar snúast á…

Múlaþing til framtíðar – samfélag fyrir allar kynslóðir
Lárus Bjarnason skrifar Múlaþing er öflugt samfélag sem byggir á sterkum rótum, fjölbreyttu atvinnulífi og fólki sem vill sjá sitt…
Kosningaskrifstofa:
Kynnt síðar
Kosningastjóri:
Jóhann Halldór Harðarson
Netfang:
mulathing@midflokkurinn.is
Símanúmer:
894-8123



