Miðflokkurinn í Borgarbyggð
Staðir:
Borgarnes, Reykholt í Borgarfirði
Samfélagsmiðlar

Frambjóðendur í Borgarbyggð

1. sæti
Haukur Þór Hauksson

2. sæti
Þórður Brynjarsson

3. sæti
Tinna Rut Þórarinsdóttir

4. sæti
Helena Rós Helgadóttir

5. sæti
Hafsteinn Ingi Gunnarsson

6. sæti
Helgi Már Ólafsson

7. sæti
Þuríður Inga G. Gísladóttir

8. sæti
Sigurjón Helgason

9. sæti
Einar Ólafsson

10. sæti
Gunnhildur Gísladóttir

11. sæti
Guðjón Pétursson

12. sæti
Guðný Vilhjálmsdóttir

13. sæti
Snorri Jóhannesson

14. sæti
Jórunn Guðsteinsdóttir

15. sæti
Bjarni Benedikt Gunnarsson

16. sæti
Alexandra Sif Svavarsdóttir

17. sæti
Vilhjálmur Diðriksson

18. sæti
Guðrún Jónsdóttir
— Framtíðarsýn okkar —
Áherslumál
í
Borgarbyggð
Miðflokkurinn í Borgarbyggð leggur áherslu á skýra forgangsröðun í rekstri sveitarfélagsins. Lögbundin þjónusta skal ætíð ganga fyrir og hagsmunir íbúa alltaf vera í fyrsta sæti. Við viljum lækka vaxtaberandi skuldir, yfirfara samninga, kostnað og rekstur sveitarfélagsins og einfalda stjórnkerfi þess, með það að markmiði að gera það léttara, ódýrara og skilvirkara.
Við viljum aukið gagnsæi þannig að íbúar geti með auðveldum hætti kynnt sér í hvað peningarnir fara og á hvaða forsendum ákvarðanir eru teknar.
Sjá nánar →
Borgarbyggð er eitt sögufrægasta og fegursta hérað landsins. Styrkur héraðsins felst meðal annars í þeim náttúruperlum og menningarlegu gæðum sem þar er að finna. Gæðum sem við viljum varðveita og nýta, íbúum og gestum til hagsbóta. Stórkarlaleg orkumannvirki á hálsum Borgarfjarðar myndu hafa gríðarleg áhrif á ásýnd, náttúru, landslag og fuglalíf svæðisins, auk þess sem þau valda hljóðmengun og skuggaflökti á viðkvæmum svæðum.
Við höfnum því öllum hugmyndum um vindmyllur á hálsum Borgarfjarðar.
Sjá nánar →
Í kjölfar mikilla hækkana á fasteignamati á síðustu árum hafa álögur á íbúa aukist gríðarlega. Sveitarfélagið hefur ekki brugðist við þessari þróun með lækkun á álagningarprósentu fasteignaskatts, þrátt fyrir að ýmis önnur sveitarfélög hafi gert það. Við teljum tímabært að hlífa íbúum við þessum byrðum og viljum lækka álagningarprósentuna í áföngum.
Sjá nánar →
Undanfarin ár hafa verið gerðar miklar breytingar á sorphirðukerfi Borgarbyggðar sem hafa leitt til aukins flækjustigs og hækkandi kostnaðar fyrir íbúa. Miðflokkurinn vill endurskoða þennan þátt í rekstri sveitarfélagsins með það aðmarkmiði að einfalda kerfið og lækka kostnað íbúa.
Sjá nánar →
Við viljum stuðla að hraðari uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu með markvissri greiningu á styrkleikum þess, veikleikum og tækifærum. Í kjölfarið verður farið í markvissar kynningar á svæðinu og möguleikum þess, í þeim tilgangi að laða að fyrirtæki og nýsköpunarstarfsemi.
Sjá nánar →
Við leggjum mikla áherslu á að standa vörð um og styrkja innlenda matvælaframleiðslu og hefðbundinn landbúnað. Í Borgarbyggð er blómlegur landbúnaður, en mörg tækifæri eru þó ónýtt. Sífellt fleiri jarðir lenda í höndum stórfyrirtækja og erlendra auðmanna, oft með vafasama kolefnisjöfnun að markmiði.
Við í Miðflokknum höfnum því að góðar landbúnaðarjarðir leggist í eyði í nafni kolefnisjöfnunar.
Sjá nánar →
Við styðjum bætt aðgengi og gæði í leikskólum en leggjum áherslu á að breytingar taki mið af raunverulegum þörfum fjölskyldna. Mikilvægt er að þjónustan skerðist ekki, kostnaður aukist ekki óhóflega, lausnir séu sveigjanlegar og henti ólíkum aðstæðum. Við viljum sanngjarnt, einfalt og fjölskylduvænt kerfi sem styður daglegt líf íbúa.
Klárum endurbætur og stækkun leikskólanna Uglukletts og Klettaborgar og tryggjum áfram að öll börn komist á leikskóla við 12 mánaða aldur.
Sjá nánar →
Eflum grunnskóla Borgarbyggðar þá með markvissri uppbyggingu á nærumhverfi þeirra. Styðjum áfram það góða starf sem þar er unnið og tryggjum fyrirbyggjandi viðhald á fasteignum.
Sjá nánar →
Stefna okkar er að Holtavörðuheiðarlína með flutningsgetu upp á 900 MW fari ekki um uppsveitir Borgarfjarðar. Línan myndi hafa mikil áhrif á landbúnað, eignaverð, ásýnd lands og framtíðarmöguleika svæðisins. Að leggja hana þvert í gegnum uppsveitirnar hefur neikvæð áhrif á landbúnað, landeigendur og náttúruupplifun á svæðinu.
Miðflokkurinn tekur undir með bændum og landeigendum sem hafa gagnrýnt áformin harðlega og krefjast þess að horft verði til ríkislanda í stað landa í einkaeigu þegar kemur að slíkum framkvæmdum. Við mælum með heiðarleið A3, sem er einn af valkostum Holtavörðuheiðarlínu 3 og liggur yfir heiðar og hálendi frekar en í gegnum byggðir og uppsveitir Borgarfjarðar.
Sjá nánar →
Borgarbyggð er meðal víðfeðmustu sveitarfélaga landsins og eru þar alls sex þéttbýliskjarnar: Borgarnes, Hvanneyri, Kleppjárnsreykir, Reykholt, Varmaland og Bifröst. Undanfarin ár hafa engin markviss áform verið uppi um uppbyggingu þessara þéttbýliskjarna, að undanskildum þeim stærstu – Borgarnesi og Hvanneyri. Það hefur leitt til þess að uppbygging hefur verið lítil sem engin í minni byggðakjörnunum, öfugt við þróun í öðrum sveitarfélögum sem eru staðsett í nálægð við höfuðborgarsvæðið.
Við viljum breyta þessu og vinna að framtíðarskipulagi sem styður við íbúafjölgun á svæðinu. Við teljum að íbúðarhúsalóðir eigi ekki að vera fjáröflunartæki sveitarfélagsins heldur fjárfesting í nýjum íbúum. Miðflokkurinn vill því taka upp tímabundinn afslátt af íbúðar- og atvinnuhúsalóðum í þeim tilgangi að hvetja til uppbyggingar og koma lóðum á markað eins hratt og hægt er. Við trúum því að það sé hagur sveitarfélagsins að stækka og fá sem fyrst fasteignagjöld og útsvar, fremur en að liggja með lausar lóðir árum saman.
Við viljum einnig einfalda skipulagsferla og gera húsbyggjendum auðveldara fyrir að reisa fjölbreytt húsnæði, samfélaginu til heilla.
Sjá nánar →
Vinnum að framtíðarskipulagi í Brákarey sem þróunarreit í sátt við samfélagið. Sveitarfélagið á ekki að þurfa að kosta niðurrif eða uppkaup á fasteignum í Brákarey til að greiða götur fjárfesta.
Sjá nánar →
Ástand vega og tengivega í héraðinu er mikið áhyggjuefni. Fjárveitingar til vegamála hafa verið mjög misskiptar milli landshluta og vegakerfi Borgarbyggðar hefur að miklu leyti setið eftir. Tengivegir eru enn víða án slitlags.
Samkvæmt nýrri samgönguáætlun hefur ýmsum nauðsynlegum framkvæmdum verið frestað. Má þar m.a. benda á Uxahryggjaleið sem er ekki í áætluninni. Þá er vegurinn milli Borgarness og Holtavörðuheiðar fyrst með fjármögnun á þriðja tímabili áætlunarinnar, á árunum 2036–2040.
Við munum þrýsta á ríkisvaldið að gera úrbætur á vegakerfinu í sveitarfélaginu.
Sjá nánar →
Eitt af lykiláhersluatriðum Miðflokksins er að efla félagsþjónustu við aldraða. Við viljum fylgjast með því að öll ákvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga um þjónustu við aldraða séu í fullu gildi og ganga eftir framkvæmd þeirra. Með eflingu félagsþjónustunnar stuðlum við að því að aldraðir geti búið við eðlilegt heimilislíf eins lengi og unnt er og jafnframt að nauðsynleg stoðþjónusta sé til þegar þörf krefur.
Sjá nánar →
Við viljum styðja starfsemi Heilsugæslunnar í Borgarnesi þannig að þjónusta hennar endurspegli betur fjölda og þarfir íbúa héraðsins. Í því skyni viljum við vera í nánu samstarfi við ríkisvaldið um fjárveitingar til heilsugæslunnar.
Sjá nánar →
Við viljum lengja opnunartíma íþróttamannvirkja og sundlauga Borgarbyggðar. Með því styrkjum við samfélagið og hvetjum til heilsueflandi samfélags.
Engurskoðum nýtingu íþróttamannvirkja í dreifbýli og stefnum að löngu tímabærum endurbótum og stækkun íþróttahússins í Borgarnesi þegar við höfum náð tökum á fjármálunum.
Sjá nánar →
Í Borgarbyggð er farsímasamband víða ábótavant. Tryggjum að farsímasamand náist í dölum og á heiðum, sérstaklega þegar slökkt hefur verið á 2G og 3G sambandi. Það er mikilvægt öryggisatriði að símasamband náist sem víðast.
Sjá nánar →
Ef þú vilt breytingar, þá þarf að kjósa breytingar.
Tækifærið er núna!
Fréttir & tilkynningar

Góð stjórnsýsla?
Í aðdraganda kosninga státar meirihlutinn í Borgarbyggð sig af öllu því sem framkvæmt hefur verið á kjörtímabilinu. Þar er margt…

Sveitarstjórnarmenn reistu kjósendum Níðstöng á nýliðnu kjörtímabili
Allt var þetta gert undir öruggri forystu Framsóknarmanna sem keyrðu í gegn samþykkt málsins. Framsóknarflokkurinn sem leiðandi afl í Borgarbyggð…

Fórum við of geyst?
Borgarbyggð er frábært sveitarfélag. Hér fer saman falleg náttúra, friðsælt umhverfi og gott mannlíf, bæði í þétt- og dreifbýli. Við…

Tími til að vakna
Ég hef í ræðu og riti fjallað um fjárhag og efnahag Borgarbyggðar í aðdraganda kosninga í vor. Mér hefur borist…


